Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Qupperneq 13
DV Neytendur ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 13 133,30 133,30 Orkan Spöng 137,40 N1 Gagnvegi 137,90 134,30 133,30 „Þú getur líka sparað peninga með breyttum aðferðum í akstri," ráðleggur Stefán Ásgrímsson, ritstjóri fréttablaðs FfB. Stefán er mörgum hnútum kunnugur þegar kemur að rekstri bfla. Hann gefur lesendum DV tíu góð ráð sem gott er að hafa í huga varðandi bflinn. Þess má geta að Stefán keyrði hringinn í kringum landið sumarið 2006 á Skoda Oktavia á aðeins einum tanki. IEkki kaupa stærri bíi en þú þarft Stærri bflar eyða meira eldsneyti. Veldu frekar bfl sem er spameytinn. Allt sem gert er til að draga úr bensín- eyðslu sparar peninga og dregur úr mengun. 2Vertu á góðum dekkjum Hafðu í huga að hægt er að fá hjólbarða sem draga úr núningsmótstöðu vegar. Minni núningsmótstaða, minni bensíneyðsla. 3Aktu á jöfnum hraða Hraðakstur eykur bensíneyðslu og veldur umhverf- isspjöllum. Sparaðu inngjöfina og forðastu snögg- hemlun. Með því sparar þú eldsneytið og dregur úr meng- un. Stöðvaðu hreyfilinn ef bfllinn er í hægagangi meira en eina mínútu. Hægagangur í eina mínútu er bensínfrekari en gangsetning. 4Hafðu réttan loftþrýsting í hjólbörðum Hafðu loftþrýsting í hjólbörðunum sem næst því há- marki sem framleiðandi gefur upp. Það dregur úr bensíneyðslu og eykur endingu hjólbarðanna. Loftþrýst- ingstöflu finnur þú í dyrastainum undir bensínlokinu. 5Ekki vera með aukaþunga í bílnum Aktu ekki með óþarfa hluti sem auka þyngd bflsins. Hvert aukakfló í bflnum þýðir aukna bensínnotkun. Forðastu að aka um með tóma farangursgrind eða opna glugga, það eykur verulega loftmótstöðu og þar með bens- íneyðslu og mengun. 6Notaðu bílinn rétt Skipuleggðu útréttingar. Betra er að stoppa nokkrum sinnum í einni ferð en fara margar smttar ferðir. Það styttir ekna vegalengd og eykur virkni hreinsikúta (katalísa- tora). Bfllinn notar eldsneytið best þegar hann er heitur. 7Hafðu bflinn rétt stilltan Mjög mikilvægt er að stilla gang bflsins. Sá kostnaður sem því kann að fylgja sldlar sér fljótt aftur með minni bensíneyðslu og auðvitað heilnæmara umhverfi. 8Notaðu innspýtinguna Flestir nýrri bílar eru með innspýtingu. Þegar keyrt er í brekku er gott að setja bflinn í fimmta gír og láta hann renna. Þá eyðir hann engu. 9Haltu bílnum við Skipm reglulega um olíu, loft- og olíusíu í samræmi við ráðleggingar ffamleiðanda. Vélin gengur léttar og slimar minna. Þjónustaðu bflinn í samræmi við ráðlegging- ar í eigendahandbókinni. Það er mikilvægt til þess að halda mengun frá bílnum í lágmarki. Gakktu eða hjólaðu þegar þú getur || | Gakkm eða hjólaðu styttri vegalengdir. Skipu- B leggðu samflot í bfl með öðrum þegar hægt er að koma því við. Notaðu strætó ef mögulegt er. Minni mengun fylgir fullnýttum strætisvagni en ferð farþeg- anna sömu leið í einkabflum - og hálftómur eða tómur strætisvagn mengar meira en einkabfll! Talsvert margir hafa þann sið að keyra bensíntankinn „út," það er að keyra á síðusm dropunum í bensíntanknum. Þetta er frem- ur slæmur siður og þessar eru ástæðurnar: IOfan í bensíntankinn liggur rör niður undir botninn á tankinum. Bensíndælan sogar eldsneytið upp úr tankinum um þetta rör þegar bfllinn er í gangi. Rörið er tvískipt þannig að þegar nóg bensín er á tankinum sogast bensínið inn í rörið nokkuð frá botninum. Þegar mjög lítið er orðið eftir af bensíni lokast fýrir aðalinntakið og annað inntak neðar í rörinu og nær botninum tekur við. Um leið kviknar venjulega viðvörunarljós í mælaborðinu sem segir að bensínið sé að verða búið. Með tímanum safnast óhreinindi og vam fýrir í bensíntanknum og þar sem þessi efni eru þyngri en bensínið falla þau til boms. Þeg- ar farið er að keyra á síðusm dropunum er hætt við að óhreinindin og vatnið sogist inn í bensínkerfið og stífli síur eða það sem verra er, berist inn í innsprautunarkerfið. Þetta lýs- ir sér fýrst með gangtruflunum og getm hæg- lega leitt til skemmda og mjög dýrra viðgerða. 2Í öðru lagi er óskynsamlegt að hafa lítið á bensíntanknum vegna hins íslenska veð- urfars. Það eykur hættu á að vamsgufa í hálf- tómum tanknum þéttist og myndi dropa sem falla til botns. Vatnið á það síðan til að frjósa í botninum eða í bensínleiðslunni og síunni svo ailt stíflast í næsta frosti. Stefán Ásgrímsson gefur sparnaöarráö: 10RÁÐTILAÐ SPARA BENSÍN Skeljungur Gylfaflöt Skeljungur Suöurfelli 137,90 Atlantsolía Bíldshöfða N1 Bíldshöfða ÓB Barðastaðir N1 Ártúnshöfða ÓB Grafarholt Olís Gullinbrú ÓB Starengi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.