Fréttablaðið - 04.03.2016, Síða 32
Þetta eru
líflegir
hlutir sem leyfa
bæði efninu og
handbragðinu
að njóta sín í
bland við furu úr
Hallormsstaða-
skógi.
Þórunn Árnadóttir
Prestar Sturlu eru bæði
nytjahlutir og til skrauts.
mynd/ChriStoPher Lund
„Þeir eru hálfpartinn „free style“ hjá mér ef
svo má segja, dálítið skrautlegir,“ segir Sturla
már Jónsson.
Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður
opnar sýninguna Frímínútur í Galleríi
Gróttu næstkomandi miðvikudag.
mynd/SteFÁn KarLSSon
Línan Sipp og hoj er öll unnin samstarfi við netagerðina egersund á eskifirði.
mynd/Þórunn Árnadóttir
hönnun línunnar tók mið af framleiðsluaðferðum
netagerðarinnar.
„Ég hef aðallega fengist við hönn-
un stofnanahúsgagna til fjölda-
framleiðslu fyrir ýmsa fram-
leiðendur hér heima. Í því felast
ákveðnar takmarkanir, tækjabún-
aður framleiðslunnar og annað
setur manni ákveðnar skorð-
ur. Fyrir þessa sýningu leyfði ég
mér að leika mér aðeins og smíð-
aði verkin sjálfur,“ segir Sturla
Már Jónsson, húsgagna- og innan-
hússhönnuður, en hann sýnir fata-
presta í Galleríi Gróttu á Hönnun-
arMars.
Prestarnir bera nöfn eins og
Kría, Örn, Brúskur og Haki og
segir Sturla þá mitt á milli þess
að vera nytja hlutir og skraut.
„Þeir eru dálítið skrautlegir hjá
mér. Þeir sækja form sitt í nöfnin
og það sem ég rekst á í göngutúr-
um um Seltjarnarnes. Ég hugsaði
þá ekki sem nytjahluti þó auðvitað
megi hengja á þá föt og skartgripi.
Það má alveg eins stilla þeim upp
inni í stofu sem skrauti.“
bætir við Sipp og Hoj
Sýning Þórunnar Árnadóttur ber
heitið Frímínútur og er þema
hennar leikur. Hlutirnir eru viðbót
við línuna Sipp og Hoj sem frum-
sýnd var á Hönnunarmars 2014 í
Spark Design Space undir sam-
starfsverkefninu „Austurland: De-
signs from Nowhere“. Í því verk-
efni voru möguleikar til smáfram-
leiðslu á Austurlandi kannaðir og
má segja að hlutir Þórunnar séu
sérstaklega hannaðir með tak-
markanir framleiðslunnar í huga.
„Sipp og Hoj samanstendur
af sippuböndum, húlahringjum,
lyklakippum og töskum, en nú bæt-
ast við rólur og hengirúm. Þetta
eru líflegir hlutir sem leyfa bæði
efninu og handbragðinu að njóta
sín í bland við furu úr Hallorms-
staðaskógi,“ útskýrir Þórunn.
„Við vinnslu línunnar lærði ég
grunnatriðin í netagerð, hjá Þór-
halli Árnasyni smið á Egilsstöð-
um. Línan er unnin í samstarfi
við netagerðina Egersund á Eski-
firði en hönnunin tekur öll mið af
því að hægt sé að framleiða hlut-
ina þar. Við erum ekki með mikla
framleiðslu á hlutum hér á Íslandi.
Hvernig getum við nýtt þær fram-
leiðsluaðferðir sem fyrir eru í
nýjum tilgangi.“
Sýningarnar verða opnaðar
miðvikudaginn 9. mars klukkan 17.
Ólík nálgun í
galleríi grÓttu
Tveir ólíkir hönnuðir munu sýna í Galleríi Gróttu á HönnunarMars, þau
Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður og Sturla már Jónsson, húsgagna-
og innanhússhönnuður. Opnun verður 9. mars klukkan 17.
Sturla már Jónsson vann verkið Presta sér-
staklega fyrir hönnunarmars 2016. hann sýnir
í Galleríi Gróttu.
4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r12 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X X
365.is Sími 1817
Sportpakkinn er tilvalinn fyrir þá sem elska íþróttir. Enski
boltinn, Meistaradeildin, Evrópuboltinn ásamt spjallþáttum
með spekingunum. Körfubolti, Formúlan, NFL, bardaga-
íþróttir og margt annað sem fær hjartað til að slá örar.
YFIR
1.300
BEINAR
ÚTSENDINGAR Á ÁRI
Sportpakkinn inniheldur: Stöð 2 Sport, hliðarrásir, Eurosport, Extreme
Sport, Motors TV, Sky News, NBA TV, MUTV, LFC TV og Chelsea TV.
F ó l k ∙ i ∙ l í F s s T í l l
0
4
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
A
9
-F
6
9
0
1
8
A
9
-F
5
5
4
1
8
A
9
-F
4
1
8
1
8
A
9
-F
2
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K