Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 Fréttir DV Manuela Ramin-Osmundsen sagði af sér ráðherradómi í Noregi eftir að uppgötvað- ist að hún réð vinkonu sína i starf umboðs- manns barna. Feluleikur ráðherrans með vinskapinn kostaði hana starfið þó fæstir efuðust um að nýi umboðsmaðurinn væri hæfasti umsækjandinn. Fá dæmi eru um að íslenskir ráðamenn segi af sér. ráðherrann í ríkisstjórn lands- ins. Stoltenberg studdi við bak- ið á Manuelu til að byrja með, en sá sér síðar ekki annað fært en að fara fram afsögn hennar. Þá hafði komið í ljós að hún hafði ekki sagt honum allan sannleikann. Manu- ela Ramin-Osmundsen undir- strikaði að hún hefði haft hags- muni barna að leiðarljósi þegar hún skipaði Kraby sem umboðs- mann barna, en sagði síðan: „En þegar efasemdir hafa vaknað um hana, verð ég að axla ábyrgðina og taka afleiðingunum með því að segja af mér." KOLBEINN ÞORSTEINSSON bladamadur skrifar: kolbeimwdv.is Manuela Ramin-Osmundsen, ráðherra barna- og jafnréttismála í Noregi, sagði af sér fyrir helgi eftir aðeins fjögurra mánaða setu. Ramin-Osmundsen braut blað í sögu stjórnmála í Noregi með því að verða fyrsti innflytjandinn sem skipaður er í embætti í ríkisstjórn landsins. Manuela Ramin-Osmundsen fæddist á Martiník-eyju í Kar- íbahafmu og hefur búið í Noregi síðan 1991 og varð norskur ríkis- borgari síðla árs 2007. Sök Ramin-Osmundsen var að skipa í embætti umboðsmanns barna Idu Hjort Kraby. Réttmæti þeirrar ákvörðunar er strangt til tekið ekki dregið í efa, enda var Kraby talin hæfust þeirra sem sóttust eftir stöðunni. Manuela Ramin-Osmundsen hafði hins vegar látið undir höfuð leggj- ast að gera heyrinkunna þá stað- reynd að þær hefðu verið vinkon- ur til margra ára. Hún hafði látið í veðri vaka að þær þekktust, en væru ekki eins miklir vinir og síð- ar átti eftir að koma í ljós. Ekki leið á löngu áður en fjölmiðlar höfðu grafið upp sögu vináttu sem rekja mátti tuttugu ár aftur í tímann. Forsætisráðherra í klípu Málið einokaði norska fjöl- miðla og spjótin beindust að Manuelu sem og Jens Stolten- berg, forsætisráðherra Noregs. Hann hafði talið skipan hennar í ráðherraembætti fjöður í hatt sinn og verið stoltur af þeirri skipan því hún var fyrsti þeldökki Vinkonan fylgir í kjölfarið En ekki voru öll kurl komin til grafar og það sem hófst sem skvaldur breyttist í háværar radd- ir. Ida Hjort Kraby, sem hafði ver- ið þögul sem gröfin og ekki gefið færi á sér á meðan umræðan var hvað háværust, hafði gegnt stöðu umboðsmanns barna í nákvæm- lega eina viku þegar hún tók þá ákvörðun að taka pokann sinn. f yfirlýsingu sem Kraby sendi hvort tveggja fjölmiðlum og rík- isstjórninni sagði hún meðal annars að hagsmunum umboðs- manns væri „best þjónað" með afsögn sinni. Með afsögn sinni gaf Kraby ríkisstjórninni svigrúm til að skipa nýjan umboðsmann og ná sátt í málinu. Kraby og Ramin-Osmundsen höfðu báðar staðið frammi fyrir gagnrýnum spurningum af hálfu þingmanna stjórnarandstöðunnar og ljóst að trúverðugleiki þeirra hafði beðið hnekki. Ekki í fyrsta skipti Manuela Ramin-Osmund- sen var yfirmaður útlendinga- '■frvíí. 4 Manuela Ramin Osmundsen Sagði ekki allan sannleikann og sagði af sér Mannréttindasamtök biöja galdranorn griða: Ólæs norn bíður aftöku Mannréttindasamtökin Human Rights Watch höfða til miskunnsemi stjómvalda Sádi-Arabíu í máli konu sem dæmd var til dauða fýrir galdra. Um er að ræða Fawza Falih, ólæsa konu sem trúarlögreglan handtók árið 2005 og sætti meintum bar- smíðum áður en hún var neydd til að setja fingrafar sitt á jámingu sem hún gat ekki lesið og var ekki lesin upp fýrir hana. í bréfi til Abdúlla, konungs Sádi- Arabíu, lýstu mannréttindasamtök- in réttarhöldum yfir konunni og sak- fellingu hennar sem réttarmorði og henni yrði aðeins bjargað fýrir til- stilli konungs, þar sem allar tilraun- ir hennar til að áfrýja dauðadómn- um hefðu mistekist. Á meðal þeirra sem kærðu konuna var karlmaður sem sakaði hana um að hafa valdið getuleysi hans. Abdúlla konungur er beðinn að ógilda dóminn yfir Fawza Abdúlla konungur Er sá eini sem getur bjargað lífi Fawza Falih. 1 Falih og leggja fram ákærur á hend- ur trúarlögreglunnar vegna með- ferðarinnar sem konan fékk af henn- ar hálfu. 1 bréfinu til Abdúlla segir ennfremur að konan hafi verið ákærð fýrir óskilgreindan glæp tengdan göldrum og sakfelling hennar hafi byggst á skriflegum framburði vima sem sögðu að hún hefði hneppt við- komandi í álög. Mannréttindasam- tökin gagnrýna réttarkerfi Sádi Arab- íu fýrir að hafa meinað Fawza Falih og fulltrúum hennar að vera við- stödd stærstan hluta réttarhaldanna. Þegar áffýjunardómstóll úrskurð- aði að konan skyldi ekki líflátin kvað dómstóll upp líflátsdóm að nýju og rökstuddi álwörðun sína með því að segja að hún þjónaði hagsmunum almennings. Mikil reiði ríkir í Serbíu Mikillar reiði gætir meðal Serba vegna sjálfstæðisyfirlýsingar yfir- valda í Kosovo-héraði. Serbar mót- mælm sjálfstæðisyfirlýsingunni víða á Balkanskaga í gær. f Belgrad, höfuðborg Serbíu, komu um sjö þúsund manns saman á götum borgarinnar, veifuðu serbneska þjóðfánanum og hrópuðu slagorð gegn Albönum. Sló þar í brýnu milli lögreglu og ungra Serba við bandaríska sendiráðið. f Kosovo komu fimm þúsund Serbar saman og sungu „Þetta er Serbía" og gengu um með borða með hjálparbeiðni til Rússa. Elstíheimi Mariam Amash frá bænum Jisr az-Zarqa í Palestínu segist hafa fæðst árið 1888. Ef það reynist rétt er hún elsta kona í heimi, 120 ára. Skilríki hennar renna stoðum undir fúllyrðingu hennar en ísraelsk yfirvöld fengu upplýsingar um fæðingarár hennar frá Tyrkjum, en þeir ríkm þar um þær mundir. Mariam Amash segist vera við hestaheilsu og vonist til að eiga að minnsta kosti tíu ár eftir. Mariam Amash á tíu börn, 120 barnabörn, 250 barnabarnabörn og þrjátíu barnabarnabarnabörn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.