Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2007, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2007, Blaðsíða 13
oéísnmVi rrir>r onoun\/AM o ni O *OI \0G£ 83SM3VOI/i .8 nUDÁCJUTMMIn Friðrik J. Jónsson hefur átt marga bíla í gegnum tíöina. Þrátt fyrir að vera 89 ára hefur Friðrik nýlega fest kaup á glænýjum Subaru Impreza og er hæstánægður með þessa nýju fjár- festingu. Friðrik segist alltaf hafa hugsað vel um þá bíla sem hann hefur átt og hefur gaman af því að þrífa þá. 'Suberu.ls i*J •„> ÍLí,'*',! . Mynd Ragnhildur Aöalsteinsdóttir Eg er hálfgerður bfladellu- maður. Ég hef ekki gert mik- ið af því að kaupa mjög gamla bfla, sá elsti var sex ára að mig minnir," segir Friðik J. Jóns- son spurður um nýleg viðskipti en hann keypti sér glænýjan Subaru Im- preza á dögunum. „Já, já, 2008 mód- el. Ég er á undan samtímanum," seg- ir bfladellumaðurinn Friðrik. „Ég hef átt marga bfla í gegnum tíðina enda orðinn þetta gamall. Ég hef ekki tölu á því hvað þeir eru margir." Hvað er það sem einkennir Friðrik sem bfla- eiganda? „Ég er einn af þeim sem reyna að hirða sæmflega vel um bfl- ana mína. Einn nágranni minn, sem nú er reyndar látinn, var hjartveikur maður og átti erfitt með að hreyfa sig. En svo fór ég að taka eftir því að hann hafði oft fýrir því að færa bflinn sinn á bflastæðinu fyrir framan blokkina við hliðina á bflnum mínum. Eitt sinn þegar ég var á bflaplaninu heyrði ég hann vera að spjalla við kunningja sinn. Hann sagði: „Ég legg nú alltaf bflnum mínum við hliðina á bflnum hans Friðriks því hann er alltaf svo hreinn."" Atvinnubílstjóri Friðrik vann lengi vel sem rútu- bflstjóri, vörubflstjóri og ökukenn- ari. „Eitt sinn var ég á leið með hóp af fólki á leið á dansleik á Kópaskeri. Ég lagði rútunni fýrir framan Kaupfé- lagið og þá kom aðsvífandi maður og sagði: „Hvur andskoti! Eru ekki rúð- ur í bflnum?" Svo rak hann höndina beint á rúðuna. Rúðan var bara svona hrein," segir Friðrik hlæjandi, „það er eins gott að hann fór ekld í gegn!" Þar sem Friðrik var alltaf á ferðinni þar sem hann vann við að keyra bfla hafði hann ekki eins milda þörf á því að eignast einn slíkan. „Fyrsti bfllinn sem ég átti var Ford Junior '46 módel. Ég átti hann með öðrum manni því ég þurfti ekki að nota hann það mik- ið. Svo keypti ég mér notaðan Will- is-jeppa sem ég keypti af Kennedy- bræðrum á Akureyri. Þetta var ansi fi'nn bfll með eikaryfirbyggingu. Eikin var þó oft til vandræða því hún vildi grána helst til of mikið og það er mik- ið verk að skafa skítinn upp til að hafa þetta fi'nt." Friðrik segist ekki skreyta bfla sína. Hann vill hafa þetta einfalt. En hlustar Friðrik á útvarpið á meðan hann keyrir? „Já, það truflar mig ekk- ert. Ég hlusta líka á geisladiska. Það er ekkert hægt að fá spólur nú til dags." Veiti trukki Friðrik segist alltaf hafa verið ör- uggur bflstjóri sem virðir hraðatak- mörk. „Ég hef aldrei verið tekinn fyr- ir ofhraðan akstur. Ég reyni nú samt að passa mig á að vera ekki að hægja á umferðinni. Ég hef verið heppinn í gegnum tíðina í umferðinni og lent í fáum óhöppum. Þó velti ég einu sinni trukki í nánd við prestsetur. Það var mikill snjór svo lendingin var mjúk. Mér þótti þetta nú enginn heiður en séra Páll Þorleifsson, sem þá var prestur á setrinu, sagði við mig, ef- laust til að hughreista mig, að menn væru aldrei búnir með meiraprófið fýrr en þeir væru búnir að velta." Þar sem stutt er síðan Friðrik tók við lyklunum að nýja bflnum hef- ur hann ekki mikla reynslu af hon- um enn. „Ég er nú ekki búinn að rúnta neitt af viti á honum. Ég bauð nú konunni út í gærkvöldi en hún er svo slæm í öðrum fætinum að hún vildi heldur bíða aðeins," segir Friðrik kampakátur að lokum. berglind@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.