STARA - 16.04.2015, Blaðsíða 30
Í dag virðist eins og SÍM hafi alltaf verið til og að hinar
miklu rimmur á milli myndlistarmanna um strauma og
stefnur hafi aldrei átt sér stað. Því er vel til fundið að rif ja
upp tilurð Sambands íslenskra myndlistarmanna sem var
stofnað fyrir rétt rúmum 30 árum.
S
T
A
R
A
n
o
.3
1
.T
B
L
2
0
15
30
Það er nokkuð langur tími í ævi hvers manns en
engan veginn í tímatali listarinnar sjálfrar. Í
þessum hugleiðingum mínum mun ég fara stutt-
lega yfir forsögu og tilurð SÍM, sem nú blómstrar
sem aldrei fyrr.
Það er ekki hægt að rifja upp stofnun SÍM nema
að minnast á Hagsmunafélag myndlistarmanna
(HM), sem í dag er flestum gleymt og þeir sem
yngri eru vita kannski ekki að hafi nokkurn tíma
verið til. HM var stofnað vegna þess að flestum
ungum framsæknum myndlistarmönnum var neit-
að um inngöngu í Félag íslenskra myndlistarmanna
(FÍM). Ástæðan var sú að þeir stunduðu ekki þá
list sem félagsmönnum var þóknanleg. Líklega er
erfitt fyrir suma að skilja það í dag, en á þessum
tímum var allt annað þjóðfélagsmynstur og landið
okkar talsvert einangrað frá umheiminum hvað
myndlistina varðaði og líklega aðrar listir líka.
Ungir listamenn fylgdust þó vel með og bæði
kynntu sér og fundu innra með sér nýja strauma
sem ólguðu í hinum vestræna heimi. Það varð
oft mikið þras um hugmyndafræði og stefnur
og eftir áralöng átök ákvað hópur af þessum
,,utangarðsmönnum’’ að reyna að sameinast og
nýta kraftana í að byggja upp betra listalíf hér á
landi. Því var Hagsmunafélag myndlistarmanna
stofnað í þeim tilgangi að skjóta skjólshúsi
yfir ,,landflótta’’ myndlistarmenn og sameina
öll félögin undir einn hatt. Einnig var í lögum
félagsins klásúla um að þegar það markmið næðist
að stofnuð yrðu regnhlífarsamtök ætti að leggja
HM niður.
Nýkominn frá námi í Hollandi, vorið 1982, var
ég beðinn um að taka að mér formennsku í
Hagsmunafélagi myndlistarmanna. Þá hafði
Richard Valtingojer verið formaður frá upphafi.
Hann hafði lagt á sig mikla vinnu og vildi stíga
til hliðar. Ég hugsaði mig vel um, en lét tilleiðast
og á aðalfundi var ég kosinn formaður. Með mér
í stjórn voru m.a. Gylfi Gíslason og Guðrún Erla
Geirsdóttir, Gerla. Við vorum sammála um að
sinna aðeins einu verkefni og það var að sameina
myndlistarfélögin í landinu. Haft var samband
við alla formenn hinna myndlistarfélaganna og
fljótlega tókst að koma á fundi.
FÍM hafði ávallt verið mesta fyrirstaðan, en nú
var kominn nýr formaður, Sigrún Guðjónsdóttir,
Rúna eins og við þekkjum hana. Þær miklu deilur
sem höfðu verið og stóðu að nokkru leyti enn yfir
snertu hana lítið. Þannig að nú var kominn sam-
Tilurð SÍM
Minningarbrot
Þór Elís Pálsson