Fréttablaðið - 05.12.2015, Qupperneq 86
FÓLK| HELGIN
Ég hef gaman af öllu sem viðkemur snjó og ís og hef í mörg ár gert tilraunir með að lýsa upp snjó og ís
með kertum. Ég rakst á myndir af íslukt
um í gömlu norsku eða dönsku heimilis
blaði fyrir mörgum árum og síðan þá er
alltaf íslukt á tröppunum hjá mér þegar
frost er,“ segir þúsundþjalasmiðurinn
Hlynur Sigurgíslason en hann notar
hvert tækifæri til þess að móta luktir úr
snjó, bæði fyrir sjálfan sig og aðra. Snjón
um kyngir niður þessa dagana í höfuð
borginni svo nóg er af efnivið. Hlynur
segir reyndar ekki mikinn snjó þurfa til
að búa til skemmtilega snjólukt.
„Það þarf ekki nema fötufylli af snjó.
Best er að nota púðursnjó, það lýsir
betur í gegnum hann en blautan snjó.
Snjóluktir er fljótlegt að gera og þær
þurfa ekki samfellt frost í marga daga
eins og ísluktirnar. Svo er birtan af þeim
líka fallegri.”
HVERNIG Á AÐ FARA AÐ?
„Fata er fyllt af snjó og geymd innandyra
í 15 mínútur, eða þar til snjórinn hefur
sest. Þá er rörbút stungið þráðbeint nið
ur í botn fötunnar. Til að festa snjókjarn
ann í rörinu er fleyg stungið í mitt rörið,
til dæmis úr brotnu kústskafti. Kjarninn
er svo losaður úr og snjóluktin svo mót
uð með fleygnum. Ef frost er úti harðnar
snjóluktin fljótlega svo gott er að móta
luktina áður en það gerist. Brúnir eru
rúnnaðar, sérstaklega botn luktarinnar til
að hún lýsi betur. Svo er gaman að setja
munstur í hana með piparkökuformum.
Ég nota töng til að banka inn mótin og
losa þau aftur. Luktin frýs nú og stendur
í 23 daga, en tekertin bræða hana smám
saman. Luktirnar vekja alltaf gleði. Ég tók
mig til fyrir stuttu og útbjó leiðbeiningar
og setti á vefinn (sjá www.facebook.com/
snjoluktir). Fleiri leiðbeiningar að snjós
kúlptúrum eru væntanlegar, enda af nógu
að taka. Nú um helgina stendur yfir snjó
luktahátíð á Sjafnargötu. Hápunkturinn
verður annað kvöld en þá ættu að vera
hundrað snjóluktir í götunni, ef veður
leyfir.“
Hlynur hefur alltaf verið handlaginn
og búið til hluti frá því hann var krakki,
smíðað, teiknað og saumað. „Ég prjónaði
og heklaði einnig sem barn og mér finnst
enn þá saumnál jafnmikilvægt verk
færi og hamar,“ segir hann. Það kemur
því ekki á óvart að hann býr til luktir úr
öðrum efnivið en snjó.
„Ég hef unnið að því að búa til lampa
sem gefur frá sér sambærilegt ljós. Ullin
gefur birtu sem fer mjög nærri ljósinu í
snjóluktunum. Ég bjó í fjögur ár við hlið
Ullarvinnslu frú Láru á Seyðisfirði og fékk
þar að kynnast þæfðri ull en mér finnst
mikilvægt að ná fágaðri áferð á ullina.
Ullarluktirnar er ég nýbyrjaður að selja í
Kolaportinu um helgar.”
NÝTIR SNJÓINN Í LJÓSLUKTIR
SNJÓLUKTIR Hlynur Sigurgíslason notar hvert tækifæri sem gefst til að búa til snjóluktir í garðinum hjá sér. Hann hefur sett saman
leiðbeiningar um gerð luktanna á Facebook. Um helgina verður Snjóluktahátíð í Sjafnargötu.
LUKTIN MÓTUÐ Þegar búið er að losa kjarnann úr er fötunni hvolft
svo luktin stendur eftir. Þá má móta hana til og þynna svo ljósið
komist vel í gegn.
EINFALT MÁL Hlynur segir lítið mál að búa til snjóluktir og nóg er af efnivið
þessa dagana. „Fata er fyllt af snjó og geymd innandyra í 15 mínútur, eða þar til
snjórinn hefur sest. Þá er rörbút stungið þráðbeint niður í botn fötunnar. Til að
festa snjókjarnann í rörinu er fleyg stungið í mitt rörið, til dæmis úr brotnu kúst-
skafti. Kjarninn er svo losaður úr.” MYND/HLYNUR
MARGT TIL LISTA LAGT Hlynur Sigurgíslason
hefur teiknað, smíðað, heklað og prjónað frá því hann
var barn. Hann býr meðal annars til luktir úr ull og úr
snjó og hefur sett saman leiðbeiningar um snjólukta-
gerð á Facebook. MYND/GVA
MUNSTUR Hlynur notar piparkökumót til að gera munstur í luktina.
FALLEGT LJÓS Luktin frýs nú og stendur í 2-3 daga, en tekertin
bræða hana smám saman.
LEIÐBEININGAR Á NETINU „Luktirnar vekja alltaf gleði. Ég tók
mig til fyrir stuttu og útbjó leiðbeiningar og setti á vefinn (sjá www.
facebook.com/snjoluktir). Fleiri leiðbeiningar að snjóskúlptúrum eru
væntanlegar, enda af nógu að taka,“ segir Hlynur.
HARÐKORNAdekk
Rannsóknir fagaðila tala sínu máli...
Samkvæmt rannsókn Sweden Vej og Traficc Institut (VTI *) á vetrardekkjum komu Harðkornadekkin
mun betur út en önnur þekkt merki á markaðnum, m.a. þegar skoðuð var virkni dekkjanna við frostmark.
Við þær aðstæður verða flest óhöpp í umferðinni. Einnig kom í ljós að nagladekk höfðu lengri bremsuvega-
lengd bæði á blautu og þurru malbiki, en við þær aðstæður er ekið 98% af tímanum s.s. á höfuðborgarsvæðinu.
Harðkornadekk ættu því að vera fyrsti kosturinn fyrir þá sem vilja auka öryggi sitt og stuðla að betra umhverfi, þar sem
þau valda hverfandi svifryki og eru endurnýtt hráefni. Traustir og kröfuharðir íslenskir viðskiptavinir okkar eru sama sinnis.
www.hardkor
nadekk.is
611 7799
PANTIÐ Á:
panta@hardk
ornadekk.is
...öruggust
www.hardkornadekk.is/pages/profanir-dekk*
í prófunum*
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
A
8
-2
F
A
4
1
7
A
8
-2
E
6
8
1
7
A
8
-2
D
2
C
1
7
A
8
-2
B
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K