Öldrun - 01.10.2002, Qupperneq 16

Öldrun - 01.10.2002, Qupperneq 16
16 ÖLDRUN – 20. ÁRG. 2. TBL. 2002 lyndi gagnvart viðhorfum skjólstæðinganna, hvort við miðum við eigin veruleika þegar við komum þekkingu okkar á framfæri eða hvort við nálgumst skjólstæðing- ana þar sem þeir eru (Kierkegaard, 1848). Hvort tveggja eru mikilvægir þættir í samskiptum starfsfólks við aldraða er dvelja á hjúkrunarheimilum. Flestir þátttakendur í rannsókn Sigrúnar töluðu um hversu mikilvægt væri að eiga góð samskipti á vinnu- stað og vildu efla þau þótt misjafnlega gengi að ná því markmiði eins og einn viðmælenda lýsti: ,,… mannleg samskipti, ég hefði viljað gera þau eðlilegri meðal fólks- ins“. Lítil eða neikvæð samskipti sköpuðu vanlíðan hjá starfsmönnunum en góð samskipti höfðu upplífgandi og heilsueflandi áhrif. Einn þátttakenda rannsóknar- innar talaði um bætta líðan í vinnunni eftir langt tíma- bil sem einkenndist af vanlíðan og svefnerfiðleikum. Þessi bætta líðan kom í kjölfar hvetjandi og hlýlegra samskipta við nýjan yfirmann: ,,Svona lyftist maður upp af því að maður fer að finna að maður á heima hérna, ... og ég fór að ná því að sofna og líða betur“. Fleiri þátt- takendur rannsóknarinnar höfðu svipaða sögu að segja. Nálægð, traust og virðing í samskiptum var það sem þátttakendur rannsóknarinnar mátu mest og er það í takt við kenningu Kanter (1979) um styrkjandi stjórnun á vinnustað (organisational empowerment). Samskipti starfsfólks og aldraðra á hjúkrunarheimilum Uppörvandi samskipti, traust og virðing í sam- skiptum eru lykilþættir í niðurstöðum rannsóknar Ingi- bjargar Hjaltadóttur (2001) um lífsgæði á hjúkrunar- heimilum. Þar kemur fram að samskipti hinna öldruðu íbúa við starfsfólk var einn af þeim þáttum sem gamla fólkið taldi að hefði áhrif á lífsgæði sín. Jafnframt töldu íbúarnir að viðurkenning starfsfólksins á því að þeir væru enn einstaklingar væri mikilvæg. Rannsókn Ingi- bjargar var eins og áður sagði gæðabundin og byggði á viðtölum við átta aldraða einstaklinga sem dvöldu á tveimur hjúkrunarheimilum. Aldraðir sem dvelja á hjúkrunarheimilum eru í flestum tilfellum mjög farnir að líkamlegri sem andlegri heilsu. Þeir þurfa því mikla og stöðuga aðstoð en það setur gamla fólkið í mjög við- kvæma og erfiða stöðu gagnvart starfsfólkinu.Viðhorf starfsfólks og samskipti þess við aldraða skjólstæðinga hefur því mikil áhrif á líðan og lífsgæði þeirra. Hlýleg samskipti og virðing fyrir einstaklingnum Í niðurstöðum rannsóknar Ingibjargar kemur fram að viðmælendur hennar höfðu í flestum tilfellum góða sögu að segja af samskiptum sínum við starfsfólk. Þegar eitthvað hefði mátt betur fara í framkomu starfs- fólksins bar gamla fólkið blak af því og benti á að starfið væri erfitt og að auðvitað væru menn misjafnir. Áhersla var lögð á að starfsfólkið væri hlýlegt eins og ein gömul kona sagði: „Mér þykir mikilvægast fram- koma starfsfólksins… að það komi hlýlega fram og reyni að skilja mann, það geri það nú margt“. Annar viðmæl- andi lagði einnig áherslu á að starfsfólkið væri það sem skipti mestu máli á hjúkrunarheimilinu, ekki hús- næðið og var jafnframt þakklátur fyrir það hvernig starfsfólkið reyndi að verða við sérstökum óskum hans um umönnun. Fleiri aldraðir viðmælendur sögðu frá tilteknum viðvikum sem starfsfólkið gerði fyrir það sem ekki samræmdist „rútínu“ hjúkrunarheimilisins. Það að starfsfólkið braut venjur hjúkrunarheimilisins eða lagði sig í líma við að koma til móts við þarfir þess var sem viðurkenning fyrir gamla fólkið á að það væri enn einstaklingar í augum annarra. Þess konar viður- kenning af hálfu starfsfólksins var mjög mikilvæg þar sem sumum fannst sem þeir ættu á hættu að hverfa inn í fjöldann á hjúkrunarheimilinu. Fáir til að tala við Þegar aldraður einstaklingur flytur inn á hjúkrunar- heimili eða er orðinn mjög heilsuveill skerðast ýmis tengsl sem hann hefur haft við aðra í þjóðfélaginu. Dýrmætustu samskiptin eru þá við fjölskylduna og starfsfólk hjúkrunarheimilisins. Í okkar nútíma þjóðfé- lagi þar sem allir hafa mikið að gera er lítill tími til að sinna öldruðum ættingjum þó að fólk sé allt af vilja gert. Það er því óhjákvæmilegt að mestu samskiptin verði við þá sem eru innan veggja hjúkrunarheimilis- ins. Þátttakendur í rannsókn Ingibjargar höfðu lítið eða ekkert samband við aðra íbúa á hjúkrunarheimilinu. Það var vegna þess að íbúarnir voru oft illa á sig komnir andlega, áttu ekkert sameiginlegt eða áttu erf- itt með tjáskipti eða eins og einn viðmælandi sagði: „Ég hef nú lítið kynnst. Því það [íbúarnir] er svona illa á sig komið margt, það heyrir illa…“. Mestu samskiptin voru því við starfsfólk hjúkrunarheimilisins og því afar brýnt að þau samskipti væru vinsamleg. Sérstakt samband skjólstæðinga og starfsfólks Gamla fólkið kynntist starfsfólkinu og suma kunni það betur við en aðra og sömuleiðis gerði það mismun- andi miklar kröfur til starfsfólksins eftir menntun þess. Í rannsókninni kemur fram að þátttakendur höfðu sér- stakar væntingar til hjúkrunarfræðinganna þegar þeir voru veikir, leið illa andlega eða þegar þeir töldu dauð- ann nálgast. Ein gömul kona var þess fullviss að hjúkr- unarfræðingarnir hennar myndu styðja hana þegar dauðann bæri að garði, en hún segir svo frá: „Ég held að það sé voðalega gott ef hjúkrunarfræðingur… sem er menntaður og skilur eitthvað gamalt fólk geti tekið af manni óttann eða svoleiðis … ég segi fyrir mitt leyti að ég vil gjarnan fara að deyja … ég held undir eins og ég finn það að ég væri að deyja … þá myndi koma yfir mig angist… en það er ábyggilegt að það þarf að styrkja gam- alt fólk engu síður heldur en annað fólk“. Hún þekkti

x

Öldrun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.