Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Blaðsíða 15
PV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 15
^^ _1
11 í röð hjá Manchester Svavar hlustar á Metallica I
ÍR GERÐI SÉR LÍTIÐ FYRIR OG VANN ÍSLANDSMEISTARA KR 87-83 í ICELAND EXPRESS DEILD KARLA. BLS 16.
Harry Redknapp seldi Hermanni Hreiðarssyni húsið sitt.
Harry
Redknapp seldi Hermanni
Hreiðarssyni eitt af húsum sinum.
Harry græddi á Hermanni
I larry Redknapp, sem fékk Her-
mann Hreiðarsson til Portsmouth frá
Charlton, seldi honum húsið sitt og
græddi 450 þúsund pund, rúmlega
50 milljónir láóna. Þetta kemur fram í
The Mirror í gær. Harry og kona hans,
Sandra, keyptu lúxushús við sjóinn
í Portsmouth á 2,4 milljónir punda,
rúmlega 313 milljónir króna, árið
2006 en inni í því eru meðal annars
bíósalur og sundlaug. Þegar svo Her-
mann var að leita sér að húsi fyrir sig
og sína fjölskyldu í Portsmouth benti
Harry honum á húsið og Hermann
keypti það á 2,85 milljónir punda,
rúmlega 372 milljónir króna.
Robert Dunford fasteignasali sagði
að græða 19% á 10 mánuðum
væri einungis góður bisness.
„Fasteignaverð hefur hækkað
hér í Portsmouth en ekki um
20%. Það lítur út fyrir að Harry
hafi einfaldlega gert góða
hluti." Hermann á heima í
Branksome Park í Dorset
sem er að verða paradís
fyrir leikmenn Ports-
mouth því fyrir utan
Hermann búa Pedro
Mendes, Silvan Distin
og Sulley Muntari allir í
hverfinu. Harry á einnig
hús þar, villu sem metin
er á yfir milljarð króna.
Hermann, sem er 33 ara,
býr í Portsmouth ásamt konu
sinni Rögnu Lóu Stefáns-
dóttur og tveimur börnum
þeirra. Ragna á fyrir tvö börn
úrfyrrasambandi.
benni@dv.is