Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 100

Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 100
„Fyrir utan jólatónleika Baggalúts sem verða fyrirferðarmeiri með hverju árinu, þá snúast náttúrlega helstu hefðir um mat,“ segir Karl Sigurðs- son Baggalútur með meiru sem hefur í nægu að snúast fyrir jólin. Vinsældir jólatónleika Baggalúts hafa aukist með hverju árinu en Karl á sér aðrar fastar hefðir en að syngja á jólatónleikum fyrir jólin. „Ég fer í laufabrauðsgerð hjá fjölskyldu Tobbu og er orðinn ansi lunkinn að steikja. Svo reyni ég að komast í skötu á Þorláksmessu og að hitta matarklúbbinn minn í hádegis- mat þriðja í jólum.“ Hann þarf ekki að stressa sig á jóla- innkaupunum í ár. „Í desember er svo málið að njóta þess að vera búinn að öllu, þ.e. að njóta þess að Tobba er búin að fara til Boston í nóvember og klára öll jólagjafainnkaupin fyrir okkur. Eftir síðustu ferð varð reyndar til ný hefð sem snýst um að fjölskyldan fær sam- stæð jólanáttföt. Sjáum hvort sú hefð lifi ekki bara áfram næstu árin.“ Fjölskyldan öll klæðist samstæðum jólanáttfötum Karl Sigurðsson söngvari segir frá skemmtilegum hefðum um aðventu. Sölku Sól finnst ómissandi að skera út laufabrauð með stórfjölskyldunni. Fréttablaðið/Ernir „Undanfarið hefur skólastressið étið mig upp nánast alla aðventuna, en nú sér brátt fyrir endann á því,“ segir Manuela Ósk Harðardóttir fatahönnunarnemi. Undanfarin ár hafa jólaprófin í Listaháskól- anum tekið mikið af tíma hennar í desember en hún lætur það ekki á sig fá og passar að skreyta allt hátt og lágt. „Aðventu kransinn er mikilvægur – og alltaf smá athöfn að kveikja á næsta kerti. Ég er rosa- lega mikið jólabarn og skreyti húsið mitt grimmt. Það er svo skemmti- legt og börnin eru hjartanlega sam- mála mér þar. Reyndar skreyti ég ekki bara húsið, heldur nánast allt í kringum mig – sjálfa mig með- talda!“ Jólatónleikar Baggalúts eru líka föst hefð hjá mér á aðventunni, laufabrauðsgerð og sörubakstur – og svo skötuveislan á Þorláksmessu.“ Skreytir grimmt og fer á jólatónleika Manuela Ósk Harðardóttir fatahönnunarnemi. „Aðalhefðin hjá mér fyrir jólin og það sem mér finnst líka skemmti- legast að gera með fjölskyldunni í desember er árleg laufabrauðs- gerð,“ segir söngkonan Salka Sól Eyfeld. Hún segir laufabrauðsgerð með fjölskyldunni vera ómissandi aðventuhefð en fyrir jól hittist um tuttugu fjölskyldumeðlimir og komi sér í hátíðarskap við laufabrauðs- gerðina. „Frændfólk mitt kemur að norðan og við gerum laufabrauð í massavís og soðið brauð líka,“ segir hún. Laufabrauðið er skorið eftir kúnstarinnar reglum. „Við skerum laufabrauðið bæði með hjóli og handgert. Ég geri aldrei með hjóli, bara handgert og framleiði þess vegna ekki mikið,“ segir hún hlæj- andi. „Svo er þessu deilt niður á alla og fólk borðar á jólunum.“ Laufabrauðsgerð með fjölskyldunni Salka Sól Eyfeld söngkona sker út laufabrauð. „Ég elska aðventuna. Hún er frá- bær,“ segir Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúi. Aðventan hefst úti á landi. „Í mörg ár hefur aðventan hafist á því að fjölskyldan fer í „jólabústað“ með stórfjölskyldu mannsins míns. Þar er spilað, bakað og föndrað, farið í göngutúra, heita pottinn og allt þar á milli. Yfirleitt eru fyrstu mandarínurnar með í för og alltaf alveg eðaljólahlað- borð í boði tengdó. Í kjölfarið eru allir komnir í jólaskapið,“ segir hún. Þegar heim er komið eru fjöl- skyldumeðlimir komnir í mikið jólaskap. „Þetta leiðir auðvitað af sér að fyrstu skreytingarnar heima fara upp um leið og heim er komið. Á aðventunni eiga nokkrir mér nákomnir afmæli og því hafa tilheyrandi jólaafmælisboð sett mikinn svip á þennan tíma. Að öðru leyti reynum við að koma inn eins mörgum letistundum og hægt er. Að velja jólagjafir er líka stórskemmtilegt, við höfum yfir- leitt safnað saman ýmsu dóti sem við eigum og höldum að einhverjir aðrir vilji frekar eiga, svo kaupum við ýmsa hluti sem okkur finnast fagrir eða skemmtilegir. Við vitum ekkert hverjir eiga að fá þá fyrr en pakkað er inn rétt fyrir jól. En þá er mesta fjörið að tengja hlutina við fólkið sem á að fá þá,“ segir hún. Það er síðan fjölmennt á jólunum hjá Áslaugu. „Á aðfangadag erum við með fjölda manns í mat, bæði fjölskyldu og oft vini. Nú er svo komið að ekki er hægt að afgreiða pakka á hefðbundinn hátt, því opnum við þá reglulega frá því boðið hefst og á meðan á borðhaldi stendur. Góð aðferð til þess að njóta enn betur. Mikið hlakka ég til!“ Aðventan hefst í jólabústað Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúi nýtur lífsins með fjölskyldunni í bústað. „Þessi bók er veisla“ Vigdís Grímsdóttir Góðir siðir á aðventunni Margir halda upp á siði og venjur á aðventunni. Elda sama matinn, grafa upp gamalt skraut sem góðar minningar fylgja og halda fast í uppákomur með fjölskyldunni. Aðventan er tími minninga. Manuela Ósk Harðarsdóttir skreytir ekki bara húsið, líka sjálfa sig. Fréttablaðið/Ernir Karl Sigurðsson tónlistarmaður heldur stóra tónleika á ári hverju með baggalút. Fréttablaðið/Ernir Áslaug Friðriksdóttir segir aðventuna hefjast úti á landi, mandarínurnar eru teknar með í bústaðinn. Fréttablaðið/pjEtur Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is 5 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r52 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 1 -1 2 -2 0 1 5 0 9 :2 9 F B 1 3 6 s _ P 1 1 3 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 A 7 -C 3 0 4 1 7 A 7 -C 1 C 8 1 7 A 7 -C 0 8 C 1 7 A 7 -B F 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 3 6 s _ 4 1 2 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.