Fréttablaðið - 05.12.2015, Qupperneq 74
| ATVINNA | 5. desember 2015 LAUGARDAGUR18
Helstu verkefni:
• Að leiða líkanagerð hjá Creditinfo og vöruþróun henni
tengdri. Bæði viðhald og þróun á núverandi líkönum sem
og nýsmíði á sérhæfðari líkönum í samstarfi við viðskiptavini.
• Þróa ráðgjöf Creditinfo í áhættustýringu og nýtingu
upplýsinga í þágu betri ferla og ákvarðana hjá viðskipta-
vinum okkar, í nánu samstarfi við viðskiptastýringu.
• Að vinna náið með teymi sem sér um vöruhús gagna í
að byggja upp framtíðar landslag gagnastrúktúrs
hjá Creditinfo.
GÖGN SEM GERA
GAGN
Creditinfo er leiðandi fyrirtæki í
traustri miðlun fjárhags- og
fjölmiðlaupplýsinga og starfrækir
einn stærsta gagnabanka
landsins.
Okkar hlutverk er að auka virði
upplýsinga og stuðla þannig að
réttri ákvarðanatöku og trausti í
viðskiptum. Við bjóðum vinnu
í skemmtilegum og faglega
sterkum hópi þar sem tækifærin
eru mikil.
Creditinfo var stofnað á Íslandi
árið 1997. Við erum í dag með
300 starfsmenn í 20 löndum,
þar af 50 snillinga á Íslandi.
www.creditinfo.is
Menntun og reynsla:
• Framhaldsmenntun á háskólastigi (M.Sc. eða PhD) í stærð-
fræði, verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegum greinum
• A.m.k. þriggja ára reynsla af áhættustýringu í
atvinnulífinu, helst úr banka- eða tryggingageiranum
• Reynsla af líkanagerð
• Sérfræðiþekking á hugbúnaði til líkanagerðar
eins og R og SAS er mikill kostur
• Góð færni í framsetningu gagna á einfaldan og skýran hátt
• Reynsla af vinnu tengdri vöruhúsum gagna er kostur
Creditinfo eflir ráðgjöf í áhættustýringu til viðskiptavina sinna og leitar eftir öflugum liðsauka til að leiða
þann þátt starfseminnar. Við leitum að aðila sem hefur metnað, frumkvæði og hæfileika til að þróa og
hámarka virði gagnabanka Creditinfo og búa til gagnlegar upplýsingar fyrir íslenskt atvinnulíf.
Creditinfo aðstoðar í dag yfir 1400 fyrirtæki við stýringu á áhættu í lána- og reikningsviðskiptum og
er leiðandi í gerð lánshæfismats fyrir íslenskt atvinnulíf.
YFIRMAÐUR
ÁHÆTTU-
STÝRINGAR
Metnaður Frumkvæði
Heildarsýn Samskipta-hæfileikar
Nánari upplýsingar um starfið veita Brynja Baldursdóttir,
framkvæmdastjóri, brynja@creditinfo.is og Ingvar Birgisson,
forstöðumaður vörustýringar, ingvar@creditinfo.is.
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á atvinna@creditinfo.is merkt:
„Yfirmaður áhættustýringar“
Umsóknarfrestur er til og með 10. desember.
Aðstoðarskólameistari
Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranesi
auglýsir starf aðstoðarskólameistara til
næstu fimm ára frá og með 1. janúar 2016.
Aðstoðarskólameistari er staðgengill skólameistara og
vinnur með honum við daglega stjórn og rekstur skólans
sbr. 8. grein laga um framhaldsskóla nr. 92/2008.
Aðstoðarskólameistari skal uppfylla skilyrði í ákvæðum
laga um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunn-
skólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra.
Laun aðstoðarskólameistara fara eftir kjarasamningi KÍ og
stofnanasamningi Fjölbrautaskóla Vesturlands. Ekki þarf
að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en í umsókn
þarf að greina frá menntun (og staðfesta með afriti af
prófskírteinum), fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi
telur að máli skipti.
Umsóknir sendist til Ágústu Elínar Ingþórsdóttur skóla-
meistara, Fjölbrautaskóla Vesturlands, Vogabraut 5, 300
Akranes, fyrir 8. desember 2015.
Nánari upplýsingar um starfið veitir skólameistari,
agusta@fva.is (sími 433 2504). Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Á heimasíðu skólans, www.fva.is, er að finna ýmsar upp-
lýsingar um skólann og starfsemi hans.
Stýrimenn og hásetar
Hafrannsóknastofnun auglýsir lausar til umsókna stöður
stýrimanna og háseta á rannsóknaskipin Bjarna Sæmunds-
son og Árna Friðriksson. Um er að ræða 2 – 3 stöður stýri-
manna og 6 – 7 stöður háseta. Starfsmenn munu vinna á
báðum rannsóknaskipunum eftir því sem þörf krefur.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Skipstjórnarréttindi á fiskiskipum vegna stöðu stýrimanna
• Öryggisfræðslunámskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna
• Reynsla af sjómannsstörfum á fiskiskipum
• Hæfni til góðra samskipta og samvinnu
Leitað er eftir einstaklingum sem eru vinnusamir, reglusamir
og heilsuhraustir. Starfsmenn skulu hefja störf í byrjun
janúar n.k. eða síðar skv. samkomulagi. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi fjármálaráðuneytis og Félags skipstjórnar-
manna annars vegar og fjármálaráðuneytis og Sjómanna-
félags Íslands hins vegar.
Umsóknarfrestur er til og með 14. desember. Umsóknir með
upplýsingum um menntun, starfsreynslu og nöfnum tveggja
meðmælenda sendist á póstfangið hafro@hafro.is.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um störfin.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sólmundur Már Jóns-
son (solmundur@hafro.is, sími; 575 2000).
Hafrannsóknastofnun er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og
fiskirannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsam-
lega nýtingu og verndun auðlinda hafsins. Mikill hluti starfseminnar tengist
alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla.
Stofnunin rekur 5 útibú, tilraunaeldisstöð í eldi sjávarlífvera, tvö rannsókna-
skip og hefur að jafnaði um 140 starfsmenn í þjónustu sinni.
Viðskiptastjóri óskast
til að slást í hóp söluteymis Icelandic Times.
Icelandic Times er vandað tímarit sem miðar að því að upplýsa
væntanlega og hingað komna ferðamenn um allt sem viðkemur
ferðamennsku, menningu og viðskiptum á Íslandi. Ritið er eitt
útbreiddasta ferðatímarit landsins og er gefið út á fjórum tungu-
málum; ensku, frönsku, þýsku og kínversku. Icelandic Times
býður einnig upp á margvíslega þjónustu svo sem myndbanda-
gerð, vefumfjallanir o.m.fl. Um fullt starf er að ræða.
Við erum að leita að sölusnillingi
til að slást í hóp samheldins teymis Icelandic Times. Fullt starf!
Icelandic Times er vandað tímarit sem miðar að því að upplýsa væntanlega og hingað
komna ferðamenn um allt sem viðkemur ferðamennsku, menningu og viðskiptum
á Íslandi. Ritið er eitt útbreiddasta ferðatímarit landsins og er gefið út á fjórum
tungumálum; ensku, frönsku, þýsku og kínversku. Icelandic Times býður einnig upp á
margvíslega þjónustu svo sem myndbandagerð, vefumfjallanir o.m.fl.
Einnig leitum við að sérfræðingi til að annast verkefnastjórnun tengdri dreifingu og
markaðssetningu Icelandic Times innan Kína. Icelandic Times er gefið reglulega út
í Kína og dreift markvisst til kínverskra ferðaskrifstofa og valinna fyrirtækja innan
stóriðju og iðnaðar.
Góð laun fyrir rétt fólk!
Áhugasamir sendið umsóknir með ferilskrá á netfangið
info@icelandictimes.com
merkt: „Atvinnuumsókn september 2015” fyrir 11. september
Helstu verkefni
- Viðhald og öflun nýrra viðskiptatengsla
- Heimsóknir í fyrirtæki og stofnanir
- „Cold calls“
- Þáttaka í stefnumótun og áætlanagerð
- Ráðgjöf og þjónusta til viðskiptavina
Hæfniskröfur
- Reynsla af sölumennsku skilyrði
- Góð enskukunnátta
- Almenn tölvufærni
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
Góð laun fyrir réttan aðila
Áhugasamir sendið umsóknir með ferilskrá á netfangið
info@icelandictimes.com merkt: „Atvinnuumsókn desember
2015” fyrir 10. desember
Hæfniskröfur
- Reynsla af sölumennsku
skilyrði
- Góð enskukunnátta
- Almenn tölvufærni
- Hæfni í mannlegum sam-
skiptum
Helstu verkefni
- Ráðgjöf og sala til viðskipta-
vina
- Viðhald og öflun nýrra við-
skiptatengsla
- Heimsóknir í fyrirtæki og
stofnanir
- Þáttaka í stefnumótun og
áæ lanagerð
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
A
8
-4
D
4
4
1
7
A
8
-4
C
0
8
1
7
A
8
-4
A
C
C
1
7
A
8
-4
9
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K