Són - 01.01.2013, Síða 144
Frá ritstjórn og útgefanda
Són
Són kemur nú út í ellefta sinn. Á árinu 2013 gerðist það merkast í sögu Sónar að
stofn að var félag um útgáfuna. Það nefnist Óðfræði félagið Boðn og verður kynnt
hér á eftir. Einnig bar það til tíðinda að tveir af þremur ritstjórum síðasta heftis
drógu sig í hlé, þau Kristján Árnason og Rósa Þorsteinsdóttir. Þeim eru þökkuð
góð störf í þágu Sónar. Ragnar Ingi Aðalsteinsson heldur hins vegar áfram og
rit stýrir Són í þriðja sinn ásamt nýjum ritstjóra, Önnu Þorbjörgu Ingólfsdóttur,
lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Nokkur breyting hefur orðið á uppsetningu og niðurröðun efnis frá því sem
verið hefur. Ber þar helst að nefna að nú er skilið á milli þeirra greina sem farið
hafa gegnum svokallað ritrýningar ferli og hinna sem aðeins hafa ver ið lesnar yfir
af ritstjórn.
Ritrýningin er frek, bæði á vinnu og tíma. Hún byggist á því að leitað er
til fræðimanna, sem sérhæfðir eru í því efni sem um er fjallað, og þeir beðnir
að gagn rýna rit smíðina eins rækilega og þeir hafa þekkingu til. Þessi vinna er
ólaunuð. For sendan fyrir því að þetta sé almennt gert er sú að innan fræða sam-
félags ins njóta allir góðs af slíkum vinnu brögðum þegar upp er staðið. Þeir fræði-
menn, sem í dag ritrýna grein fyrir Són án þess að taka annað fyrir en kærar
þakkir ritstjórnar, leggja síðar fram greinar til birtingar, þar eða annars staðar, og
þá þarf að finna sérfræðinga sem hafa vilja og getu til að rýna í þau verk af sömu
ná kvæmni, launa laust. Skilyrði er að slík ritrýni sé nafnlaus. Sá sem tekur grein í
rit rýningu veit ekki hver höfundurinn er og þegar höfundurinn fær grein sína til
baka, útkrotaða í athuga semdum, veit hann ekki hver það verk vann. Þetta er gert
til að forðast það að hagsmunaárekstrar og kunningja tengsl hafi áhrif á matið,
rýninguna.
Reglan er skynsamleg og skil virk þó svo að hér á landi, þar sem fræða sam-
félagið er fámennt og góðmennt, vilji stundum brenna við að hægt sé að ráða of
mikið í það út frá efninu hver muni vera höfundurinn. Yfir leitt er slíkt þó ekki til
vand ræða og ritrýnar gera sitt besta til að horfa fram hjá slíkum vís bendingum,
ef ein hverjar skjóta upp kollinum. Nafn leysið er hluti af ritrýningar ferlinu og á
sinn þátt í að skapa trúverðug leika gagn vart efninu og það skiptir miklu máli að
reglur um það séu haldnar.
Greinar sem hafa ekki farið í gegnum ritrýningarferli birtast í II. hluta ritsins.
Þannig er rit stjórn að þreifa sig áfram með nýtt uppsetningar form, fjöl breyttara
og vonandi heldur litríkara en verið hefur. Sitt hvað er þó enn óunnið í þeim
efnum. Þar má nefna að enn hefur tíma ritið Són ekki sett sér sínar eigin reglur
um upp setningu greina og heimilda skráningu. Þetta stendur þó allt til bóta og
vonumst við til þess að þegar næsta hefti verður skipu lagt fái höfundar greina í