Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 136
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Eflaust var góð meining á bak við frístundastyrki sveitar-félaga. En lokaniðurstaðan er
samt sú að búið er að hólfa höfuð-
borgarsvæðið niður í eins konar
tollsvæði með frístundir. Þeir sem
starfa með krökkum þurfa nú ekki
bara að sannfæra foreldra um ágæti
starfsins heldur einnig skriffinna og
pólitíkusa sex bæjarfélaga. Sem vita
oft betur.
Pole fitness? Klám! Box? Fyrir
unglinga? Æfa með FH? Hvað er að
Stjörnunni? Og svo framvegis. Um
daginn bannaði Hafnarfjörður for-
eldrum að nota frístundastyrki til
að borga fyrir móðurmálskennslu
tvítyngdra barna um helgar, með
þeim rökum að nám væri ekki tóm-
stund. Svo undrast menn það að
innflytjendur nýti peningana síður.
Menn setja á ýmsar hömlur sem
ýta fólki í faðm rótgróinna félaga
í sama bæ. Sumar hömlurnar eru
tæknilegar: „Nei, þetta félag er ekki
inni í kerfinu. Þú verður að koma
með reikning og við borgum eftir
mánuð.“ En stundum segja menn
beinlínis: Við borgum ekki fyrir
KR, þú verður að æfa með FH. Ef
krakkarnir vilja ekki stunda neinar
skipulagðar tómstundir (hugsa
sér) þá falla styrkirnir niður. Fólk
borgar þá í reynd hærri skatta. Hvar
ertu, Frístundafélag zúista?
Allt byggir þetta á hugmyndinni
um að íþróttaþátttaka barna forði
þeim frá vímuefnum. Þessu trúa
margir. En sumar rannsóknir benda
raunar til hins gagnstæða (sér-
staklega hvað varðar hópíþróttir).
Lestur, tölvuleikir eða óskipulagt
dútl er ekki hættulegra en fót-
bolti. Það á ekki að sekta foreldra
ef börn þeirra sneiða hjá skipu-
lögðu tómstundastarfi. Afnemum
þessa styrki. Já, það er gaman að
fá pening. En margir bæjarsjóðir
standa illa. Og peningunum fylgja
oft hömlur og þvinganir sem best
væri að losna við.
Klink með
skilyrðum
Pawels
Bartoszek
Bakþankar
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
A
7
-A
0
7
4
1
7
A
7
-9
F
3
8
1
7
A
7
-9
D
F
C
1
7
A
7
-9
C
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K