Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
Helgarblað O'
FYNDINN
Af stuðningsmönnum sínum hefur Davíð Oddsson, einn sigur-
sælasti og um leið umdeildasti stjórnmálamaður íslandssögunnar,
verið kallaður hugrakkur, röggsamur og sköruglegur, skjótur til
ákvarðana og hiklaus við að segja álit sitt, hvort sem öðrum líkar
betur eða verr. Andstæðingar hafa sagt hann ráðríkan, skapstóran
og langrækinn. Eftir erfið veikindi hætti Davíð í pólitík en hefur í
embætti sínu sem seðlabankastjóri verið harðlega gagnrýndur
fyrir stýrivaxtahækkanir. Davíð hefur tekið nærri sér að flestir
þeir sem hann kynntist á krabbameinsdeildinni eru látnir í dag.
im
wrí. /;7 .* ;•
4
r
María Bjarnadóttir,
fyrrverandi ritari Davíðs
VÍTAMÍNSPRAUTA
„Davíð var alltaf jafnlyndur, réttsýnn «g glaður.
Ilann kunni þá list að sýna að liann kunni að mcta
verkin ntanns og okkar samskipti voru þannig
að aldrei reyndi nokkuð á skap lians. Eg varð því
aldrei nokkurn tímann vör við þetta inikla skap
sem margir tala um. Davíð var hæði sanngjarn
og kunni íullkomiega sitt fag. Ég man alltaf eltir
því einn morguninn, þegar stutt var í hann átti að
halda mikilvæga ræðu, náðist ekki ræðan út úr
tölvunni. Davíð haggaðist hins vegar ekki og hélt
ótrauður áfram. Morguninn eftir sagði hann mér
að líklega ltefði hann aldrei flutt betri ræðu. Ég
saknaði hans mjög mikið er hann hætti sem borg
arstjóri en ég fékk góða menn í staðinn. Enginn
þeirra var samt í líkingu við vítamínsprautuna
Davíð á hverjum morgni, það var alltaf eitthvað fjiir
í kringum hann og ltver dagur var alveg sérstakur/
o ‘ Q a
„EiniJón Sigurðssoninn,
sem hefur eitthvað enst í
Seðlabankanum, ersá á
fimmhundruðkallinum
„Á milli okkar bræðranna er mjög kært. Það eru fáir
sem hafa jafngóða sýn á pólitískan raunveruleika og
Davíð bróðir. Sú sýn endurspeglast í glæstum ferli
hans í stjórnmálum," segir Runólfur Oddsson, bróð-
ir Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra, í samtali við
DV.
Erfið veikindi Davíðs Oddssonar, fyrrverandi
forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokks-
ins, bundu enda á glæstan pólitískan feril hans
árið 2005. Hann tilkynnti um brotthvarf sitt þá um
sumarið og hætti strax um haustið. Ári áður greind-
ist hann með krabbamein í hægri nýra eftir að hafa
verið fluttur í júlímánuði á spítala vegna alvarlegs
gallsteinakasts. Við skoðun fannst æxli í nýranu og
var það skömmu síðar fjarlægt með aðgerð. f kjöl-
farið tók við erfið endurhæfing og aukameðferðir.
Þjóðin og þingheimur fylgdist með eftirmeðferð for-
sætisráðherrans og mátti sjá að hún dró verulega úr
krafti hans. f raun var hann aðeins á hálfum hraða
í pólitíkinni, miðað við það sem áður var, eftir erf-
ið veikindin og því tók Davíð þá erfiðu ákvörðun að
hætta í pólitík eftir ríflega þriggja áratuga farsælan
feril í stjórnmálum.
Flestiraf deildinni látnir
„Þetta voru mjög erfið veikindi sem Davíð stóð í
og þetta var erfiður tími fyrir hann. Hann var einmitt
í heimsókn hjá mér kvöldið sem hann veiktist ásamt
fyrrverandi forseta Slóvakíu," segir Runólfur.
Aðgerðin, þar sem æxlið var fjarlægt, gekk hins
vegar að óskum og lýsti Davíð opinberlega þakklæti
sínu fyrir þá góðu þjónustu sem hann hlaut á Land-
spítalanum.
f samtali við DV lýsir náinn vinur Davíðs upplif-
un vinar síns á spítalavistinni. Um leið og hann var
auðmjúkur yfir eigin bata tók hann mjög nærri sér
veikindi allra þeirra sem lágu með honum á krabba-
meinsdeildinni. Margir sjúklinganna voru yngri en
Davíð og flestir þeirra mikið veikir. Fyrir miskunnar-
leysi tilverunnar eru flestir þeir sem voru á deildinni
látnir og er það Davíð erfitt upprifjunar. Hann leit
upp til vina sinna á deildinni fyrir æðruleysi þeirra
og hetjulega baráttu við þennan hættulega sjúk-
dóm.
Ólst upp föðurlaus
Davíð fæddist í Reykjavík þann 17. janúar 1948.
Aðeins tveggja mánaða flutti hann með móður
sinni, Ingibjörgu Kristínu Lúðvíksdóttur, til Selfoss
þar sem hann ólst upp í húsi móðurforeldra sinna.
Sjálfur hefur Davíð greint frá því að hann hafi verið
kallaður prúðmennið á heimilinu.
Faðir Davíðs, Oddur Ólafsson læknir, átti í tölu-
verðum erfiðleikum í einkalífinu, drakk þó nokk-
uð og þótti kvensamur. Á endanum hafði Davíð
eignast sjö hálfsystkini, flest þeirra samfeðra hon-
um. Oddur þótti hins vegar afar fær í sínu starfi og
skemmtilegur karakter á flestum stundum. Sökum
róstursams einkalífs voru samskipti feðganna ekki
eins mikil og Davíð hefur líklega vonast eftir. Engu
að síður hefur hann sagst hafa litið upp til föður
síns.
Stórtækur kóngur
Eftir að Davíð fluttist til Reykjavíkur ólst hann
upp hjá móður sinni og móðurömmu. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík
1970 en átti í fyrstu í erfiðleikum með námið. Fé-
lagsstörfin gengu að miklu leyti fyrir og varð hann
inspector scholae, formaður nemendafélagsins, í
sjötta bekk. Þegar hann lét af embætti formanns
tók við Geir H. Haarde nokkur og var þetta ekki
eina skiptið sem Geir tók við keflinu og stjórnar-
taumunum af Davíð.
Davíð varð þjóðkunnur strax á menntaskólaár-
um sínum þegar hann lék aðalhlutverkið í leikrit-
inu Bubba kóngi í janúar 1969 á Herranótt MR. í
verkinu lék hann kónginn sjálfan sem var hálfbrjál-
aður einræðisherra. Þá gegndi hann formennsku
Herranætur og var stórhuga í uppsetningu verks-
ins. I stað þess að taka á leigu smærri leiksal dugði
ekkert minna en sjálft Þjóðleikhúsið þegar Davíð
setti upp verk. Leikritið sló rækilega í gegn og fór
leikhópurinn víða um land með stykkið. Þá var það
líka sýnt í fullri lengd í Sjónvarpinu.
Gantast hefur verið með að í verkinu náði Dav-
íð að máta einræðisherrabúninginn og greinilegt
er að honum líkaði búningurinn því sumir vilja
meina að hann hafi í raun aldrei farið úr honum
síðan. í embættum borgarstjóra og forsætisráð-
herra var Davíð kóngurinn.
í bárujárnshúsi
„Ég hef ekkert nema gott um hann að segja," seg-
ir Þorsteinn Davíðsson, dómari við héraðsdómstóla
Norðurlands eystra og Austurlands, í samtali við DV.