Fréttablaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 54
FÓLK| JÓL
Íslenzka Pop-Up fjelagið heldur árlegan jólamarkað á Bus hosteli um helgina þar
sem hópur innlendra hönnuða
sýnir og selur fjölbreytt hand-
verk fyrir jólin. Þetta er þriðja
árið sem hópurinn setur upp
markað fyrir jólin en í fyrsta
sinn sem hann er haldinn á Bus
hosteli, sem er í Skógarhlíð í
Reykjavík.
Að sögn Hönnu Grétu, eins
skipuleggjenda jólamarkaðar-
ins, fylgja ýmsir kostir því að
versla á slíkum mörkuðum.
„Nándin við hönnuði
og framleiðendur
er allt önnur en
í hefðbundnum
verslunum. Það
er gaman fyrir
viðskiptavini að
kynnast hönn-
uðum yfir borðið
og kaupa beint af
þeim fallega gjafa-
vöru og eiga um
leið gott spjall við
þá. Það er ekki síður
skemmtilegt fyrir
okkur að spjalla við
kaupendur, kynnast
þeim og heyra álit
þeirra á vörum okkar.
Á jólamarkaðinum um
helgina má finna margt
í jólapakkann og um leið
fyrir heimilið. Auk þess
seljum við líka jólapappír
og jólakort þannig að hér
er hægt að klára jólagjafa-
innkaupin í einni ferð.“
Um helgina verða
þrettán básar og er fjöl-
breytileikinn mikill að sögn
Hönnu. „Áherslan er sem
fyrr á íslenskt handverk,
hönnun og framleiðslu. Við
erum með fjölbreytt úrval
af vörum á borð við textíl-
vörur, myndlist, keramik-
vörur, ýmislegt skart, út-
skurð, bretti og óróa og svo
auðvitað jólaskraut, pappír og
kort.“
Boðið verður upp á kaffi og
smákökur auk þess sem kaffi-
hús hostelsins er opið. „Þar má
m.a. kaupa sér kakó og betri
kökur þannig að ég get lofað
notalegri jólastemningu hér
um helgina. Það verða posar á
staðnum og nóg af bílastæðum.
Jólamarkaðurinn er sannarlega
tilvalinn viðkomustaður á leið
í miðbæinn eða á leiðinni heim
eftir góðan dag.“
Hönnuðir sem selja um
helgina eru Bifurkolla, Ísafold
design, Gluggagallery, Íris Ösp
Heiðrúnardóttir, Aron Freyr
Stefánsson, Hanna Gréta, Basalt
Reykjavík, Ratdesign, Valdór
Bóasson, Gola & Glóra, Mixmix
Reykjavík, Gunnarsbörn og
Bismagg.
Jólamarkaðurinn er hald-
inn á Bus hosteli í Skógarhlíð
10 í Reykjavík og stendur
yfir milli kl. 12 og 17 í dag
og á morgun. Allar nánari
upplýsingar má finna á
Facebook undir Íslenzka
Pop-up fjelagið.
NOTALEG STEMNING
JÓLAMARKAÐUR Fjöldi íslenskra hönnuða tekur þátt í árlegum jólamarkaði
sem haldinn er á Bus hosteli um helgina.
GOTT SAMBAND ,,Það er gaman fyrir viðskiptavini að kynnast hönnuðum yfir borðið og kaupa beint af þeim fallega gjafavöru,“ segir
Hanna Gréta, einn af skipuleggjendum jólamarkaðarins, sem hér er ásamt Aroni Frey, sem einnig verður með bás um helgina. MYND/GVA
Lagfærir hrukkur, ör, bólur og sár
Virkar á skömmum tíma
Sniglaslím með aloa vera og lemongrass
Fæst í Lyfju, Heilsuhúsinu, Apótekinu og Fjarðarkaupum.
Sniglagel
NÁTTÚRULEGT FEGRUNARLEYNDARMÁL FYRIR HÚÐINA
STÆRSTA UFC-KVÖLD ÁRSINS
LAUGARDAG 12. DES. KL. 03:00
365.is Sími 1817
GUNNAR ER KLÁR Í BARDAGANN
GUNNAR
NELSON
GEGN
DEMIAN
MAIA
CONOR
McGREGOR
GEGN
JOSÉ
ALDO
Laugardagskvöldið 12. desember mætir Gunnar Nelson
hinum brasilíska Demian Maia og í aðalbardaga kvöldsins
kljást Conor McGregor og José Aldo.
Ekki missa af stærsta UFC-kvöldi ársins.
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
3
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
A
8
-1
6
F
4
1
7
A
8
-1
5
B
8
1
7
A
8
-1
4
7
C
1
7
A
8
-1
3
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K