Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2008, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR2008
Sport DV
Aston Villa - Newcastle 4-1
0-1 M. Owen ('4) ,1-1 W. Bouma ('48),
2-1 J.Carew('SI), 3-1 J.Carew (72),
4-1 J. Carew ('90, víti)
Bolton -Portsmouth 0-1
0-1 L. Diarra ('81)
Derby-Tottenham 0-3
0-1 R. Keane ('68), 0-2 Y. Kaboul ('81),
0-3 D. Berbatov ('93, víti)
Everton - Reading 1-0
1-0P.Jagielka('62)
Middlesbrough - Fulham 1-0
1 -0 J. Aliadiére ('l 1)
Sunderland - Wigan 2-0
1-0 D. Etuhu ('42), 2-0 D. Murphy (76)
West Ham - Birmingham 1-1
1-0 F. Ljungberg (7), 1-1 J. McFadden
('16, viti)
Man.Utd -Man.City 1-2
0-1 D. Vassell ('24), 0-2 B. Mwaruwari
('45), 1-2 Michael Carrick ('92)
Chelsea - Liverpool 0-0
Staðan
Liö L U J T M St
1. Arsenal 25 18 6 1 52:18 60
2. Man.Utd 26 18 4 4 50:14 58
3. Chelsea 26 16 7 3 38:17 55
4. Everton 26 14 5 7 41:23 47
5. Liverpool 25 11 11 3 40:17 44
6. Aston Villa26 12 8 6 48:34 44
7. Man.City 26 12 8 6 34:29 44
8. Portsm 26 11 8 7 36:26 41
9. Blackburn 25 10 9 6 32:31 39
lO.WestH 25 10 7 8 30:23 37
11. Totten 26 8 8 10 48:41 32
12. Middle 26 7 8 11 23:38 29
13. Newcas 26 7 7 12 29:47 28
14. Sunderl 26 7 5 14 26:45 26
15. Bolton 26 6 7 13 26:35 25
16. Wigan 26 6 5 15 24:42 23
17. Birming 26 5 7 14 25:38 22
18. Reading 26 6 4 16 30:53 22
19. Fulham 26 3 10 13 25:44 19
20. Derby 26 1 6 19 13:55 9
Markahæstir:
Ronaldo Man Utd 19
Adebayor Arsenal 18
Keane Tottenham 12
Torres Liverpool 12
Anelka Chelsea 11
Santa Cruz Blackburn 11
ENSKA 1. DEILDIN
Hull-Blackpool 2-2
Ipswich-Watford 1-2
Preston-Coventry 1-0
Sheff.Utd.-Scunthorpe 0-0
Southampton-Q.P.R. 2-3
Wolves-Stoke 2-4
Leicester-Plymouth 0-1
Barnsley-WBA 2-1
Bristol-Sheff.Wednesday 2-1
Burnley - Colchester 1 -1
Jóhannes Karl Guðjónsson spilaði 52.
minútur með Burnley.
Cardiff- Norwich 1-2
Staðan Liö L u J T M St
1. Watford 31 16 7 8 51:38 55
2.W.B.A. 31 16 6 9 66:40 54
3. Bristol C. 31 15 9 7 38:38 54
4. Stoke 31 14 11 6 52:39 53
5. Charlton 31 14 8 9 44:34 50
6. Ipswich 31 12 9 10 48:40 45
7. C.Palace 31 11 12 8 37:31 45
8. Hull 30 12 9 9 37:34 45
9. Burnley 31 11 11 9 40:39 44
10. Plymou 31 11 10 10 37:32 43
11. Cardiff 31 11 10 10 42:40 43
12. Wolves 31 11 10 10 30:34 43
13. Norwich 31 11 8 12 31:36 41
14. Barnsley 31 10 10 11 37:46 40
15. Q.P.R. 31 10 9 12 40:45 39
16. Blackp 31 9 11 11 40:40 38
17. Sheff.Utd31 9 11 11 34:36 38
18. Southa 31 10 8 13 40:50 38
19. Coventry30 10 5 15 34:46 35
20. Leicester 31 7 13 11 29:30 34
21. Preston 31 9 6 16 30:38 33
22. Sheff.W 30 9 4 17 33:40 31
23.Scunth 31 7 10 14 29:45 31
24. Colchest 30 5 13 12 42:50 287
Markahæstir:
Phillips WestBrom 16
Fuller Stoke 14
Kann á Ferguson
Sven-Göran Eriksson vann
sir Alex Ferguson þrisvar í röð.
Er. Sigunnnvar
Wayne Rooney
iter-liðinuvegna
x íiðið tapað pór-
, Eriksson, stjóri
Alex Ferguson
1
Manchester United laut í gras fyrir
Manchester City á Old Trafford í
gær. Leikar enduðu 1-2 íyrir City-
menn sem fögnuðu óvæntum en
verðskulduðum sigri. Fyrir leikinn fór
fram minningarathöfn vegna þeirra
leikmanna sem fórust í flugslysinu í
Miinchen árið 1958.
Ferguson var bjartsýnn fyrir leik-
inn og stillti upp sókndjörfu liði.
Hvorki Carrick né Heargraves var
á miðjunni hjá Manchester Unit-
ed og Scholes og Andersson spil-
uðu í fyrsta skipti saman á miðjunni.
Manchester City sat til baka í upp-
hafi og beið þess að verjast sóknar-
lomm Manchester United. Fyrsta
færi leiksins féll í skaut Ryans Giggs
sem skaut knettinum yfir markið úr
fínu færi. Svo virtist sem einungis
tímaspursmál væri hvenær Ronaldo
kæmist inn í leikinn og Manchester
færi að þjarma almennilega að vöm
Manchester City. En áhlaupið kom
aldrei og Manchester City-menn
fengu aukið sjálfstraust.
1 -0 eftir skyndisókn
Eftír skyndisókn komust leik-
menn Manchester City yfir. Darius
Vassel fylgdi eftir skotí frá Stephen
Ireland og skoraði í annarri tilraun.
Gott hlaup firá Petrov, sem átti mjög
góðan leik, skapaði færið en hann
átti reglulegar áætlunarferðir fram
kantinn í fyrri hálfleik. í stað þess
að tvíeflast við mótlætíð koðnuðu
leikmenn Manchester United nið-
ur. Snilld Ronaldos virtíst víðs fjarri
en að auki vantaði Rooney í fram-
línunni sem var í banni. Þegar svo er
vantar ansi mikið bit í sóknarleikinn
sem var ólíkur því sem hann hefur
verið að undanförnu, hægur og hug-
myndasnauður.
Manchester City hafði ekki sagt
sitt lokaorði í fyrri hálfleik. Af og
til ógnaði liðið marki Manchester
United og eftir hornspyrnu barst
Slakur í stórleikjum Ronaldo er ekki
svipur hjá sjón í stórleikjum.
knötturinn til Petrovs. Hann
negldi knettinum fyrir markið og
Benjani fleytti honum f fjærhornið
ffamhjá varnarlausum Edwin Van
Der Saar. Fyrsta mark hans fyrir
félagið eftir einhver furðulegustu
félagsldpti síðari ára. Fáir bjuggust
við hálfleiksstöðunni 0-2 en hún var
staðreynd engu að síður.
City-menn byrjuðu síðari hálf-
leikinn þar sem frá var horfið. Didi
Hamann þrumaði af 25 metrum sem
Van der Sar varði. United leitaði að
opnun varnarinnar hjá City en tókst
ekki. Richard Dunne og félagar í
vörn City stóðust öll þau áhlaup sem
heimamenn buðu upp á. Tevez hélt
að hann hefði skorað markið sem
hefði komið United inn í leikinn en
var réttilega dæmdur rangstæður.
Sir Alex hafði séð nóg og setti Har-
greaves og Michael Carrick inn á fyr-
ir O'Shea og Anderson. Sven-Göran
svaraði með því að taka Benjani út og
setja Felipe Caceido inn. Ljóst var að
City-menn myndu fara með sigur af
hólmi því tíminn var einfaldlega ekki
nægur fyrir Manchester. Skömmu
fyrir leikslok minnkaði Carrick mun-
inn en það var of h'tið og kom of seint.
Stuðningsmenn City fögnuðu óg-
urlega þegar Howard Webb flautaði
leikinn af en þetta er fyrstí sigur liðs-
ins á Old Trafford síðan 1974. Þetta
er einnig í fyrsta sinn sem City vinn-
ur granna sína í báðum deildarleikj-
um síðan 1970. Sven-Göran Eriks-
son virðist vita hvað þarf til að vinna
kollega sinn sir Alex Ferguson. Hann
hefur unnið hann þrisvar sinnum í
röð, tvisvar á þessu tímabili og einn-
ig með Lazio árið 1999. Manchester
var búið að vinna 13 leiki í röð fyrir
leikinn og stuðningsmenn Arsenal
hafa væntanlega fagnað sigri City vel
og innilega.
Byrjunin kostaði okkur sigur
Carlos Queiroz, aðstoðarmaður
Alex Ferguson, var mættur galvask-
ur í viðtöl eftir leik. Stjórinn sjálfur
sá hins vegar ekki ástæðu til að svara
fyrir tapið, hefurvæntanlegaverið að
taka hárþurrkumeðferðina klassísku
á leikmenn sína. „Það voru afar mik-
il vonbrigði að tapa þessum leik, sér-
staklega á þessum degi en við spiluð-
um ekki vel.
Þessi leikur var einn af þessum
leikjum þar sem strákamir vildu
standa sig sem best og gera allt til að
vinna. En það vantaði allan hraða og
kannski vorum við yfirspenntir. City-
liðið var mjög hreyfanlegt og sterkt í
skyndisóknum."
Queirozbættí við að landsleikirnir
í miðri viku hefðu ekki beint hjálpað
til. „Það voru sjö eða átta leikmenn í
liðinu sem spiluðu 90 mínútur í vik-
unni með sínum landsliðum. Það
hjálpaði ekki við undirbúninginn því
þeir voru þreyttír. Nokkrir lykilmenn
voru ekki eins einbeittir og þeir eiga
að sér. Það voru nokkur mistök sem
eru sjaldséð, slæmar fyrstu snertíng-
ar á boltanum og fleira. En við not-
um það ekki sem afsökun."
Þrátt fyrir tapið neitaði Portúgal-
inn að titíllinn sé genginn úr greip-
um Manchester United. „Það er enn
langt eftir og fullt af leikjum sem á
eftir að spila. Við þurfum að losna við
þennan leik úr hausnum sem allra
fyrsL Við urðum eldd lélegt lið með
VIÐAR GUÐJÓNSSON
bladamadur skrifar: vidar@dv.is
3rrkk90
Vassell 2S Benjani 45
2% MEÐ BOLTANN 38%
9 SKOTAÐ MARKI 9
SKOTÁMARK 5
RANGSTÖÐUR 0
HORNSPYRNUR 7
AUKASPYRNUR 13
GUL SPJÖLO 0
RAUÐ SPJÖLD 0
VanderSar,Brown,Vidic
Ferdinand, O'Shea (Carríck 73),
Nani (Park 64), Scholes, Anderson
(Hargreaves 73), Giggs, Ronaldo,
Tevez.
Hart Onuoha, Richards, Dunne,
Ball, Vassell, Ireland, Hamann
(Jihai 84), Gelson, Petrov (Garrido
87), Mwaruwari (Caicedo 75).
MAÐUR LEIKSINS
Richard Dunne, Man. Qty
þessari frammistöðu, þvert á móti.
Það er enn góður möguleiki að við
hömpum titlinum í maí. Við þurfum
að sýna Arsenal næstu helgi að þessi
leikur var sfys og við ætlum okkur að
berjast um titilinn," sagði Queiroz.
Ógleymanleg stund
„Sex stig gegn Manchester United
er mjög gott. Allir tengdir Manchest-
er City geta verið stoltír eftír þenn-
an sigur, frá áhorfendurm til leik-
manna," sagði Svíinn Sven-Göran
Eriksson eftir sigurinn. „Mér fannst
við eiga þetta skilið. Við spiluðum vel
og sköpuðum fleiri færi. Eg er stoltur
af leikmönnum mínum og ánægður
fyrir hönd aðdáenda okkar.
Þetta var mikilvægur leikur fyrir
báða aðila. Okkur hafði ekki geng-
ið vel og þeir vildu halda í við Ars-
enal. En við vorum betur stemmdir
og sýndum hvað við getum. Það eru
ekki allir sem geta sagt að þeir hafi
komið á Old Trafford og unnið. Hvað
þá átt það skilið."
Fyrir leikinn lögðu stjórarnir,
Sven-Göran og sir Alex, blómsveig
á miðju vallarins. „Mér var sýndur
mikill heiður með því að fá að taka
þátt í þessu. Ég hef aldrei gert neitt
líkt þessu og blómin, þögnin og
stemningin gerðu þetta að ógleym-
anlegri stund."