Fréttablaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 98
Farið út á sleða
Það er um að gera að nýta
sér snjóinn til þess að renna
sér á snjóþotu eða skíðum.
Á skautum skemmti
ég mér …
Kíktu á skautasvellið á Ingólfstorgi.
Fátt er jólalegra en að skauta í
snjónum. Frítt er á svellið en koma
þarf sjálfur með skauta eða leigja
þá á staðnum. Það er opið frá
hádegi og fram á kvöld til
og með 23. desember.
Skreytið piparkökur
Komið ykkur í jólaskapið með því
að baka piparkökur og skreyta þær
síðan. Setjið skemmtilega jólatón-
list á og komið ykkur í jólagírinn.
Þeir sem nenna alls engu umstangi
geta keypt tilbúnar piparkökur
og glassúr – þá er þetta
leikur einn.
Byggið snjóhús
Notið snjóinn og búið til
snjóhús. Það er verkefni
sem allir í fjölskyldunni geta
tekið þátt í, stórir sem smáir.
Það er síðan kósí að
sitja í snjóhúsinu með
heitt súkkulaði og
smákökur.
Horfið á
jólamyndir
Horfið á skemmtilegar og
klassískar jólamyndir saman.
Fátt sameinar fjölskylduna
meira en góð jólamynd.
Leikið í snjónum
Ekkert jafnast á við gamaldags
snjókast, eða að fara út að gera
snjókarl eða snjóengil. Gefið
ykkur tíma til að leika og hafa
gaman.
Föndrið jólakort
Það er falleg hefð að senda
jólakort og enn þá skemmti-
legra að fá persónuleg og
öðruvísi jólakort. Föndraðu
skemmtileg jólakort með
börnunum fyrir vini
og ættingja.
Grípið í spil
Rifjið upp gamla takta
og grípið í gömlu góðu
spilin. Ólsen ólsen
og veiðimaður
klikka seint.
Jólaföndur
Það er alltaf gaman að
föndra saman. Af hverju
ekki að skella í gamaldags
músastiga eða búa til fal-
legar jólastjörnur?
Jóla
markaðurinn
Kíkið á jólamarkaðinn við
Elliðavatn sem er opinn
allar helgar fram að jólum
frá 11-16. Ýmsar uppá-
komur í gangi, jólasveinar
á vappi og nýhoggin tré
eru til sölu.
Föndrið
jólagjafir
Það er gaman að búa sjálfur
til gjafir fyrir vini og ættingja.
Bakið kökur, föndrið eða
búið til heimagerðar snyrti-
vörur s.s. skrúbb. Persónu-
legt og skemmtilegt.
Kynnist jólunum í
gamla daga
Á Árbæjarsafni er alltaf sérstök jóladag-
skrá á sunnudögum fyrir jól. Forvitni-
legt og skemmtilegt fyrir bæði börn og
fullorðna að kynnast jólum liðinna tíma.
Hrekkjótir jólasveinar gægjast á glugga
og kíkja í potta, börn og fullorðnir föndra
og syngja jólalög. Jólasveinar eru á vapp-
inu milli 14 og 16 og dansað er í krinugm
jólatréð á torginu klukkan 15.
Jólasveinar í
Þjóðminjasafninu
Það er orðin árleg hefð í Þjóðminjasafninu
að sveinkarnir sæki safnið heim. Þeir byrja
að mæta 12. desember og koma á slaginu
11, alla daga til og með aðfangadegi. Þar fá
börnin að hitta þjóðlega jólasveina í öðruvísi
búningum en þeir eru alla jafna.
5 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r50 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Skemmtum
okkur á
aðventunni
Jólin eiga ekki bara að snúast um að kaupa gjafir, þrífa
og gera allt tilbúið fyrir aðfangadagskvöld. Það er um að
gera að njóta þess besta sem desember hefur upp á að
bjóða með þeim sem okkur þykir vænt um.
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
8
K
_
N
E
W
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
A
7
-A
F
4
4
1
7
A
7
-A
E
0
8
1
7
A
7
-A
C
C
C
1
7
A
7
-A
B
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K