Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2007, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2007, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR.8. NÓVEMtJEH 2007 F/éttir QV Talsmaður neytenda og Samtök verslunar og þjónustu hvetja verslanir til að láta viðskiptavini fá vörustrimil um leið og greiðslukvittun. Þannig sé hægt að tryggja samræmi á milli kassaverðs og hilluverðs áður en kvittað er fyrir greiðslu. Biðraðir í verslunum geta lengst í kjölfar þess að fólk fer yfir strimilinn áður en það borgar. Gísli Heiðar Bjarnason hjá Kaupási segir segir að til að það megi verða þurfi að fara út í kostnaðar- samar endurbætur á tölvukerfum verslana. DÝRT AÐ UPPLÝSfl NEYTENDUR ERLA HLYNSDOTTIR bladamadur skrifar: erla@dv.is „Hjá okkur er ekki hægt að taka strimilinn fyrr en afgreiðslu er lokið. Mér finnst þetta hins vegar gott mál og við munum bregðast hratt við," segir Guðmundur Magnússon, fram- kvæmdastjóri Bónuss. Samtök versl- unar og þjónustu hafa fallist á til- mæli Gísla Tryggvasonar, talsmanns neytenda, um að neytendur fái vöru- strimil um leið og greiðslukvittun til að tryggja samræmi milli kassaverðs og hilluverðs. Samtökin ætla einnig að koma til móts við þá ósk talsmanns neytenda að kynna tilmælin og hvetja verslanir til að fara eftir þeim. Hvatning fyrir verslanir „Bara möguleikinn á að geta nýtt sér þetta stuðlar vonandi að samræmi í raun. Ef möguleikinn er útilokaður hefur verslunin ekki jafn mikla hvam- ingu til að hafa samræmi á milli kassa- verðs og hilluverðs," segir Gísli. Skiptar skoðanir hafa verið um þessa leið til að bregðast við alkunnu misræmi á verði í hillu og á kassa vegna þeirra tafa sem hún kann að valda. Biðraðir í verslunum lengjast óhjákvæmilega á annatímum ef all- ir viðskiptavinir fara vandlega yfir vörustrimil áður en skrifað er undir greiðslukvittun. „Ég hef hikað við að grípa til þessa vegna hugsanlegra tafa," segir Gísli. Hann efast þó um að allir viðskiptavinir muni alltaf fara yfir strimilinn áður en þeir greiða fyrir vöruna og býst við að fólk geri það frekar þegar það er með fáar vörur eða fáir á eftir því í biðröð. Tafir fyrst um sinn Þó að aðeins sumir neytendur nýti sér þennan kost í raun og kanni í sumum tilvikum ef til vill aðeins til- tekna vöruliði er það mat Gísla að þessi breytíng sé tíl þess fallin að auð- velda neytendum sjálfsagt aðhald og að hvetja verslanir tíl þess að tryggja Kavanagh Swcat 8990kr Switchfoot 2 6990kr Carabina Denim 7890kr Zedowa Pull On Boot 9290kr MareeTee 3890kr High Crinkle Leather Boot 10.690kr Ardal Granddad Shirt 5990kr Kringlunni sfmi 553-5020 samræmi milli hilluverðs og kassa- verðs eins og skylt er. Guðmundur hjá Bónus hefur ekki miklar áhyggjur af töfum: „Þær gætu orðið einhverjar fyrst um sinn. En þetta verður að koma í ljós." Gísli Heiðar Bjamason sem sér um tölvukerfi Kaupáss segir að tíl að þetta megi verða þurfl að endurnýja tölvu- kerfi verslananna. „Það þarf að upp- færa kerfið í hverjum einasta kassa í hverri einustu búð. Þetta er mjög kostnaðarsamt." Leiðrétt eftir á Kaupás starfrækir meðal annars matvöruverslanirnar Krónuna, Nóa- tún, 11-11 ogKjörval. „Við erum með viðurkennt al- þjóðlegt greiðslukerfi þar sem ekki er boðið upp á þennan möguleika," seg- ir Eysteinn Helgason, framkvæmda- stjóri Kaupáss. „Það kemur þó ekki í veg fýrir að viðskiptavinir getí gert at- hugasemdir eftír á og fengið leiðrétt- ingu sinna mála." Gísli Tryggvason bendir á að mis- ræmi milli hilluverðs og kassaverðs sé ekki einungis vandamál hér á landi. í danska fréttablaðinu Berl- ingske Tidende var í gær fjallað um þennan vanda sem einnig steðjar að dönskum neytendum. Þar segir að misræmið sé óviðunandi og úrbót- um lofað, án þess þó að þær séu til- greindar nánar. Nauðgun tekin upp og dreift í farsíma: Svivirðilegt brot Að mati Steinunnar veldur myndbirtingin auknum miska fórnarlambsins og getur leitt til refsiþyngingar. Mikill miski og sálarangist „Þetta er algjörlega svívirðilegt brot gagnvart þeim sem lendir í því. Brot af þessu tagi valda fólki miklum miska og sálarangist," seg- ir Steinunn Guðbjartsdóttir hæsta- réttarlögmaður. Hún hefur mikla reynslu af störfum sem réttar- gæslumaður fórnarlamba kynferð- isbrota. Lögreglan á Selfossi rannsakar nauðgun á ungri stúlku sem átti sér stað á sumarhúsasvæðinu Árborg- um í sumar. Stúlkan kærði tvo menn fyrir misbeitingu, að hafa verið beitt kynferðislegu ofbeldi á meðan hún var ekki í ástandi til að bregðast við eða sporna gegn verknaðinum, og voru tvímenningarnir handteknir í kjölfarið. Annar hefur játað verkn- aðinn en hinn ekki. Þess utan er annar þeirra grunaður um að hafa tekið verknaðinn upp á myndband og dreift því í fjölda farsíma. Rann- sókn lögreglunnar hefur tekið 5 mánuði og er ekki lokið enn. Steinunn þekkir dæmi hér á landi þar sem grunur lék á að nauðgun hefði verið tekin upp á myndband. Aðspurð telur hún hér um tvíþætt brot að ræða. Annars vegar myndbirting af fórnarlambi og dreifing myndefnis og fyrir það brot er hægt að hljóta sjálfstæða refsingu. Hins vegar er það mis- beitingin sjálf sem refsing hlýst fyr- ir. „Þetta verður til refsiþyngingar og getur líka aukið miskabætur til brotaþolans. Myndbirtingin veldur auknum miska, það er alveg nóg að viðkomandi viti af myndefninu eða hreinlega óttist um að svo sé," segir Steinunn. trausti@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.