Fréttablaðið - 05.12.2015, Síða 106
1. sæti
Dimma, spennusaga
eftir Ragnar Jónasson sem er
rísandi stjarna í glæpasagna-
heiminum. Kápan er eftir
Ragnar Helga Ólafsson sem
hefur hannað fjöldann allan
af frábærum bókarkápum í
gegnum tíðina.
Mjög vel heppnuð
og töff. Það er
einhver mystík í letrinu sem
lýsir titlinum svo vel.
Þessi finnst mér best og rétt á
undan Leiðin útí heim. Flott
týpógrafía en útgefandi hefði
alveg getað sleppt því að
troða þessum texta inn á sem
er gjörsamlega ofaukið.
Hrein og afdráttar-
laus og hæfir efninu
fullkomlega. Kemur ekki á
óvart að þessi er eftir besta
kápuhönnuð landsins.
Eitthvað svo
seiðandi og
spennandi kápa en samt svo
einföld.
Spennusagan Dimma er
fallegasta bókarkápa ársins 2015
Það ætti auðvitað ekki að dæma bókina eftir kápunni en engu að síður skiptir bókarkápa miklu máli, getur vakið
áhuga og skapað réttu stemninguna. Hér hefur sveit álitsgjafa tekið að sér að skoða úrvalið og skutla í álit á þeim
fallegustu og bestu árið 2015. Allt er þetta til gamans gert og segir auðvitað ekkert um gæði viðkomandi bóka.
Blýengill
Fallegust er
Blýengillinn,
þó að ég viti
ekki einu sinni
um hvað sú
bók fjallar.
Fislétt og
falleg.
Egilssögur
Egill Ólafs í
myndum sem
Jón forseti,
prestur, spil-
verkari, flagari
og þurs, alvöru
ljósmyndir en
ekki eitthvert
leiðinda graf-
ískt kenderí.
Nautið
Er þetta mat-
seðill?
Landssam-
band naut-
griparæktenda
smellti í flotta
ársskýrslu.
Leiðin út í heim
Hrifinn af
þessari, fær
toppeinkunn.
Einföld,
skemmtileg og
öllu snúið á
hvolf.
Komu talsvert til umræðu
Hildur
Sigurðardóttir
grafískur hönnuður
Hilmar Þorsteinn
Hilmarsson
grafískur hönnuður
Jakob Bjarnar
Grétarsson
blaðamaður
Jón
Kaldal
ritstjóri
Margeir Gunnar
Sigurðsson
bóksali
Kristjana
Guðbrandsdóttir
blaðamaður
Ólöf Birna
Garðarsdóttir
grafískur hönnuður
Ólöf
Skaftadóttir
blaðamaður
Þorsteinn Joð
Vilhjálmsson
kvikmyndagerðarmaður
Álitsgjafar Fréttablaðsins
1. sæti
Inn í myrkrið eftir Ágúst Borgþór
Sverrisson. Kápuhönnun eftir Pétur
R. Pétursson.
Hún stendur ekki út úr. Þreytt
og umbrotið er einhvern
veginn þannig að „Inn í“ sést ekki,
heldur bara „myrkrið“ og þá verður
þetta eins og bók eftir Stefán Mána;
Myrkrið, Húsið, Nautið, Slátrið, Skipið…
Sumar eru ekkert endilega
ljótar, smekkur manna er
misjafn. Nokkrar bókakápur eru
leystar með svo einföldum hætti að
þær gefa of lítið uppi. Sem dæmi má
nefna Myrkur Ágústs Borgþórssonar.
Æ, hef ég ekki séð þetta
1.000 sinnum áður?
2. sæti
Stóri skjálfti eftir Auði Jónsdóttur.
Kápuhönnun Lubbi slf.
Alveg ótrúlega tilþrifalítil
kápa, þurr og leiðinleg.
Eins og hönnuðurinn hafi ekki nennt
þessu. Og ef hönnuðurinn nennir
ekki að hanna kápuna af hverju ætti
maður að nenna að lesa? Auður ætti
að hundskamma útgáfuna fyrir
hörmuleg vinnubrögð.
Það eru svo miklir
vannýttir möguleikar í
þessari kápu. Þarna gæti verið
stórskemmtilegur leikur við titilinn
en er aftur á móti mjög óspennandi
og pínu eins og þetta sé uppkast
sem eigi eftir að klára.
2. sæti
Eitthvað á stærð við alheiminn, seinni hluti
ættarsögunnar eftir Jón Kalman Stefánsson.
Ragnar Helgi Ólafsson hönnuður tekur tvö
efstu sætin.
Dulúðug og seiðandi mynd sem
gerir mig forvitna. Leturval og
framsetning vel samsett og falleg heild.
Fallegt, ljóðrænt í stíl við það sem hann
hefur verið að gera.
3. sæti
Týnd í paradís eftir Mikael Torfason. Kápa
eftir myndlistarmanninn Jón Óskar. Eina
kápan sem flaug inn á lista yfir bestu og
verstu kápurnar.
Verk eftir Jón Óskar! Svalasta
myndlistarmanninn í bransanum.
Þetta er engin samkeppni. Verkið er retró og
hæfir efninu vel.
3. sæti
Týnd í Paradís eftir Mikael Torfason.
Kápa eftir myndlistarmanninn Jón
Óskar.
Þessi fellur algjörlega á
leturmeðferðinni. Eins og
myndskreytingin er skemmtileg og
örugglega lýsandi fyrir innihaldið þá
er þessi leturgerð eins og fyrir gamla
kúrekamynd og er bara ekki að
virka.
Þó að ég elski Jón Óskar
og flest hans verk, þá er
þetta letur það ljótasta sem ég hef
séð.
Fallegasta bókarkápan 2015
Ljótasta bókarkápan 2015
5 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r58 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
A
7
-F
E
4
4
1
7
A
7
-F
D
0
8
1
7
A
7
-F
B
C
C
1
7
A
7
-F
A
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K