Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2007, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2007, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 Umræða DV ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðiö-Vísir útgáfufélag ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir RITSTJÓRAR: ReynirTraustason og Sigurjón M. Egilsson ábm. FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins á stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. öll viötöl blaðsins eru hljóörituð. AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 7040. SANDKORN ■ Leitin að nýrri þulu Sjón- varpsins í stað ELlýjar Ar- manns stendur nú sem hæst og fjöldinn allur hefur mætt í pruf- ur. Þórhallur Gunnarsson dagskrár- stjóri og Páll Magnússon útvarps- stjóri munu hafa rýnt í niðurstöður en það gengur þó fremur illa að fá hinar útvöldu til að festa sig á þeim launum sem hið ríkis- rekna hlutafélag vill greiða þessum andlitum sjónvarps- stöðvarinnar. ■ En það er glatt á hjalla hjá Erni Árnasyni og þeim Spaug- stofumönn- um eftir að íljós kom í Capasent- könnun að um 53 pró- sent lands- manna horfa á Spaugstof- una sem átt hefur í miklum hremmingum eftir að Randver Þorláksson var rekinn. Laug- ardagslögin eiga ekki sama gengi að fagna því áhorfið hrynur um 10 prósentustig þegar sá þáttur tekur við af Spaugstofunni. Það þýðir að 30 þúsund manns standa upp frá tækjunum eða skipta á aðra stöð. ■ Geir Hilmar Haardc forsætís- ráðherra er í vandræðum vegna REI-máls- ins sem á rót sína að rekja til Guð- iaugs Þórs Þórðarson- ar heilbrigð- isráðherra. Geir vissi lítíð þegar Mogginn spurði um þá blogg- færslu Björns Inga Hrafnssonar að forsætisráðherra hefði verið upplýstur um REI. Geir svaraði að hann ætlaði ekki að tjá sig um slúður. Síðan snerist honum hugur og hann sagðist aðeins hafa rætt lauslega við Vilhjálm Þ. Villijálmsson borgarstjóra í síma sem sagði honum upp og ofan af yfirvofandi samruna undir merkjum REI. ■ Því var haldið fram í Sandkorni að Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögfiæðingur hefði farið þess á leit við ritstjóm vefmiðilsins Vísis að nafn hans yrði afmáð úr ákveðn- um fréttum. Þetta mun ekki vera rétt enVilhjálm- ur fór þess á leit að nafn skjólstæð- ings hans yrðitekið út úr fréttum um umfangsmildð sakamál. Þar mun að vera um að ræða spíttskútumálið á Fáskrúðs- firði og einn þeirra sem var hand- teldnn en sleppt þar. Óskar Hrafn Þorvaldsson, ritstjóri Vísis, mun hafa harðneitað að verða við því. LEIÐARI SIGURJÓN M. EGILSSON RITSTJÓRISKRIFAR. Segja má að mikið sé lagt á þjóðina með REI-málinu. Fátítt er að önnur eins hringavitleysa verði til. ÖU framvindan er lygasögu líkust og þegar er ljóst að sumir þeirra sem léku aðalhlutverkin hafa sagt ósatt, hafa logið. Enn eru menn að brenna sig á málinu. Fyrrverandi meirihluti brann yflr vegna málsins og fyrrver- andi borgarstjóri lauk þar aldarfjórðungsferli í stjórnmálum. Með skömm. Núverandi borgar- stóri hefur fengið eitt tækifæri til að brenna sig á málinu eftir að hann tók við embættinu. Og hann brenndi sig. Þegar umboðsmanni Alþing- is var svarað láðist nýjum borgarstjóra að kalla saman borgarráð til að fara yfir svörin sem um- boðsmanni voru send. Eftir á segist hann hafa átt að kalla saman fund. Skaðinn af REI-málinu ætlar engan endi að taka. Engan. Smjörklípa Björns Inga Hrafnssonar er þunn og áhrifa- lítil. Það hefur ekkert með þetta mál að gera þótt Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hafl sagt á fundi að hann hafl upplýst Geir H. Haar- de forsætisráðherra um samruna REI og Geysis Green Energy. Akkúrat ekkert. Einkum og sér í lagi þar sem margoft hefur kom- ið fram að Vilhjálmur áttaði sig aldrei á málinu. Vissi ekki um innihald þeirra gagna sem hann fékk og segist hafa lesið. Það er .uid liörfiuimsl stjórnmálanianna cins og Svandisar. þess vegna sem hann fer úr stjórnmálum rúinn trausti. Ekkert er gerandi með smjörklípu Framsóknar. Smjörklípuaðferðin er fín, en til að hún virki verður að beina sjónum fólks frá því sem þarf að fela eða stoppa. Það gerir þessi smjörklípa ekki. Vilhjálmur vissi ekkert sjálfur og þess vegna gat hann ekki með nokkrum hætti hafa skýrt málið fyrir Geir, eða nokkrum öðrum. Hringavitleysan heldur áfram og mun gera það. Endalaust upplýsist um eitthvað sem undrun vekur. Eftir því sem málið verður skoðað bet- ur er Ijóst að hringurinn þrengist og hann mun þrengja svo að þeim sem fremstir fóru að ekk- ert getur bjargað því að þeir hafl stigið sín síðustu skref í stjórnmálunum. Lengi vel leit út fyrir að Svandís Svavarsdóttir ætl- aði að spila frá sér frábærri stöðu i málinu. Allt til að trufla ekki Framsókn í leit að jafnvægi. Sem betur fer er hún vandaðri stjórnmálamaður en svo. Meðan lítið fór fyrir henni var hún að vinna og sanna að hún er ekki af sama sauða- húsi og flestir karlarnir sem hafa komið að builinu öllu. Sem betur fer, vegna þess að við þörfnumst stjónmálamanna eins og Svandísar, ekki vegna skoðana hennar, frekar vegna heilinda. Þeirra er þörf í íslenskum stjórnmálum. EIN- EÐATV0FALDUR GRÍMÞÓR Merkilegt með Sjálfstæð- isflokkinn," sagði vinur minn, framsóknarmaður- inn, um daginn. Eflaust er hann ekki einn um þá skoð- un. Það er klárt. Ég spurði samt hvers vegna hann væri að hefja máls á því. „Þegar formaður- inn heitir Geir fer allt upp í loft hjá þeim," sagði hann og rifjaði upp átök Geirs Hallgríms- sonar og Gunnars Thoroddsen á árum áður. Og bætti við að nú væri svo illa komið fyrir flokknum að hann titri og skjálfi vegna borgar- stjórnarflokksins. Sem hann sagði aldrei hafa verið veikari en nú. „Oft veitir lítil þúfa þungu hlassi," sagði hann til áréttingar. „Þetta er nú ekki svo slæmt," sagði ég. „Geir hefur ágætis tök á þessu öllu." O, nei, ekki aldeilis," sagði framsóknarmaðurinn og hóf að fara með texta sem hann kunni utanbókar: „Á frægum kynningarfundi um sam- runann í Stöðvarstjórahúsi Orkuveitunnar, þar sem saman voru komin meiri- hlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur, yfirstjórn OR og fulltrúar Akraness og Borgarbyggðar, tilkynnti borgarstjóri að samruninn hefði þegar verið kynntur forsætisráð- herra og honum litist vel á ráða- haginn." „Hvaða ritningarlestur var þetta eiginlega?" spurði ég. Ekki stóð á svarinu. Þetta var nýjasta innlegg Björns Inga Hrafnssonar til máls- ins. Og framsóknarmað- urinn sagði ekkert skipta meira máli. Hann stendur með sínum manni. Hefur alltaf staðið með sínum mönnum. Gegnum þunnt og þykkt. Segist éta bæði hrátt og soðið til að vernda eininguna, hina heilugu framsókn- areiningu. „Einingin er það sem er best," segir hann jafnan þegar hann tekur upp málstað Framsókn- ar. „Einingin, væni minn, einingin." Hann bætti við og sagði að þetta sannaði að Geir væri innviklað- ur í málið og bæri á því ábyrgð. Sagði Geir nánast innvígðan og innmúraðan. Þetta er ekki rétt," reyndi ég að segja. „Ef Vilhjálmur, sem þá var borgarstjóri, kynnti samrunann fyrir Geir breytir það varla miklu. Vilhjálmur vissi ekkert hvað hann var að samþykkja og það sem hann sagði Geir var kannski eitthvað allt annað en það sem aðr- ir voru að tala um. Allavega vissi Villi ekkert um það sem mestu skipti. Hann bara gerði það ekki og gat þess vegna ekki kynnt málið svo sómi væri að. Ekki rétt?" ú, kannski má segja það," sagði framsókn- armaðurinn og gerð- ist dóriálegur. „Villi virkaði sem hann væri svo einfaldur," sagði hann, en bætti svo við að senni- lega væri betra að vera einfaldur en tvöfaldur, stóð upp og fór án þess að kveðja. DOMSTOLL GOTUIVIVAR ER ÖRYGGI Á KEFLAVÍKURFLUGVELLIÁBÓTAVAMT? „Ég er alveg rólegur yfir þessu. Ég held að þaö sé ekkl ástæða til að hafa miklar áhyggjur." Guðmundur Halldórsson, 55 ára rannsóknarstjóri hjá Landgraeðslu ríkisins „Það mætti alveg skoða þessi mál betur. Mér finnst þó helst vanta sal ( Leifsstöð með útsýni yfir völlinn fyrir þá sem eru að sækja eða koma með farþega." Guðríður Haraldsdóttir, 49 ára aðstoðarritstjóri Vikunnar „Ég tel það vera miðað við það sem hefur komið fram (fjölmiðlum. Best væri að auka við mannfjöldann." Henný Rós Guðsteinsdóttir, 47 ára hjá Sinfóníuhljómsveit fslands „Ég held að það þurfi að endurskoða þessi mál. Þeir eru v(st að því og mér finnst ástæða til að halda því áfram." Erla Blandon, 77 ára húsmóðir og ellilífeyrisþegi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.