Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
Skera niður
rekstrarkostnað
FL Group hefði þurft að fara
í brunaútsölu á sínum eignum
ef Baugur hefði ekki komið inn í
félagið, sagði Jón Ásgeir Jóhann-
esson í hádegisviðtali Stöðvar 2
í gær.
Jón Ásgeir sagði að tekið yrði
verulega til í rekstri FL Group
og vildi meina að því hefði ver-
ið komið í var um stundarsakir.
Núverandi stjórnendur félagsins
muni ekki sætta sig við aðra eins
útreið í framtíðinni. Hann sagði
að gera þyrfti betur en svo að
skera niður rekstrarkostnað FL
Group um 50% eins og forstjóri
félagsins Jón Sigurðsson hafði
látið hafa eftir sér, rekstrarkostn-
aður félagsins á síðasta ári nam
rúmum 6 milljörðum króna.
Sektaðurfyrir
lyfjaakstur
43 ára karlmaður var í
gær dæmdur til greiðslu 180
þúsund króna sektar fyrir
að hafa ekið með leifar af
kannabisefnum í blóðinu.
Maðurinn var stöðvaður 7.
september síðastliðinn fyrir
utan veitingahúsið Hafið Bláa í
Ölfusi en í blóði hans reyndist
vera tetrahýdrókannabínólsýra
sem er óvirkt niðurbrotsefni
frá kannabis.
Meðfíkniefni
á ferðinni
Maður var handtekinn á
Akureyri seinnipart sunnu-
dags grunaður um að aka undir
áhrifum fíkniefna. Uppruna-
lega stöðvaði lögreglan mann-
inn vegna umferðarlagabrots. f
kjölfarið kviknaði grunur um að
maðurinn væri undir áhrifum
lyfja. Þegar leit var gerð á mann-
inum kom í ljós að hann var
með nokkuð magn af fíkniefn-
um meðferðis. Málið var unnið
í samstarfi við lögreglumenn úr
sérsveit ríkislögreglustjóra. Mað-
urinn var yfirheyrður af lögreglu
og síðan sleppt íausum.
Keypti vörur
meo stolnu korti
Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu brýnir fyrir af-
greiðslufólki verslana að
skoða vel myndir á bakhlið
greiðslukorta og bera saman
við handhafa.
Tilefni þessa er að lögregl-
an handtók fyrir helgina mann
sem brotist hafði inn í íbúð
og stolið þaðan meðal annars
greiðslukorti húsráðanda.
Kortið notaði viðkomandi
síðan til að svíkja út vörur í
verslunum. Nýlega komst upp
um ungan mann sem keypt
hafði vörur í einni verslun í
tvígang sama dag fyrir rúmar
300 þúsund krónur. Hann
lét útbúa raðgreiðslur í bæði
skiptin, sem er sennilega til
þess að eiga síður hættu á að fá
synjun á kortið.
Afgreiðslumenn Pizza Pronto voru sérstaklega óheppnir síðasta
föstudag en þá var ráðist inn á staðinn tvisvar sinnum. Smári
Hreiðarsson, eigandi veitingastaðarins, segir að upphafs megi
leita til stympinga. Einn afgreiðslumaður fékk nokkurs konar
piparúða í augun, auk þess sem dólgarnir tóku peninga og unnu
skemmdir inni á staðnum.
VALUR GRETTISSON
blaöamadur skrifar: valur^dv.is
„Þetta virðist hafa byrjað á
einhverjum stympingum," segir
Smári Hreiðarsson, eigandi Pizza
Pronto, en unglingagengi réðst
tvisvar sama kvöldið inn á staðinn
um síðustu helgi. I fyrra skiptið lentu
þeir í orðaskaki við marókkóska
starfsmenn sem stóðu vaktina.
Þá rændu þeir einnig staðinn og
komust undan með einhverja
peninga. Að sögn Smára var það
óveruleg upphæð, í rauninni klink,
eins og hann orðar það. Aðeins
nokkrum klukkutímum síðar, sama
kvöld, réðust piltarnir aftur inn á
staðinn. Nú vopnaðir piparúða.
Þeir sprautuðu eitrinu í augun á
starfsmanni og lömdu annan með
kókdós. Málið er í rannsókn.
Átök á Pronto
Það var á föstudagskvöldið sem
drengimir, sem eru á bilinu 16 ára
til tvítugs, komu inn á Pizza Pronto-
veitingastaðinn við Ingólfstorg. Svo
virðist vera sem eitthvert orðaskak
hafi átt sér stað á milli starsmann-
anna og tveggja pilta. Það rifrildi
virðist hafa undið upp á sig með
þeim afleiðingum að átök urðu inni
á staðnum. I glundroðanum eiga
piltamir að hafa tekið klink úr pen-
ingakassanum. Síðan hlupu þeir á
brott. Atvikið var tilkynnt til lögreglu
og fékk hún greinargóða lýsingu á
mönnunum tveimur. Nokkm síðar
hafði lögreglan hendur í hári þeirra.
Þeim var svo sleppt að yfirheyrslu
lokinni.
Sneru aftur
Það var svo rétt fýrir miðnætti
sem einn sjónarvottur sem hafði
samband við DV átti leið hjá staðnum.
Þegar hann kom fýrir homið hjá
Ingólfsstræti mættu honum 6-8
menn með hettur á höfðinu.
„Mér sýndust þetta vera svona
sex til átta strákar. Mér fannst eins og
þetta væm hnakkar og er ekki frá því
að þeir hafi verið svolítið neyslulegir,"
sagði sjónarvotturinn sem er á
þrítugsaldri.
Meisuðu Marókkóbúa
Aðkomanvirðisthafaveriðnokkuð
lj ót. Einn starfsmannanna virðist hafa
fengið einhvers konar úða í augun en
sj álfúr segir Smári að þetta virðist ekki
hafa verið piparúði. Engir peningar
vom teknir í þetta skiptið - enda
nýbúið að ræna staðinn. Piltamir
virðast hafa gengið berserksgang inni
á staðnum, stóli var hent í rúðuna en
hún brotnaði ekki. Þá var allt á rúi og
stúi inni á staðnum. Lögreglan var
þá aftur kölluð á svæðið og tók hún
skýrslur af starfsmönnum og vitnum
að atburðinum sem virðast hafa
verið nokkur. Einn starfsmaðurinn
var laminn með kókdós í andlitið og
hlaut minniháttar skurð við eyra, að
sögn Smára.
Heldur strikinu
„Við höldum okkar striki," segir
Smári en hann hefur reldð Pizza
Pronto-staðinn núna í fjögur ár í
miðbæ Reykjavíkur. Hann segir
oft koma til stympinga í miðbæ
Reykjavflair eins og gengur og gerist.
Honum sé svo sem ekki bmgðið
vegna málsins, hann er bara sáttur
við að ekki fórverr. Starfsmönnunum
tveimur var aftur móti bmgðið en
þeir fengu aðhlynningu læknis eftir
atburðinn. Þeir em hins vegar snúnir
aftur til starfa og láta atvikið ekki á sig
fá. „Maður sofnar alveg í kvöld. Ég
held að það sé svo sem engin ástæða
til þess að óttast þetta, hingað til
höfúm við alveg verið laus við þetta,"
segir Smári og bendir á að Reykjavík
sé bara orðin stórborg. Þá megi búast
við öðm eins.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
rannsakar málið. Yfirlögregluþjónn-
inn Friðrik Smári Björgvinsson segir
málið á frumstigi í rannsókn. Þá
gmnar aftur á móti hverjir eigi hlut
að máli. Hann segir það þó óljóst
hversu mikið fé var tekið í fyrstu
adögunni.
RÆNDU SAMA
'CA Cff CfCCCf 3Cf CffiCff* IVltZI fCfffv f2>C
eins og þetta væru hnakkar og
er ekki frá því að þeir hafi ver-
ið svolítið neyslulegir."
PITSUSTAÐ TVISVAR
Nýliðun í fiskveiðum ógjörningur vegna hás kvótaverðs:
30 ár að borga kvóta
„Ef ég væri afar hugaður mað-
ur og færi í gallann til veiða þá lít-
ur þannig út að ég þyrfti að veiða
hvert kíló í þrjá áratugi til þess eins
að borga upp kaupverðið. Það tekur
óratíma að vinna kvótakaupin upp,
sérstaklega í sambandi við þorsk-
inn. Ýsan er skárri en það er degin-
um ljósara að vonlaust er fýrir byrj-
endur að kaupa kvóta," segir Eggert
Jóhannesson, kvótamiðlari hjá Bát-
um og kvóta.
Kílóverð af þorskkvóta er nærri
4.000 krónur á hvert kíló. Síðast-
liðið vor kostaði kílóið 3.000 krón-
ur og þótti mörgum nóg um. Síðan
þá hefur verðið hækkað nokkuð og
ógjörningur er fyrir nýliða að kom-
ast inn á markaðinn. Sé litið framhjá
lántökukostnaði, vöxtum og rekstr-
arkostnaði tekur það venjulegan
kvótakaupanda 3 áratugi að vinna
fyrir kaupunum. Það þýðir að við-
komandi þyrfti að selja hvert kíló í
30 ár til þess að ná inn fyrir kaup-
verði hvers kílós.
Eggert staðfestir að kílóverð af
þorskkvóta sé í kringum 4.000 krón-
ur um þessar mundir. Kílóverðið
hefur hæst farið í 4.200 krónur und-
anfarið og nú er því afar hentugt að
selja kvóta. „Bankarnir hafa verið
mjög rólegir í að lána fyrir kvóta.
Það er bara ekki lengur hægt að
byrja í þessum bransa. Það var erf-
itt í vor en ómögulegt í dag. Leigan á
kvótanum er ekkert skárri. Leigan er
erfið og kvótinn ómögulegur. Útlitið
er ansi svart fýrir þá sem vilja byrja,
það er eiginlega alveg vonlaust,"
segir Eggert.
„Reikni bara hver fyrir sig. Síð-
an er hægt að horfa líka á þetta frá
hinni hliðinni. Áður fékkst afar lít-
Ógjörningur Hátt kilóverð fyrir þorskkvóta hamlar nýliðun I atvinnugreininni þar
sem aðeins voldug útgerðarfyrirtaeki geta keypt kvóta (dag.
ið fyrir kvótann eða eiginlega brot Ef menn á annað borð vilja selja er
af því sem nú fæst. Kílóverðið hefur tíminn núna. Verðtindinum hefur
þrefaldast á síðustu þremur árum. verið náð í bili að mínu matí