Öldrun - 01.10.2002, Side 7
7ÖLDRUN – 20. ÁRG. 2. TBL. 2002
frá sínum heimalöndum t.d. hjúkrunarfræðingur, ljós-
mæður, læknir, vélsmiður, skrifstofumenntun, iðju-
þjálfi og dýralæknir. Þessi starfsréttindi eru metin eftir
föngum og fólk hvatt til að taka viðbótarnám og fá við-
urkenningu fyrir bættum réttindum sínum hér á landi.
Sem dæmi má nefna að hjúkrunarfræðingur frá Bras-
ilíu fékk réttindi sín viðurkennd í lok ágúst 2002. Sú var
með full réttindi í sínu heimalandi. Það tók heilt ár að
fá þau viðurkennd hér á landi.
Lögð hefur verið áhersla að kynna menningu hinna
ýmsu þjóðerna fyrir heimilismönnum og starfsfólki.
Haldnir hafa verið þjóðardagar frá Taílandi, Filipp-
seyjum og Póllandi og næsti þjóðardagur er ráðgerður
frá Suður Ameríku þar sem starfsmenn frá Brasilíu,
Perú, Paragvæ og Hondúras leggja sitt af mörkum.
Þessir þjóðardagar hafa tekist mjög vel og hefur heim-
ilisfólki líkað vel að sjá skrautlega þjóðbúninga, þjóð-
lega dansa og aðra kynningu auk þess að bragða á fjöl-
breytilegum mat frá hinum ýmsu löndum.
Eins og við önnur hjúkrunarheimili þurfa umsækj-
endur um hjúkrunarpláss að hafa farið í gegnum fag-
legt mat, svo kallað vistunarmat aldraðra. Þar er metin
þörf fyrir aðstoð og aðhlynningu. Þeir sem komið hafa
til vistar á síðari árum hafa allir verið metnir í mjög
brýnni þörf fyrir hjúkrun og vaxandi hluti þeirra hafa
komið beint frá legudeildum sjúkrahúsanna.
Droplaugarsataðir eru staðsettir í hjarta borgar-
innar við Snorrabraut. Byggingin sjálf er L-laga og
myndar gott skjól. Þar er fallegur garður og í vestur-
horni hans er matjurtargarður, gróðurhús og upphit-
aðar stéttar. Til að viðhalda heimilisbragnum eru gerð
heimilisverk með þátttöku vistmannanna. Teknar voru
Fiskabúrin setja hlýlegan svip á setustofuna.
Setustofan.