Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2007, Page 32
m.
Ráðherraráönd-
verðri skoðun
Umhverfisráðherra og forsætis-
ráðherra eru á öndverðri skoðun um
hvort sækjast eigi eftir undanþágu
frá Kyoto-samkomulaginu.
„Mín skoðun er sú að við eigum
að freista þess að fá aftur samþykkt
íslenskt ákvæði að lokinni næstu
samningalotu um takmarkanir við
losun gróðurhúsalofttegunda, á
grundvelli okkar sérstöðu sem við-
urkennd var árið 2001," sagði Geir
H. Haarde forsætisráðherra í svari
við fyrirspurn Valgerðar Sverrisdótt-
ur, þingmanns Framsóknarflokks, á
Alþingi í gær.
Þórunn Sveinbjarnardóttir um-
hverflsráðherra hefur áður sagt að
ekki ætti að sækja um slíka undan-
þágu.
Mislukkuð
sameining
Draga má í efa að sameining
St. Jósefsspítala og Sólvangs hafi
átt rétt á sér, segir í nýrri stjórn-
sýsluúttekt Ríkisendurskoðun-
ar á rekstri stofnunarinnar. Þar
segir jafnframt að ekki hafi verið
staðið nógu vel að undirbúningi
og framkvæmdinni á sameiningu
stofnananna.
Starfsemi St. Jósefsspítala
- Sólvangs er sögð einkennast
af faglegum metnaði og góðum
starfsanda. Brotalamirnar koma
hins vegar í ljós þegar litið er til
sameiningarinnar. Ekki hafl verið
gerðar formlegar áætlanir um
kostnað og tímamörk né held-
ur hafi verið sett markmið um
hverju sameiningin ætti að skila.
Fréttablaðið
tapar lesendum
Fréttablaðið hefur tapað nálægt
tíunda hverjum lesanda á einu ári. í
nýrri mælingu Capacent kom á dag-
inn að meðallestur á Fréttablaðinu
var rúm sextíu prósent á tímabilinu
•5m',st til október í
haust, en var
tæp sjötíu
prósent um
svipað leyti í
fýrra. Meðallest-
ur á Morgunblað-
inu og 24 stundum
mælist nánast sá sami,
43 og 42 prósent. Fyrir rúmu ári lásu
49 prósent Morgunblaðið og 46 pró-
sent 24 stundir, sem þá hét Blaðið.
Fréttablaðið er prentað í um 103
þúsund eintökum á degi hverjum og
má því áætla að um 39 þúsund ein-
tök af Fréttablaðinu fari forgörðum á
degi hverjum samkvæmt útreikning-
um þeirra sem til þekkja.
Erþettaþá
svört rjúpa?
FRÉTTASKOT
51 2 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónurfýrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 ■ DAGBLAÐIÐ VlSIR STOFNAÐ 1910
/
/
/
AF RJUPNASKYTTUNUMj
Landeigendur innheimtu hálfa milljón króna í veiöigjöld á umdeildu landsvæði:
HEIMTUÐU VEIÐIGJ0LD
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladamadurskrifar:
Landeigendumir Pétur Gíslason og
Sigfús Illugason sitja fyrir rjúpnaveiði-
mönnum og innheimta veiðigjald fyrir
veiði í Reykj ahlíðarlandi í Mývamssveit.
Þetta gera þeir þrátt fyrir ágreining um
réttmæti þeirra til innheimtunnar við
Dalfjall og Búrfellshraun.
Veiðitímabilið hófst 1. nóvember
og má veiða frá fimmtudegi til sunnu-
dags um hverja helgi til loka mánaðar-
ins. Um síðustu helgi greiddu ríflega 70
veiðimenn veiðigjöld hjá Pétri og Sig-
fúsi. Þeir sátu fyrir veiðimönnum niðri
við þjóðveg og innheimtu 7.000 krónur
á mann fyrir daginn. Þessa fyrstu helgi
veiðitímabilsins fengu þeir því tæpa
hálfa milljón fyrir veiðigjöldin.
Margir kvartað
Sigmar B. Hauksson, formaður
Skotveiðifélags íslands, segir marga
ósátta veiðimenn hafa leitað til fé-
lagsins síðustu ár vegna málsins.
Hann segir veiðimenn telja að um
almenning sé að ræða og því hafi fé-
lagarnir ekki heimild tíl gjaldtöku. „Ef
landeigandi getur sannanlega sýnt
fram á eign sína á hann auðvitað all-
an veiðirétt. Það er alveg skýrt. Ef svo
er ekki, getur landeigandi ekki rukk-
að veiðigjöld. f þessu tilviki fær mað-
ur tilfinningu fyrir því að viðkomandi
hafi séð óvænt tækifæri til tekjuöfl-
unar," segir Sigmar.
Pétur er ánægður með ásókn veiði-
manna þessa fyrstu helgi tímabilsins.
Hann viðurkennir að sumir hafi snú-
ið við ósáttir þar sem þeir vildu ekki
greiða gjöldin. „Ég er umsjónarmað-
ur landsins sem leigutaki og á ákveð-
Greiða fyrir veiðina Hluti landeigenda
Reykjahlíðarlandsins í Mývatnssveit
rukkar veiðigjöld í óþökk rjúpnaskyttna.
inn hlut í því. Veiðirétturinn liggur hjá
mér og Sigfúsi, þegar menn mæta á
svæðið þurfa þeir að greiða gjöld hjá
okkur" segir Pétur. Hann segir landið
alls ekki almenning.
Láta kæra sig
Aðspurður segir Pétur flesta sætta
sig við gjaldtökuna. „Við erurn niðri við
þjóðveginn og gerum mönnum grein
fyrir því að þeir þurfi að borga. Við
tökum aðeins við aurum og helst ekki
kortum. Yfirleitt borga menn bara en
það eru ekki alltaf alfir sáttir. Einhverjir
hurfu frá."
Sigmar segir Skotveiðifélag íslands
lítið geta aðhafst annað en að lið-
sinna félagsmönnum við að leita rétt-
ar síns. Hann telur mjög athugandi
fyrir skattayfirvöld að skoða hvort tví-
menningarnir gefi upp þessar tekjur.
„Þetta er náttúrlega „svart" allt saman
og ég veit að þeir gefa engar kvittanir.
f rauninni er fátt annað í stöðunni en
að veiðimenn hreinlega veiði á svæð-
inu án þess að greiða veiðigjöld og láti
kæra sig fyrir athæfið. Þeir sem rukka
þurfa þannig að fara í mál við viðkom-
andi veiðimenn og sanna rétt sinn fyrir
dómi. Líkurnar á því að veiðimaðurinn
vinni málið eru gríðarlega miklar" seg-
ir Sigmar.
Fjör á Alþingi Alþingismönnum virtist skemmt í gær þótt umræðuefnið væri alvarlegt, verðbólga og stjórn efnahagsmála. Guðni
Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði ríkisstjórnina ráðþrota en Geir H. Haarde forsætisráðherra gaf lítið fyrir málflutn-
ing hans. Sjá bls. 2. DVmyndStefán
Hafnarvörður brýtur tollalög í annað sinn:
Faldi smyglið í áhaldahúsi
Tómas Sigurðsson, hafnarvörð-
ur á Raufarhöfn, var í gær dæmdur
til að greiða 150.000 krónur í sekt
fýrir tollalagabrot. Tómas keypti
þrjátíu og tvo lítra af smygluðu
áfengi og faldi það í læstri geymslu
í áhaldahúsi sveitarfélagsins. Sjálf-
ur segist hann ekki hafa keypt vínið
fýrir sig heldur vin sinn sem treysti
sér ekki til að sjá um kaupin sjálf-
ur, þar sem sá var ekki viss um að
skilja útlendingana sem áfengið
var keypt af.
Viðskiptin fóru fram í október í
fyrra en lögreglumenn lágu í leyni
og horfðu á kaupin fara fram. Sáu
þeir hvar félagarnir óku að skips-
hlið á flutningaskipinu Altmair
sem lá við höfn á Raufarhöfn, tóku
við þremur svörtum ruslapokum
og óku síðan á brott. Lögreglan tók
skýrslu af Smára Guðmundssyni,
vini Tómasar, síðar um kvöldið,
hann játaði skilyrðislaust að hafa
farið með Tómasi að kaupa vínið,
þeir svo farið með það í áhaldahús-
ið og gengið vel frá því. Vísaði hann
þeim svo á vínið.
Tómas krafðist sýknu en hann
telur sig ekki hafa framið brot held-
ur aðeins átt hlutdeild að þessu
máli. Hann ber hins vegar ábyrgð
á áhaldahúsinu auk þess sem hann
gegnir trúnaðarstarfi fyrir hrepp-
inn. Kemur þá fram að þeir hafi
ekki verið þeir einu sem keyptu
áfengi, og tóbak að auki, af skip-
verjum. Ahöfnin hafi sjálf séð um
að vakta skipið umrætt kvöld og
því ekki hægt að segja að hann hafi
verið á vakt.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Tómas gerist sekur um tollalaga-
brot. Hann hafði áður gengist und-
ir sektargjörð vegna smygls.
Tvær bílveltur á
skömmum tíma
Lögreglan á Hvolsvelli fékk í
gær tilkynningu um tvær bílvelt-
ur á Mýrdalssandi með stuttu
millibili. Að sögn varðstjóra hjá
lögreglunni urðu velturnar milli
klukkan ijögur og fimm síðdeg-
is en báðar má rekja til þæfings-
færðar og hálku. Ekki bætti úr að
bílarnir voru ekki undir það búnir
að aka um í hálku og snjó en báð-
ir voru á sumardekkjum. Fólkið
sem var í bílunum slasaðist ekki
en bílarnir voru fluttir burt með
dráttarbíl.
Borgaði með korti
annars manns
Reynir Tómas Gunnarsson var
í gær dæmdur í tveggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
nota greiðslukort annars manns til
að borga fyrir veitingar á skemmti-
staðnum Pravda fyrr á þessu ári.
Hann sveik út tuttugu og fimm þús-
und krónur auk þess sem hann gerði
tilraun til að svíkja út tvö þúsund og
tvö hundruð til viðbótar.
Þetta er í annað sinn sem Reynir
er dæmdur en með þessu afbroti
rauf hann fyrra skilorð. Hann hefur
greitt eiganda greiðslukortsins upp-
hæðina til baka auk vaxta.
/
Litlur samlokur 399 kr.
+ lítid gosglas 100 kr.
= 499