Fréttablaðið - 05.12.2015, Qupperneq 100
„Fyrir utan jólatónleika Baggalúts sem
verða fyrirferðarmeiri með hverju
árinu, þá snúast náttúrlega helstu
hefðir um mat,“ segir Karl Sigurðs-
son Baggalútur með meiru sem hefur
í nægu að snúast fyrir jólin. Vinsældir
jólatónleika Baggalúts hafa aukist með
hverju árinu en Karl á sér aðrar fastar
hefðir en að syngja á jólatónleikum
fyrir jólin. „Ég fer í laufabrauðsgerð
hjá fjölskyldu Tobbu og er orðinn ansi
lunkinn að steikja. Svo reyni ég að
komast í skötu á Þorláksmessu og að
hitta matarklúbbinn minn í hádegis-
mat þriðja í jólum.“
Hann þarf ekki að stressa sig á jóla-
innkaupunum í ár. „Í desember er svo
málið að njóta þess að vera búinn að
öllu, þ.e. að njóta þess að Tobba er búin
að fara til Boston í nóvember og klára
öll jólagjafainnkaupin fyrir okkur. Eftir
síðustu ferð varð reyndar til ný hefð
sem snýst um að fjölskyldan fær sam-
stæð jólanáttföt. Sjáum hvort sú hefð
lifi ekki bara áfram næstu árin.“
Fjölskyldan öll klæðist
samstæðum jólanáttfötum
Karl Sigurðsson söngvari segir frá skemmtilegum hefðum um aðventu.
Sölku Sól finnst ómissandi að skera út
laufabrauð með stórfjölskyldunni.
Fréttablaðið/Ernir
„Undanfarið hefur skólastressið étið
mig upp nánast alla aðventuna, en
nú sér brátt fyrir endann á því,“
segir Manuela Ósk Harðardóttir
fatahönnunarnemi. Undanfarin
ár hafa jólaprófin í Listaháskól-
anum tekið mikið af tíma hennar
í desember en hún lætur það ekki
á sig fá og passar að skreyta allt
hátt og lágt. „Aðventu kransinn er
mikilvægur – og alltaf smá athöfn
að kveikja á næsta kerti. Ég er rosa-
lega mikið jólabarn og skreyti húsið
mitt grimmt. Það er svo skemmti-
legt og börnin eru hjartanlega sam-
mála mér þar. Reyndar skreyti ég
ekki bara húsið, heldur nánast allt
í kringum mig – sjálfa mig með-
talda!“ Jólatónleikar Baggalúts eru
líka föst hefð hjá mér á aðventunni,
laufabrauðsgerð og sörubakstur – og
svo skötuveislan á Þorláksmessu.“
Skreytir grimmt
og fer á jólatónleika
Manuela Ósk Harðardóttir fatahönnunarnemi.
„Aðalhefðin hjá mér fyrir jólin og
það sem mér finnst líka skemmti-
legast að gera með fjölskyldunni
í desember er árleg laufabrauðs-
gerð,“ segir söngkonan Salka Sól
Eyfeld. Hún segir laufabrauðsgerð
með fjölskyldunni vera ómissandi
aðventuhefð en fyrir jól hittist um
tuttugu fjölskyldumeðlimir og komi
sér í hátíðarskap við laufabrauðs-
gerðina. „Frændfólk mitt kemur að
norðan og við gerum laufabrauð í
massavís og soðið brauð líka,“ segir
hún. Laufabrauðið er skorið eftir
kúnstarinnar reglum. „Við skerum
laufabrauðið bæði með hjóli og
handgert. Ég geri aldrei með hjóli,
bara handgert og framleiði þess
vegna ekki mikið,“ segir hún hlæj-
andi. „Svo er þessu deilt niður á alla
og fólk borðar á jólunum.“
Laufabrauðsgerð
með fjölskyldunni
Salka Sól Eyfeld söngkona sker út laufabrauð.
„Ég elska aðventuna. Hún er frá-
bær,“ segir Áslaug Friðriksdóttir
borgarfulltrúi. Aðventan hefst úti
á landi. „Í mörg ár hefur aðventan
hafist á því að fjölskyldan fer í
„jólabústað“ með stórfjölskyldu
mannsins míns. Þar er spilað, bakað
og föndrað, farið í göngutúra, heita
pottinn og allt þar á milli. Yfirleitt
eru fyrstu mandarínurnar með í
för og alltaf alveg eðaljólahlað-
borð í boði tengdó. Í kjölfarið eru
allir komnir í jólaskapið,“ segir
hún. Þegar heim er komið eru fjöl-
skyldumeðlimir komnir í mikið
jólaskap. „Þetta leiðir auðvitað
af sér að fyrstu skreytingarnar
heima fara upp um leið og heim er
komið. Á aðventunni eiga nokkrir
mér nákomnir afmæli og því hafa
tilheyrandi jólaafmælisboð sett
mikinn svip á þennan tíma. Að
öðru leyti reynum við að koma
inn eins mörgum letistundum og
hægt er. Að velja jólagjafir er líka
stórskemmtilegt, við höfum yfir-
leitt safnað saman ýmsu dóti sem
við eigum og höldum að einhverjir
aðrir vilji frekar eiga, svo kaupum
við ýmsa hluti sem okkur finnast
fagrir eða skemmtilegir. Við vitum
ekkert hverjir eiga að fá þá fyrr en
pakkað er inn rétt fyrir jól. En þá er
mesta fjörið að tengja hlutina við
fólkið sem á að fá þá,“ segir hún.
Það er síðan fjölmennt á jólunum
hjá Áslaugu. „Á aðfangadag erum
við með fjölda manns í mat, bæði
fjölskyldu og oft vini. Nú er svo
komið að ekki er hægt að afgreiða
pakka á hefðbundinn hátt, því
opnum við þá reglulega frá því
boðið hefst og á meðan á borðhaldi
stendur. Góð aðferð til þess að njóta
enn betur. Mikið hlakka ég til!“
Aðventan hefst í jólabústað
Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúi nýtur lífsins með fjölskyldunni í bústað.
„Þessi bók er veisla“
Vigdís Grímsdóttir
Góðir siðir á aðventunni
Margir halda upp á siði og venjur á aðventunni. Elda sama matinn, grafa upp gamalt skraut sem
góðar minningar fylgja og halda fast í uppákomur með fjölskyldunni. Aðventan er tími minninga.
Manuela Ósk Harðarsdóttir skreytir
ekki bara húsið, líka sjálfa sig.
Fréttablaðið/Ernir
Karl Sigurðsson tónlistarmaður heldur stóra tónleika á ári hverju með baggalút.
Fréttablaðið/Ernir
Áslaug Friðriksdóttir segir aðventuna hefjast úti á landi, mandarínurnar eru teknar með í bústaðinn. Fréttablaðið/pjEtur
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
5 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r52 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
A
7
-C
3
0
4
1
7
A
7
-C
1
C
8
1
7
A
7
-C
0
8
C
1
7
A
7
-B
F
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K