Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUPAGUB 8. NÖVEMBER 2007
Handtekinn vegna
barnakláms
Lögreglan á Vestfjörðum hef-
ur lagt hald á fartölvu hjá ungum
manni vegna gruns um að þar sé
að finna klámfengnar myndir af
börnum. Maðurinn var handtek-
inn vegna málsins en að loknum
yfirheyrslum var honum sleppt.
1 tilkynningu frá lögreglunni á
Vestfjörðum segir að málið sé
enn á rannsóknarstigi en næstu
daga munu fara fram rannsóknir
á innihaldi og umfangi hins ætl-
aða ólöglega efnis. Grunur um
vörslu á þessu ólöglega mynd-
efni vaknaði þegar athugulir net-
tengdir tölvunotendur urðu þess
varir að verið var að bjóða mynd-
efni í gegnum netið.
Sagaði af
sér litla fingur
Lögreglan á Selfossi fékk í gær
tilkynningu um vinnuslys í tré-
smiðju í Þorlákshöfn. Þar hafði
tæplega þrítugur karlmaður orðið
fyrir því óláni að saga af sér litla
fingur hægri handar. Lögreglunni
var tilkynnt um slysið klukkan
13.30 en maðurinn hafði verið
að saga spítu með borðsög. Eftir
stutta Ieit fannst fingur manns-
ins rúma fjóra metra frá söginni.
Maðurinn var fluttur á Heilbrigð-
isstofhun Suðurlands en þaðan
með sjúkrabíl til Reykjavíkur þar
sem gert var að sárum hans.
Rannsókn á
Lúkasarmáli hafin
„Það erbyrjað að rannsaka
málið en þetta er umfangsmik-
il rannsókn. Það eru nokkuð
margir sem hafa verið kærðir og
þetta er frekar mikil tölvuvinna,"
segir Karl Vilbergsson, lögfræð-
ingur hjá Lögreglustjóranum á
höfuðborgarsvæðinu. Karl seg-
ist ekki geta sagt til um hvenær
rannsókn á málinu lýkur. Helgi
Rafn Brynjarsson, sá hinn sami
og var gefið að sök að hafa drepið
hundinn Lúkas, kærði fjölmarga
einstaklinga vegna ærumeiðinga
í kjölfarið. Lúkas fannst þó heill á
húfi nokkrum vikum síðar.
Skautafélagið
fékk hæsta styrk
Skautafélag Reykjavíkur fékk
hæsta styrkinn sem Afrekssjóð-
ur SPRON og ÍBR úthlutaði í
gær. Styrkurinn nam 420 þús-
und krónum og er til kominn
vegna keppnis- og æfingaferða
landsliðsmanna úr félaginu.
Alls voru afhentir styrkir
upp á fimm milljónir króna til
32 verkefna. Samtals sóttu 50
um styrki úr sjóðnum og fékk
því vel rúmlega helmingur
styrk.
Fjöldi Pólverja býr saman í íbúð í fjölbýlishúsi við Arnarhraun í Hafnarfirði. Nýverið
endaði drykkjuskapur þeirra í blóðugum hópslagsmálum á stigaganginum. Þorsteinn
I. Hjálmarsson, einn ibúa hússins, segir íbúana logandi hrædda við villimennskuna og
að kæra sé í undirbúningi.
/tm*
<4
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladomadur skrifar: trausthpdv.is
Á annan tug Pólverja slóst með
hnífum og slökkvitækjum í stiga-
gangi fjölbýlishússins á Arnar-
hrauni 4-6 í Hafnarfirði nýverið.
Allir búa þeir í sömu 110 fermetra
íbúðinni í húsinu og voru að eig-
in sögn að halda upp á sameigin-
legt afmæli tveggja íbúanna með
tilheyrandi áfengisdrykkju. Teitin
endaði í hópslagmálum og að þeim
loknum leit stigagangurinn út eins
og vígvöllur.
Þær upplýsingar fengust hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
að tvívegis hafi hún verið kölluð til
vegna óláta og slagsmála Pólverj-
anna. Bæði útköllin voru laugar-
dagskvöldið 27. október, það fyrra
„Hér búa meðal ann-
ars barnafjölskyldur og
eldra fólk sem er log-
andi hrætt."
klukkan 21.44 og síðara 22.34.
Lögreglumenn af hverfisstöðinni í
Hafnarfirði lentu í samskiptaörðug-
leikum við óeirðaseggina þar sem
enginn í þeirra hópi talaði ensku
eða íslensku. í vörslu lögreglunn-
ar er fjöldi mynda sem teknar voru
í húsinu og sýna blóðugan stiga-
gang.
Mennirnir slógust með slökkvi-
tækjum, hnífum og bareflum.
Blóð uppi um alla veggi
Þorsteinn I. Hjálmarsson, einn
íbúanna á Arnarhrauni 4-6, varð
vitni að blóðugum slagsmálunum
og lýsir hann stigaganginum sem
blóðugum vígvelli að þeim loknum.
Hann segir íbúa hússins logandi
hrædda. „Hjá þeim er alltaf blinda-
fyllirí um helgar sem endaði núna
í hópslagsmálum á stigaganginum.
Þeir slógust hér með slökkvitækjum
og bareflum ýmiss konar með þess-
um afleiðingum. Hér var blóð uppi
um alla veggi," segir Þorsteinn.
„Þetta hefur verið skelfilegt og
óbærilegt ástand í húsinu. Ég full-
yrði að algjör ótti ríki meðal íbúanna
og fólk þorir varla út um helgar. Þeir
haga sér eins og villimenn. Hér búa
meðal annars barnafjölskyldur og
eldra fólk sem er logandi hrætt."
Kæra í undirbúningi
Pólverjarnir eru hér á landi á veg-
um verktakafyrirtækisins Lauffells
og fyrirtækið er leigutaki íbúðarinn-
ar. Að sögn íbúa hússins hafa mest
verið 20 Pólverjar í íbúðinni í einu
sem telst sem 4 til 5 herbergja. Þeg-
ar hópslagsmálin brutust út bjuggu
þar 12 Pólverjar.
Neyðarfundur var haldinn hjá
húsfélaginu eftir slagsmálin og
leigusali hefur.sagt upp leigusamn-
ingi við Lauffeíl. Þorsteinn segir að
upphaflega hafi fýrirtækið ætlað að
hafa íbúðina undir örfáa verkstjóra
þess. „í íbúðinni hafa mest verið 20
manns í einu og húsgögnum ýtt til
hliðar. Okkur íbúunum hefur nánast
verið haldið í gíslingu á okkar eigin
heimilum af ótta við villimennsk-
una. Lögreglan hefur hvatt okkur
til að halda málinu áfram og leggja
fram kærur vegna slagsmálanna og
skemmda. Það stendur til hjá okkur
að gera það," segir Þorsteinn.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náð-
ist ekki í neinn talsmann Lauffells
við vinnslu fréttarinnar.
Tekist á um efnahagsstjórn og stýrivexti á Alþingi i gær:
Evrópuaðild ereina leiðin að mati Geirs
Geir Haarde forsætisráð-
herra sagði á Alþingi í gær að að-
ild að Evrópusambandinu væri
eina raunhæfa leiðin til þess að
koma í veg fyrir verðbólgu á ís-
landi. Þetta sagði Geir í svari til
Guðna Ágústssonar, formanns
Framsóknarflokksins, sem gagn-
rýndi ríkisstjórnina harðlega fyr-
ir sinnuleysi í peningamálum.
„Peningastefnan er tilraunaverk-
efni," sagði Guðni. „Ríkisstjórnin
er ráðþrota."
Geir þótti gagnrýni Guðna und-
arleg. Þeir hefðu fyrir skemmstu
setið saman í ríkisstjórn og unn-
ið samhent að því að ná snerti-
lendingu fyrir íslenskt efnahagslíf.
„Ég tel ekki að Guðna Ágústssyni
hugnist sú lausn að ganga í Evr-
ópusambandið. Mér hugnast hún
ekki heldur," sagði Geir.
Jón Magnússon, Frjálslynda
flokknum, sagði að atvinnulífið
hefði varað við hversu háir stýri-
vextirnir voru þegar þeir voru mun
lægri en nú. Jón skipaði sér í flokk
með þeim sem undrast ákvörðun
Seðlabankans. „Það er vandfund-
ið hvað réði ákvörðun Seðlabank-
ans," sagði Jón Magnússon.
Mistök Seðlabankans urðu til
þess að peningar í umferð juk-
ust um eitt hundrað milljarða á
tólf mánuðum, sagði Kristinn H.
Gunnarsson, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins. Katrín Jakobs-
dóttir, vinstri grænum, sagði að
verið væri að búa til tvö hagkerfi í
landinu. Annað fýrir landsbyggð-
ina og hitt fyrir höfuðborgar-
svæðið. Með hækkun vaxta blæði
landsbyggðinni þar sem íbúar þar
hafi ekki sömu möguleika til að
koma sér undan háum vöxtum,
sem hækka með ákvörðun Seðla-
bankans.
Fjármálaráðherra spurði hvað
annað væri hægt að gera til að halda
aftur af hagvexti eða verðbólgu. „Hitt
tækið er ríkisfjármálin," sagði Árni
M. Mathiesen. „Er nóg gert í þeim
efnum? Það er sjálfsagt að skoða
það. Fjárfesting hins opinbera hefur
hækkað, en lítið milli 2005 og 2006
og var rétt um helmingur þess sem
var á árunum á undan. Framlag rík-
isins til að halda aftur af verðbólgu
er síst minna en Seðlabankans,"
sagði ráðherrann.
Deilt um hagstjórn Guðni og
Geir eru sammála um að ekki komi
til greina að ganga í Evrópusam-
bandið. Geir segir engu að síður að
í aðild felist lausn.