Són - 01.01.2013, Page 57
nýr Háttur verður til 55
hefur lengi verið þekkt, ekki síst fyrir ljóð hennar sit ég og syrgi. Fram
hef ur komið að ljóðið orti Guðný er hún lá bana leguna í lok árs ins
1835 fram til 11. janúar 1836 er hún lést. Háttinn sækir Guðný aug ljós-
lega til erfi ljóðsins eftir Solveigu Bogadóttur Thoraren sen eftir Bjarna
Thoraren sen sem fyrr er fjallað um og birtist í Sunnan fara skömmu áður
en veik indi Guðnýjar urðu banvæn.
Ljóð Guð nýjar birtist fyrst á prenti árið 1848 í Norður fara. Þar kemur
fram að hún hafi ort ljóð sitt á bana sænginni eftir skilnaðinn við mann
sinn. Hins vegar er og vikið að því að svo kunni að vera að ljóðið sé ekki
eftir Guðnýju, „og hafa sumir eignað það Bjarna heitnum Thoraren sen,
og það verður heldur ekki varið að það í öllu ber mikinn keim af skáld-
skap hans. En hver sem nú hefur kveðið kvæðið, þá er það þó víst að það
er ort undir nafni Guðnýjar heitinnar og að það er fallegt kvæði.“20
Ritstjórar Norðurfara taka þannig ekki af skarið. Svo fast bund inn
Bjarna er hátturinn að sjálfsagt hefur þótt að eigna honum ljóðið auk
þess sem það hefur þótt svo gott að þjóð skáld eitt gæti ort en ekki kona.
Gísli Brynjúlfs son, annar ritstjórinn, fékk bágt fyrir að gera til raun til
að ræna Guðnýju skáld skapnum auk þess sem faðir hennar bregst dóttur
sinni til varnar enda hafði hún verið karl kennd í ljóðinu eins og það
birtist í Norður fara.21
Ljóð Guðnýjar er reglulegt að flestu leyti; þríliðir eru einráðir en
for liðir í jöfnu línunum ekki alltaf svo sem sést í fyrsta erindinu (2. línu)
eins og það birtist í Guðnýjar kveri:22
Sit ég og syrgi mér horfinn
sárt þreyða vininn,
er lifir í laufgrænum dalnum
þótt látin sé ástin.
Fjöll eru og firnindi vestra,
hann felst þeim að baki.
Gott er að sjá þig nú sælan,
þá sigrar mig dauðinn.
Guðný lýkur ljóði sínu og ávarpar mann sinn og ásakar fyrir brot hans
gegn sér en sættir sig við að deyja og fá þá hugsanlega uppreisn æru og
leikur hennar að orðum leynir sér ekki.23
20 Guðnýjar vísur (1848:17–18).
21 Sjá Helga Kress (2009:53–55).
22 Guðný Jónsdóttir frá Klömbrum (1951:103).
23 Guðný Jónsdóttir frá Klömbrum (1951:86–87).