Fréttablaðið - 05.12.2015, Síða 82
FÓLK| FERÐIR
Fallegt landsvæðið í Mürren er í svissnesku Ölpunum. Það var auðvitað þess vegna sem framleiðendur sjöttu myndarinnar um James
Bond völdu þennan stað til töku á myndinni. Helstu
senur myndarinnar gerast á veitingastaðnum Piz
Gloria sem trónir á toppi fjallsins Schilthorn í 2.970
metra hæð. Þar hefur verið komið fyrir safni um
James Bond sem margir eru ólmir að heimsækja.
Ekki er hægt að komast þangað nema í kláfi eða
þyrlu. Það var George Lazenby sem fór með hlut-
verk James Bond 007 í þessari mynd.
Piz Gloria er vel þess virði að heimsækja. Þar
er gríðarlega fallegt og töfrandi útsýni yfir Sviss.
Þar má sjá yfir 200 fjallstinda í stórbrotnu sviss-
nesku landslagi. Auk þess sést til Frakklands og
Þýskalands í góðu skyggni. Veitingastaðurinn Piz
Gloria snýst eins og Perlan og ef fólk situr þar
að snæðingi getur það um leið virt fyrir sér um-
hverfið úr öllum áttum. Þar er að sjálfsögðu boðið
upp á Martini-kokteil, „hrist ekki hrært“, og sér-
stakt kampavíns-morgunverðarhlaðborð að hætti
njósnarans frá kl. 8-11.
Margir einlægir aðdáendur James Bond hafa
farið í pílagrímsleiðangur á fjallið Schilthorn enda
hrikalegar spennusenur sem gerðust þar. Safnið
heillar og stöðugt bætast í það nýir hlutir tengdir
007. Í safninu er bíósalur fyrir 400 manns þar sem
myndin er sýnd.
On Her Majesty’s Secret Service þykir svolítið
sérstök af Bondmynd að vera. Það er ekki síst
vegna þess að aðalhlutverkið var í höndum 29 ára
fyrirsætu frá Ástralíu. George Lazenby tók við hlut-
verkinu af Sean Connery sem var stórstjarna og
margir sáu hann sem hinn eina sanna Bond. Tekj-
urnar urðu helmingi minni en af fyrri Bondmyndum
og hún fékk lakari dóma en aðrar. Á seinni árum
hefur hins vegar vaknað áhugi á myndinni, ekki síst
hinni stórbrotnu náttúru þar sem myndin er tekin.
Þeir sem eru á leið á skíði í svissnesku Ölpunum
ættu að huga að ferð á slóðir James Bond í Mürren.
Sömuleiðis ef fólk er á ferðinni um sumartímann
því þarna er paradís á sumrin líka. Fjöldi ferða-
manna er venjulega á þessum slóðum, skíðafólk
sem og skólanemendur í fræðsluferð. Skammt frá
er fallegt sveitaþorp þar sem veitingastaðir og
hótel bjóða upp á mat beint frá býli. Í bænum Mür-
ren, sem er bíllaus, ferðast fólk um á skíðum. Mür-
ren er gríðarlega vinsæll staður hjá ferða mönnum.
Þar búa einungis 450 manns en á staðnum eru tvö
þúsund gistirými á hótelum.
n elin@365.is
MORGUNVERÐUR
AÐ HÆTTI BOND 007
SPENNANDI Sjötta myndin um James Bond, On Her Majesty’s Secret Service
frá árinu 1969, var að mestu tekin í fjallinu Schilthorn í Mürren í Sviss. Á toppi
fjallsins í 2.970 metra hæð er veitingastaður en þar er nú safn um James Bond.
Þar er hægt að fá sér morgunverð eins og njósnarinn fékk sér á sínum tíma.
SKÍÐASVÆÐI Við bæinn Mürren er frábært skíðasvæði.
HÁTT UPPI Piz Gloria veitingastaðurinn stendur efst á fjalli en þar er Bond-safn, enda voru margar hrikalegar senur teknar þar.
HÁSKALEIKUR Auglýsing fyrir James Bond myndina On Her
Majesty’s Secret Service.
Vertu vinur á
Facebook
Vertu vinur á
Facebook
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Vertu vinur á
Facebook
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is
GLÆSILEG, VÖNDUÐ
OG FÁGUÐ MERKJAVARA
á sanngjörnu verði
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga kl
. 11–18
Opið laugardaga k
l. 11-15
Betri
buxurnar
Verð 13.900 kr.
- einn litur.
- stærð: 34 - 48.
- rennilás neðst á skálm.
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
A
8
-0
D
1
4
1
7
A
8
-0
B
D
8
1
7
A
8
-0
A
9
C
1
7
A
8
-0
9
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K