Són - 01.01.2013, Page 52
50 ÞÓrður HelgASon
Þetta ljóð Bjarna er, eins og ljóðið um Þórunni, mágkonu hans, alveg
reglu legt í hrynjandi.
Fjórða og síðasta ljóð Bjarna undir hættinum er sveinn pálsson,
fimm erinda erfi ljóð sem birtist í Skírni árið 1841 en Sveinn dó árið áður
og kvæðið mun ort það ár. Sveinn Pálsson var eiginmaður Þórunn ar sem
Bjarni orti eftir og fyrr er hér getið. Í þessu ljóði er hrynjandin ekki eins
jöfn og í ljóðinu eftir Þórunni og kysstu mig aptur!; tvíliðir koma tals-
vert við sögu, auk þess sem forliðir, bæði í stöku og jöfnu línunum, eru
settir eftir atvikum. Þetta sést vel í 2. erindi:9
„Eins eru skýin sem áður“
í elli þú mæltir,
þegar bölheimur brigðull
baki’ að þér snéri!
Andi sveif þinn hið efra,
það efra’ hönum móti
hýrlega hló og benti
til heimkynna réttra.
Rætur
Vissulega er forvitnilegt að reyna að grafast fyrir um rætur hins nýja
hátt ar. Svo sem fyrr hefur komið fram minnir hann á fornyrðis lagið og
á líklega einhverjar rætur þar þótt veigamikil atriði skilji að. Hugsan legt
er einnig að Bjarni hafi nýtt sér ljóða háttinn, lang línurnar, og búið til
hátt með annarri röðun hending anna.
Í umfjöllun og skýringum á ljóðum Jónasar Hallgríms sonar10 er full-
yrt að um hexa meter sé að ræða. Það er ekki rétt, enda munar á hátt-
unum heilum braglið en þó á hinn nýi háttur þrí liðina sameigin lega með
hexa metri og kann það að hafa villt um fyrir skýranda. Hins vegar er
líklegt að hexa metrið eigi töluvert í barninu. Hátturinn er þó augljóslega
nýr í íslensku bragar túni.
Ef litið er til frænda okkar ytra finnst fátt sem minnir á hátt Bjarna.
Þó ber að minna á að hjá Oehlen schläger, Tegnér og Bjerre gaard er að
finna hætti sem að því leyti líkjast hætti Bjarna að hjá þeim er sama
skipan brag liða en þar skilur á milli að tvíliðir eru þar næsta einráðir og
fleira skilur hættina raunar að. Þannig yrkir Oehlen schläger í natte-
phantasie:11
9 Bjarni Thorarensen (1935 fyrra bindi:188).
10 Jónas Hallgrímsson (1989 IV:159).
11 Lie (1967:200).