Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 108

Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 108
Illugi Jökulsson fjallar um tvær orrustur á Indlandi í sinni síðustu flækju- sögugrein. Flækjusaga ✿ Ríki Afgana þegar stærst var Íran Afganistan Durrani ríki Afgana Pakistan Indland Nýja Dehlí Kabúl Íslamabad Panipat Tadjik istan Kyrgistan Kína Fergana-dalurÚsbekistan Túrkmenistan Þ að búa svo margir á Indlandi að borgin Panipat telst bara vera smáborg, hún er raunar í 151sta sæti yfir indverskar borgir að mannfjölda. Samt búa þar þrjú hundruð þúsund manns, nærri jafn margir og Íslendingar allir. Þetta er lágreist borg sem upphaf- lega óx upp í kringum blómlegan teppaiðnað en þjónar einnig frjó- sömu landbúnaðarhéraði þar um kring. Afurðir eru flestar fluttar suður á bóginn til ferlíkisins Nýju Dehlí, höfuðborgar Indlands, ell- efu milljón manna skrímslis sem er í hundrað kílómetra fjarlægð frá Panipat. Eina hundrað og tutt- ugu kílómetra í norðaustri ber Himalaja-fjöll við himin. Rætur fjallanna eru álíka langt frá Pani- pat og Hvolsvöllur er frá Reykja- vík. Örlagaríkustu orrusturnar Og hví er ég að eyða tíma í að segja hér frá borginni Panipat? Jú, svo vill til að við þessa kyrrlátu borg, þar sem yfirleitt ber fátt til tíðinda, þar hafa verið háðar tvær af sögu- legustu orrustum á Indlandi, gríð- arlegir bardagar sem réðu málum á svæðinu í áratugi og aldir á eftir, en það er til marks um hve lítið við á Vesturlöndum vitum um sögu Ind- lands að í bókum sem við skrifum um „örlagaríkustu orrustur sög- unnar“ þar er aldrei minnst orði á orrusturnar við Panipat. Sú fyrri var háð árið 1526. Þá hafði hreiðrað um sig í borginni fimmtán þúsund manna innrás- arher norðan úr Mið-Asíu, hann laut stjórn manns sem yfirleitt er kallaður Babúr og var mong- ólskrar ættar, fæddur í hinum fagra Fergana-dal sem nú tilheyrir Úsbekistan, Kyrgistan og Tadjik- istan. Babúr taldi sig afkomanda hins mikla Tímúrs sem hafði lagt undir sig Mið-Asíu og Miðaustur- lönd laust fyrir aldamótin 1400, og hann var ráðinn í að feta í fótspor hans. Hann kom sér upp öflugum her en var þó að lokum hrakinn frá Mið-Asíu af bandalagi fénda sinna, og ákvað þá að leita fyrir sér suður á Indlandi. Indland skiptist þá í nokkur sjálfstæð smáríki – ef smá- ríki er þá rétta orðið um landflæmi sem flest voru bæði viðáttumeiri og mun fjölmennari en stærstu ríki Evrópu, svo dæmi sé tekið – en í Indusdal og í norðurhluta Ind- lands, þar á meðal í Dehlí, hafði ríki Lodí-ættarinnar verið við lýði í sjötíu ár. Lodíarnir röktu ættir sínar til Afganistan og voru mús- limar. Babúr lagði nú allt undir þegar hann einsetti sér að knésetja Lodí- ríkið með einu hnitmiðuðu höggi. Hann leiddi her sinn yfir afgönsku fjöllin og til Panipat og beið þar eftir gagnárás Ibrahíms Lodí sol- dáns sem þótti djarfur herforingi en kannski helstil óþolinmóður. Fílar og fallbyssur Og Lodí mætti frá Dehlí til Pani- pat þann 21. apríl 1526 og hafði þrisvar sinnum fjölmennari her en Babúr frá Fergana, og skal sér í lagi vakin athygli á að Lodí tefldi fram allt að þúsund stríðsfílum, rétt eins og tíðkast hafði í indverskum herj- um allt frá því Indverjar vörðust Alexander mikla nærri t vö þúsund árum áður. En Babúr átti heldur betur svar við fílunum, því hann beitti stórskotaliði og byssuskytt- um með framhlaðninga í meiri og markvissari mæli en nokkurn tíma hafði áður sést í veröldinni. Þarna í upphafi sextándu aldar hafði Evrópa nefnilega alls ekki neina frumkvæðni eða forystu í hernaðartækni; ekkert Evrópuríki átti um þær mundir byssusveitir sem hefðu staðist skyttum Babúrs snúning. Og þá ekki lengur Lodí eða fílar hans, og fljótlega eftir að orrustan hófst við Panipat brast flótti í lið Dehlí-manna og ridd- aralið Babúrs rak svo flóttann og brytjaði niður skelfingu lostna dátana á flóttanum. Meðal þeirra er féllu var Ibrahím Lodí sjálfur og var nú ættarríkið á svipstundu úr sögunni. Með þessari einu orrustu við Panipat gerbreyttist saga svæðis- ins. Babúr varð fyrsti keisari í veldi Mongóla sem náði brátt yfir mest- allt hið mikla flæmi Indlands og kallast í munni fólks Mógúla-ríkið. Eru af því stórfenglegar sögur og var veldi Mógúla áreiðanlega hið öflugasta í sögunni á sautjándu öld og hefðu öflugustu Evrópu- ríkin ekki átt séns í stórskotalið Mógúla-keisaranna þegar her þeirra var öflugastur. Á átjándu öldinni fór hins vegar allt að breytast. Æ fleiri demantar söfnuðust í kórónur Mógúlanna en þróttur og frumkvæði í ríkinu fóru minnkandi. Stöðnunar fór að verða vart. Á sama tíma óx þróttur Evrópuríkja í kjölfar aukinna sigl- inga og uppgangs kapítalismans sem sleppti margvíslegum kvik- indum lausum, bæði til góðs og ills. Alla öldina sljákkaði í hinum múslimsku Mógúlum en nýtt veldi hindúa teygði sig æ lengra út frá upphafsstöðvum í Maratha á miðju Indlandi. Svo var komið um miðja átjándu öld að keisarar Mógúla í Dehlí voru ekki annað en demantsskreyttar silkihúfur en leiðtogar Maratha fóru í raun með stjórnina. Framgang sinn áttu þeir að hluta til að þakka andstöðunni við útlendinga sem voru farnir að krækja í æ fleiri spildur við sjóinn og langt fram á öldinni voru Mar- atha-menn engir eftirbátar Eng- lendinga í sjóhernaði. Allt í handaskolum En einmitt þegar segja má að Ind- verjar hafi þurft mest á öflugu og samstæðu Maratha-veldi að halda til að sporna gegn ásælni útlend- inga, þá fór allt í handaskolum. Eins og ég sagði frá í flækjusögu fyrir hálfum mánuði reis nánast upp úr þurru nýtt herskátt stríðs- veldi í Afganistan upp úr miðri átjándu öld undir forystu Ahmad Shah Durrani og 14. janúar 1761 stefndi hann herjum sínum til úrslitaorrustu gegn Maratha-rík- inu, og líkt og fyrir 235 árum var enn barist við Panipat norður af Dehlí. Og þetta varð engin smáræðis orrusta. Kannski hafði annar eins mannfjöldi aldrei áður tekist á á einum degi í sögunni. Hátt í tvö hundruð þúsund börðust daglangt á frjósömu flatlendinu kringum Panipat. Foringi Maratha-manna hafði verið tregur til að leggja til orrustu en menn hans grátbáðu um að fá að berjast. Hinn afganski her Durranis hafði rofið birgða- leiðir Maratha-manna mánuði fyrr og þeir voru að deyja úr hungri; þá töldu þeir skárra að berjast og verða vopndauðir. Og vissulega varð ótrúlega mörgum þeirra að ósk sinni. Eftir hræðilega stórskotahríð og hjaðn- ingavíg fótgönguliðs réði riddara- lið Afgana að lokum úrslitum og flótti brast á lið Maratha-manna. Allt að áttatíu þúsund féllu í orr- ustunni sjálfri en eftir að henni lauk tóku við ægileg fjöldamorð. Stríðsfangar af trú hindúa sem höfðu gefist upp voru hlekkjaðir og síðan afhausaðir í tugþúsunda- tali. Margir þeirra fengu vatnssopa og lúku af hrísgrjónum áður en þeim var slátrað, líklega átti það að vera til merkis um miskunn- semi. Hermenn Afgana gengu svo berserksgang inni í borginni Panipat, börn allt niður í fjór- tán ára voru hálshöggvin fyrir framan foreldra sína, konum var nauðgað í þúsundatali og ótal margar steyptu sér í brunna eða gengu með öðrum hætti fyrir ætt- ernisstapa til að sleppa við þau örlög. Breskur blaðamaður sem horfði upp á blóðbaðið giskaði á að rúmlega sjötíu þúsund manns hefðu týnt lífi í fjöldamorðum eftir orrustuna, það er eins og nálega hver einasti kjaftur á troðfullum fótboltavellinum Old Trafford. Og tuttugu og tvö þúsund konur og börn voru svo reidd í þrældóm til Afganistan í bambusbúrum, og þarf vart að orðlengja að á leiðinni þangað norður í fjöllin hafa ótal- margir hinna verðandi þræla látið lífið. Ahman Shah Durrani sem orti fögur ástarljóð í frístundum lét sér þetta vel líka. Og hér vitum við fátt um þennan hrylling. Lexía Breta og Rússa Á endanum þornaði blóðið í moldinni við Panipat eða seig niður í svörðinn. Þessi seinni orr- usta varð afdrifarík ekki síður en sú fyrri. Hið öfluga ríki Durranis í fjöllunum í Afganistan varð að vísu ekki langlíft og hörfaði fljótlega frá Indlandi. En Maratha-ríkinu hafði verið greitt þungt högg og þaðan í frá var ekkert ríki á Indlandi þess umkomið að sporna gegn inn- rásum Breta sem færðu sig æ meira upp á skaftið uns þeir réðu öllu Indlandi um miðja nítjándu öld. En Bretar þóttust líka hafa sína lexíu að læra af orrustunum við Panipat. Þótt þeir næðu Indlandi gleymdu þeir ekki sögunni – inn- rásarherjunum tveim sem komið höfðu norðan úr afgönsku fjöllun- um og sótt í átt til Dehlí og varnar- línan við Panipat hafði brugðist í bæði skiptin. Og ekki síst þess vegna gátu Bretar ekki látið Afgan- istan í friði á nítjándu öld, þaðan töldu þeir ills von á hverri stundu. Og Rússar, sem brutu undir sig Mið-Asíu á nítjándu öld, höfðu líka tekið eftir því að um fjalla- dalina í Afganistan var leið suður til Indlands. Blóðið í jörðinni við Panipat Æ fleIrI demantar söfnuðust í kórónur mógúlanna en þróttur og frumkvÆðI í ríkInu fór mInnkandI. stöðnunar fór að verða vart. 5 . D e s e m b e R 2 0 1 5 L A U G A R D A G U R60 h e L G i N ∙ F R É T T A b L A ð i ð 1 1 -1 2 -2 0 1 5 0 9 :2 9 F B 1 3 6 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 A 7 -F 9 5 4 1 7 A 7 -F 8 1 8 1 7 A 7 -F 6 D C 1 7 A 7 -F 5 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 3 6 s _ 4 1 2 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.