Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2008, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 Umræða DV ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaöið-Vísir útgáfufélag ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson og ReynirTraustason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaösins eru hljóðrituð. AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010, ÁSKRIFTARSlMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40. SANDKORN ■ Andstæðingar Þórðarsonararmsins í Sjálfstæðisflokknum og þeir sem standa Birni Bjarnasyni dómsmála- ráðherra næst hafa beint spjótum sínum að Guðlaugi Þór Þórðarsyni, heilbrigðisráðherra og höfuðfjanda Björns. Þykir þeim sem Guðlaugur sleppi vel frá REI-klúðrinu og hafa sett í gang umtal um ráðherrann. Þar er hann jafnan skilgreindur sem teflon- gaurinn sem sleppur ódýrt frá málum. Þetta bendir til þess að eftir fall Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar sé komið að Guðlaugi. ■ Sú var tíðin að Guðlaugur Þór Þórðarson gagnrýndi Alfreð Þorsteinsson grimmt fýrir að hafa staðið að stofnun Línu. net sem stjórnarfor- maður Orkuveit- unnar og þannig sóað almannafé með rugli en nú er hann sjálfur óþægilega til umræðu. Engan bilbug er þó að flnna á Guðlaugi sem í skjóli Geirs H. Haarde stefnir til hæstu metorða. Hermt er að hann hugsi sér gott til glóðarinnar að komast í varaformannsembættið á næsta landsfundi og fella sjálfa Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. ■ Andríki.is sparar ekki meldingarnar varðandi frammistöðu Geirs H. Haarde. Þeir hrauna yfir formanninn fyrir að ausa úr ríkiskassanum. „Það fer vonandi ekki á milli mála hver leiðir í raun ríkisstjórnarsamstarfið," segja andríkismenn í pistli sínum. Vefurinn er gjarnan kenndur við frjálshyggjuarm Sjálfstæðisflokksins en þar hafa haldið um penna þau Þorsteinn Davíðsson, núverandi dómari, Haraldur lohannessen, ritstjóri Viðskiptablaðsins, og Sigríður Andersen alþingismaður. Þetta fólk er væntanlega að senda Geir skýr skilaboð þar sem glittir í Davíð Oddsson og Björn Bjarnason. ■ ÞóttSjálf- stæðisflokk- urinn logi í innbyrðis- deilum er engan óró- leika að merkja hjá Samfylk- ingunni, enn sem komið er. Þvert á móti hafa össur Skarp- héðinsson iðnaðarráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður, keppst við að dásama Geir Haarde við hin ýmsu tækifæri. Þjóð misskiptingar LEIÐARI REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRISKRIFAR. Þania liefur verkalýðshreyfingin brugðist eins og ifleiru. Einhverjir standa á öndinni yflr því að lægstlaunaða fólkið innan verkalýðshreyflngarinnar hefur fengið 18 þúsund króna launahækkun og að ríkið ætlar að hækka persónuafslátt og kanna hvort mögulegt sé að Iækka matarverð í landinu. Ef miðað er við ríkjandi ástand í launamálum nú þegar skuggar kreppu læðast yfir land og þjóð má segja að það sé gott að gauka slíkri hækkun að hinum lægstlaunuðu. Vandinn er hins vegar sá að fólkið sem ber minnst úr býtum í landinu er langt undir þeim tekjum sem teljast vera viðunandi. Á svæði þar sem ódýrustu húseignir kosta ekki undir 20 milljónum króna og lágmarksframfærsla vísitölufjölskyldu kostar á fjórða hundruð þúsund króna á mánuði er vandséð hvernig hægt er að lifa með reisn af mánaðarlaunum sem nema 140 þúsund krónum eftir hækkun. Verkalýðsforystunni er hælt í hástert fýrir að hafa gert góðansamningfyrirláglaunafólkmeðþvíaðkreistaframl8þúsund krónur á mánuði. Það er hins vegar sök verkalýðsforkólfanna að smánarlaun eru til staðar. Þeir sem stýra kjarabaráttunni eru nefnilega ekki á sama stalli og umbjóðendur þeirra og lifa sjálfir við margföld verkamannalaun. Þá er Ijóst að launakerfíð í landinu er í raun allt annað en það sem kj arasamningar endurspegla. Erlendir verkamenn á snærum starfsmannaleigna eru sumir hverjir á þrælakjörum og búa við lægri laun en þeir sem búa á íslandi. Það leiðir til þess að þegar kreppir að á vinnumarkaði er ódýrara að hafa erlendu þrælana í vinnu en þá íslensku sem fyrstir verða sendir heim. Þarna hefur verkalýðshreyfingin brugðist eins og í fleiru. Mennirnir sem valist hafa til forystu fyrir launþega eru fæstir starfi sínu vaxnir. Þeir eru stoltir af því að viðhalda smánarlaunum og ná að kreista fram dúsur fyrir fátæka. Með sanngirni er hægt að segja að mjakast hafi í rétta átt en mál eru þó víðsfjarri því að vera í lagi. Við erum þjóð misskiptingar. LANDSBYGGÐARAÐSTOÐIN SVARTHOFÐI Svarthöfði hefur löngum verið þeirrar skoðunar að það sé þjóð- þrifamál að þingmenn fái að ráða sér aðstoðarmenn til að styrkja þá við þingstörfin. Þessa skoðun komst Svarthöfði á eftir að hafa fylgst með ráðherrum beygja þingið trekk í trekk. Þess vegna h'st Svarthöfða svo vel á að þingmenn fái aðstoðarmenn til að þeir geti betur barist við ráðherr- ana sem hafa allt vald og öll ráð ráðu- neytanna á bak við sig. Svarthöfði skilur hins vegar hvorki upp né niður í þeirri ákvörðun þingheims að leyfa landsbyggðarþingmönnum að ráða sér aðstoðarmenn heima í kjördæminu. Við höfúm vissulega heyrt rökin: að það sé svo erfitt fyrir þingmenn í víðfeðmum landsbyggðarkjördæmum að vera í tengslum við kjósendur sína. En á ríkið endilega að borga fyrir þau tengsl? Og eru þau mildlvægari en að þingmennirnir fái aðstoð við lagasemingu og annað það sem kemur beint að starfi þeirra? Nú ætlar Svarthöfði ekki að gera h'tið úr mildlvægi þess að þingmenn þekki aðstæður kjósenda sinna og geri sér grein fyrir hvað hvflir á þeim. En er ekki verið að bytja á vitlausum enda? Hvemig eiga aðstoðarmenn þingmanna svo að starfa? Eiga þeir kannski að ferðast þangað sem þingmennimir komast ekld? Eiga þeir að tala við þá kjósendur sem ná ekki tafi af þingmönnunum sínum? Eiga aðstoðarmennimir kannski fyrst og ff emst að vinna að því að tryggja þingmönnum sínum endurkjör? Nú bíður Svarthöfði því spenntur eftir næsta skrefi. Nefnilega því að samþykkt verði að ráða aðstoðarmenn í fúllt starf til að aðstoða þingmennina við þingstörfin. Það er í sjálfu sér rökrétt næsta skref. Vlð skulum heldur ekki gera h'tið úr mikilvægi þess. Ráðherrar hafa alla starfsmenn ráðuneytanna á bak við sig og fjölda stofnana að auki. Þangað geta þeir sótt sér ráðgjöf og látið vinna mál fyrir sig. Ráðherramir njóta þess líka að ráða ansi miklu í þingflokkum sínum og geta þannig náð ýmsu fram þótt ekki sé það án undantekninga. Gegn þessu standa þingmenn berskjaldaðir, kannski sérstaklega stjómarandstöðuþingmenn. Þess vegna er mikilvægt að þeir fái notið einhvers sem þeir geta leitað til, látið kanna mál fyrir sig og undirbúa annað það sem þeir þurfa að gera vegna þingstarfanna. Slfldr aðstoðarmenn geta verið mikils virði. Þeir aðstoðarmenn sem nú em kynntir til sögunnar virka hins vegar ffekar vafasamir, allavega htt þarfari en þeir sem myndu aðstoða þingmenn við þingstörfin. DÓMSTÓLL GÖTUIVIVAR HVAÐ MWST ÞI R UM NÝGERÐA KJARASAMMNGA? „Það sem ég hef heyrt af nýju samning- unum finnst mér jákvætt. Ég hef ekki kynnt mér þá til hlítar enda breyta þeir litlu fyrir ellilífeyrisþega." Eyjólfur Davíftsson, 83 ára ellilífeyrisþegi „Mér líst vel á þá. Ég held að þetta sé hið besta mál, bæði fyrir vinnuveitend- urog launþega." Björn Ingólfsson, 50 ára framkvæmdastjóri hjá Bílabúft Benna „Mér líst vel á nýgerða kjarasamninga miðað við það sem ég hef heyrt í fréttum. Það er gott að eigið neyslufé verkafólks eigi að hækka um nærri 30 þúsund krónur á tímabilinu." Hermann Gíslason, 27 ára starfsmaður á plani „Ég er ánægður með þá vegna þess að í þeim er lögð áhersla á það að hækka lægstu launin. Það er búið að tala um það síðan ég var ungur, um miðja síðustu öld. Loksins er eitthvað gert í málunum. Þetta eru góðir samningar að því gefnu að vöruverð hækki ekki samhliða hækkunum verkafólks." Sæmundur Karl Jóhannesson, 55 ára stöðvarstjóri hjá N1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.