Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 118

Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 118
S tríðsárin frá 1938 til 1945 eru skarpasti mótunar-tími íslensks samfélags frá upphafi. Fyrir skömmu kom út bókin Stríðsárin 1938-1945 eftir Pál Baldvin Bald- vinsson. Bókin er mikil að vöxtum og í henni koma fram ýmsar nýjar og forvitnilegar upplýsingar auk fjölda áður óbirtra ljósmynda. Verkið var tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrr í vikunni. Páll Baldvin segir að hann hafi byrjað á þessu verkefni í apríl fyrir þremur árum. „Þetta var gömul hugmynd sem var búin að liggja hjá Jóhanni Páli útgefanda í nokkuð mörg ár og hann tók svo af skarið og réð mig til verksins. Ég taldi eðlilegast að þetta væri byggt upp eins mikið á samtímaheimildum og hægt væri en að sumu leyti yrði snúið aftur í það form sem Valdimar Jóhanns- son og Gils Guðmundsson settu upp þegar þeir hófu að gefa út Öldina okkar 1951. En þar eru náttúrulega ekki nema kannski tíu síður lagðar undir hvert ár og markmiðið var að höggva í sama knérunn en hafa þetta miklum mun ítarlegra. Viðmiðið væri um hundrað síður á stærstu árin en síðan bólgnaði verkið út og á miðju vinnslutímabili var ljóst að það þyrfti að skera niður fyrri hlutann, árin 1941 og 1942 voru mjög efnismikil. Eftir þau minnk- aði umfangið, það eru minni sam- félagsátök og styrjöldin færist fjær okkur eftir því sem lengra líður þó miklir flutningar fari um Ísland á flugflotanum til innrása á megin- landið. Meðan stríðið var háð í Norður- Atlantshafinu og undan Noregsströndum var þetta afskap- lega þungt og nálægt okkur en eftir innrásina í Evrópu þá færist ófriðurinn fjær.“ Herbúðir nær og fjær Páll Baldvin segir að eftir að Bandaríkjamenn komu hingað árið 1941 hafi orðið miklar breyt- ingar. „Málið er að Bretar reistu sínar herbúðir alveg ofan í byggð- inni, einfaldlega til að spara flutn- inga og uppbyggingu á vegum, en bandaríska herstjórnin fór hins vegar strax í að byggja sínar her- stöðvar úr alfaraleið og hélt þeim meira einangruðum. Um leið og það gerðist var herinn ekki jafn mikið ofan í byggðinni eins og var á því eina og hálfa ári sem Bretar og Kanadamenn voru hérna með landher. Samgangurinn minnkaði þó ekki enda Bandaríkjamenn miklum mun fleiri en fyrstu sveit- irnar sem komu hingað 1940. Þjónusta jókst því að miklum mun og með komu Bandaríkja- manna hefst mikið velsældar- skeið efnahagslega þó svo fólk hafi verið byrjað að flykkjast á mölina fyrir þann tíma. Það var meira að segja orðið þröngt um húsnæði í Reykjavík fyrir komu Bretanna en fátæktin var svo mikil í sam- félaginu að það voru engin efna- hagsleg tök á uppbyggingu. Þegar Bretarnir komu þá kusu þeir að leigja íbúðir fyrir sína yfirmenn, enda þeir ekki að fara að húka í óeinangruðum bröggum með óbreyttum hermönnum, þá voru þeir með tugi íbúða á leigu. Þann- ig að stéttaskiptingin sem var í breska hernum á þeim tíma, sem breytti svo breskum stjórnmálum í kosningunum 1945, var mjög mikil. Stéttamunurinn á milli yfirmanna og óbreyttra var gríðar- legur.“ Átök og ýfingar Í bókinni velur Páll Baldvin þá leið að fjalla einnig um einstaklinga á meðal alþýðunnar og leitast þann- ig við að gefa sem besta heildar- mynd af samfélaginu á þessum árum. „Mörgum hefði þótt eðlilegt að halda sig bara við hina stóru opinberu atburði, m.a. í samskipt- um herliðs og almennings sem og stjórnvalda sem eru vissulega stór hluti af þessari sögu. En það var mér keppikefli að ná inn minn- ingum og lýsingum á lífi alþýðu- fólks; karla, kvenna, unglinga og barna. Hernámið var svo alltum- lykjandi í íslensku þjóðlífi að það snerti alla og víða um land. Þannig voru til að mynda börn frá þéttbýl- um svæðum flutt svo hundruðum skipti frá bæjunum til sveitanna vegna ótta við bæði gashernað og lofthernað. Enda var flug þýskra véla hér yfir nánast daglegur við- burður lengi vel og því rökrétt að óttast að hér yrði sprengjufall. Því var ungum börnum komið úr bænum og eins til þess að forða þeim frá samskiptum við herliðið. Því her er alltaf her þó svo dagleg umgengni við herliðið hafi lengi vel verið með afar friðsamlegum hætti. Það er ekki fyrr en stærsti hlut- inn af herliðinu er bandarískt sem fara að verða árekstrar á milli heimamanna og gestanna eins og Hermann Jónasson kallaði þá. Sérstaklega verða áberandi lík- amsárásir á konur og einnig átök á milli íslenskra karlmanna og her- manna, bæði með skotvopnum og hnífum. Þessar ýfingar voru nánast regla á þessum árum enda var á götunum þriggja þjóða lögreglu- lið, bandarískt, breskt og íslenskt, og eftir því sem velferðin eykst þá eykst skemmtanahald og áfengis- neysla bæði hjá Íslendingum og hermönnunum og því fylgdu óneitanlega aukin átök.“ Gríðarleg samfélagsbylting Páll Baldvin bendir líka á að far- skipahluti þessarar sögu sé einnig dæmi um eitthvað sem við höfum illa náð utan um. „Það var ótrú- legur straumur af skipum hingað frá því síðla árs 1940 og allt til árs- loka 1944. Á þessum tíma voru Reykjavík, Akureyri og Seyðis- fjörður mjög athafnasamar hafnir bæði fyrir farskip og herskip og hingað streymir ótrúlegur fjöldi af skipum. Hvað varðar átökin í hafinu höfum við í gegnum tíðina ein- blínt mikið á þau átök sem íslensk skip lentu í, m.a. einfaldlega vegna skorts á gögnum. En á síðustu árum hefur netið opnað gagna- banka sem gjörbreyta þessu og þar á meðal er vefur sem hefur skoðað kafbátaferðirnar þýsku og hefur aðsetur í Hafnarfirði og Guðmund- ur Helgason stýrir. Fleiri slíka alþjóðlega vefi er að finna m.a. í Bretlandi og Noregi og aðgengið að þeim upplýsingum hefur breytt gríðarlega miklu. Fram koma upp- lýsingar um afdrif skipa, farm, björgunarafrek Íslendinga og skip- verja sem var komið með hingað vegna sjó skaða og margt fleira.“ Þetta er á meðal þeirra nýju upplýsinga sem koma fram í þessu stóra verki eftir Pál Baldvin sem bendir á að áhrifin á íslenskt sam- félag hafi verið gríðarleg. „Þetta breytti samfélaginu frá því að vera mjög staðnað fiskveiði- og land- búnaðarsamfélag í það að hér var hrundið af stað lífsgæða- og lífs- háttabyltingu sem hefur staðið óslitið síðan. Við förum frá því að vera fátæklingar, allslaust barn- ingsfólk, breytumst í bjargálna launamenn sem gera kröfur um lífsgæði sem áður voru flestum ókunn: í húsnæði, fatnaði, mat og munaðarvöru. Stríðið skóp hér nýtt samfélag.“ Þetta breytti samfélaginu frá Því að vera mjög staðnað fiskveiði- og landbúnaðar- samfélag í Það að hér var hrundið af stað lífsgæða- og lífsháttabyltingu sem hefur staðið óslitið síðan. Stríðið skóp hér nýtt samfélag í bókinni stríðsárin 1938-1945 eftir Pál baldvin baldvinsson er fjallað ítarlega um róttækustu mótunarár íslensks samfélags. Bandarískir hermenn með með skráningarnúmer á hjálmunum á leið frá Reykjavík á vígvelli meginlands Evrópu 26. júní 1944. Þekkt vetrarmynd úr Trípolí-kampi við Suðurgötu í Reykjavík. Pósthúsið í Camp Hálogaland þar sem reis stór braggi sem síðar var kunnur sem íþróttahúsið Hálogalanfd. Páll Baldvin Baldvinsson vann í þrú ár að Stríðsárabókinni. FRéTTaBlaðið/GVa Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 5 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r70 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð menning 1 1 -1 2 -2 0 1 5 0 9 :2 9 F B 1 3 6 s _ P 1 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 1 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 A 7 -A 5 6 4 1 7 A 7 -A 4 2 8 1 7 A 7 -A 2 E C 1 7 A 7 -A 1 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 3 6 s _ 4 1 2 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.