Fréttablaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 114
Brandarar
Bragi Halldórsson
177
Konráð horfði hugsi á gátuna. „Hverskonar gáta er nú þetta?“
„Örugglega eitthvað til að rugla mann og plata,“ sagði Kata
snúðug eins og venjulega. „Alltaf verið að plata mann,“ bætti
hún við. Lísaloppa las leiðbeiningarnar fyrir gátuna. „Þetta er
orðagáta og hér stendur,“ las hún. „Búið er að rugla stöfunum
í nöfnum nokkra fuglategunda í hverri línu. Ef þú getur raðað
þeim rétt í kassana, mynda stafirnir í hringjunum nafn fugls ef
lesið er niður.
Getur þú ráðið orðaruglið og séð hvaða fuglar þetta eru?
ÓLRMU
LYISMLR
FLÁT
VMURÁ
FRHNA
LAUSN:VALUR
ALLAR HELGAR
365.is Sími 1817
Afinn sem allir elska og fjörugu vinkonurnar Skoppa
og Skrítla skemmta börnum og foreldrum á laugardags-
og sunnudagsmorgnum á Stöð 2.
HELGARFJÖR FYRIR FLOTTASTA FÓLKIÐ
Siggi við Kalla vin sinn. „Viltu leika
við nýja hundinn okkar?“
Kalli: „Æ, ég veit það nú ekki. Bítur
hann?“
Siggi: „Það er einmitt það sem ég
þarf að rannsaka.“
Gestur: Góðan daginn, ég er kom-
inn til að stilla píanóið þitt.“
Húsráðandinn: „Nú, ég hef ekki
pantað neina píanóstillingu.“
Gestur: „Ég veit það vel, það var
nágranni þinn sem pantaði still-
inguna.“
Kennari við nemanda: „Stafaðu
orðið rúm.“
Nemandi: „R Ú M M.“
Kennarinn: „Slepptu öðru M-inu.“
Nemandinn: „Hvoru?“
Hvað sagði svo hringurinn við þrí-
hyrninginn?
„Ái, þú stingur!“
Svo var það Skotinn sem var svo
nískur að hann hló eingöngu á
kostnað annarra.
Foreldrar jólasveinanna, þau Grýla og Leppalúði,
eru heldur ógeðfelld hjón. Grýla er stór og ljót en hún
er oft á ferli fyrir jólin að leita að óþægum krökkum.
Yfirleitt finnur hún samt enga því öll börn eru svo góð.
Bóndi hennar Leppalúði er heldur minni og væskilslegri
en kona hans. Hann hangir mest heima í hellinum og er
ósköp latur og værukær.
Grýla er hins vegar skörungur.
Ómar Ragnarsson lýsti matseldinni hjá henni á þessa leið:
Og matseldin hjá Grýlu greyi
er geysimikið streð.
Hún hnoðar deig og stórri sleggju
slær hún buffið með.
Með járnkarli hún bryður bein
og brýtur þau í mél
og hrærir skyr í stórri og sterkri
steypuhrærivél.
Ó Grýla, ó Grýla, ó Grýla
í gamla hellinum.
Á sunnudaginn klukkan 14 er komið að árlegum við-
burði í Þjóðminjasafninu þar sem Grýla og Leppalúði
skemmta gestum. Einnig ætlar söngkonan Hafdís Huld
að koma fram.
Skemmtunin er ókeypis og allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Grýla og Leppalúði komin á kreik
„Ég fer oft í jeppaferðir með fjölskyldunni, leik mér úti í náttúrunni og lendi í ævintýrum,“ segir Heba sem hér er í einni slíkri
ferð í Þórsmörk. FrÉttablaðið/VilHelm
Hvað heitir þú og hvað ertu
gömul? Heba Sól Stefánsdóttir
og er 11 ára.
Hvað er það fyrsta sem þú
manst eftir, Heba Sól? Ég man
í leikskóla þegar vinkona mín
var að borða spagettí og það
kom spagettí út úr nefinu á
henni og ég vildi vera eins og
tróð spagettí upp í nefið á mér.
Hver er uppáhaldsnámsgrein-
in þín í skólanum? Stærðfræði.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Það er margt;
teikna, mála, föndra, tefla skák,
syngja í kór, spila á píanó
og vera í blaki en ferðalög með
fjölskyldu og vinum, útivera og
skíðamennska eru í mestu upp-
áhaldi. Ég fer oft í jeppaferðir
með fjölskyldunni og stundum
með pabba í vinnunni. Þá sé
ég fullt af nýjum stöðum, er úti
að leika í náttúrunni, spila og
lendi í ævintýrum.
Er einhver staður á Íslandi í
uppáhaldi? Eiginlega eru þeir
margir en einn þeirra er í miklu
uppáhaldi, það eru Tindfjöll.
Þar eigum við skála og við
komum yfirleitt þegar það er
snjór og stundum kemur pabbi
með vélsleða og dregur okkur
upp brekkurnar og við skíðum
niður. Svo er líka svo kósí í
skálanum.
Geturðu sagt frá einhverju
ævintýri? Eitt sinn þegar ég fór
með pabba inn í Landmanna-
laugar þá vorum við tíu tíma
á leiðinni og það var 22 stiga
frost. Við ætluðum að hjálpa bíl
sem var fastur en lentum sjálf
á bólakafi í krapa og festumst.
Við sátum föst í þrjá tíma en
vorum svo heppin að hinn
bíllinn var búinn að kalla í
hjálparsveit sem kom og dró
okkur upp. Þegar við komum
var klukkan orðin tvö um nótt.
Ertu byrjuð að skreyta fyrir
jólin? Við erum búin að setja
jólaljós úti en skreytum meira á
næstu dögum.
Lentum á bólakafi
í krapa og festumst
Heba Sól Stefánsdóttir er ellefu ára en hefur ferðast meira um Ísland
en margir á hennar aldri. Útivera og skíðamennska eru í uppáhaldi
og líka jeppaferðir í óbyggðum sem stundum eru ævintýralegar.
5 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r66 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
A
7
-B
E
1
4
1
7
A
7
-B
C
D
8
1
7
A
7
-B
B
9
C
1
7
A
7
-B
A
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K