Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Blaðsíða 78
78 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
HelgarblaO PV
íTÓNLIST
Tónlistarakademía DV segir:
Hlustaðu á þessa!
It's Not How Far You Fall It'sThe Way You Land - Soulsavers (Mark Lanegan)
All Is Well - Sam Amidon
Some Things Just Stick In Your Mind - Vashti Bunyan
Lust, Lust, Lust - The Ravonettes
Silje Nes - Ames Room
STEREOLAB-GYÐJAN
MEÐ NÝJA PLÖTU
IPMous
Sindri Már Sigfússson, forsprakki
hljómsveitarinnar Seabear, er með nýtt
laumupródjekt (hanskahólfinu. Sin
Fang Bous sver sig helst frá Seabear að
þvl leyti að Síndri spilar sjálfur á öll
hljóöfæri og syngur yfir Ktil rafhljóð sem
leika þar lausum hala. Gott ef þau renna
ekki úr virum gamalla tölvuleikja. Á
Myspace-siðu Sindra lúra þrjú ný lög,
Advent in Ives Garden,The Jubilee
Choruses og Poi Rot, sem koma til með
að fara á ellefu laga plötu sem hann er
að Ijúka við um þessar mundir.„Ég er
ekki (neinni heiöarlegri vinnu, þannig
að ég er bara alltaf uppi I stúdíói og ég
þarf að hafa eitthvað aö gera," segir
Sindri.„Það er lika gott að fá vettvang
fyrir egóistann þar sem ég fæ að spila á
allt. Þetta er nokkuð sem ég er búinn að
vera að leika mér að gera á milli
Seabear-verkefna."
Þessi plata Sin Fang Bous kemur
væntanlega út hjá þýsku útgáfunni
Morr Music þar sem Seabear, Borko og
Benni Hemm Hemm hafa einnig gert
sér hreiður.
Sjá nánar á myspace.com/sinfangbous.
MÚM SKRÚÐGANGA
Hljómsveitin múm legguraf stað I rokna
Evróputúr um helgina. Leikar hefjast á
kvikmyndahátíðinni (Istanbúl á
sunnudagskvöldið, en sveitin spilar (
kjölfarið á ellefu tónleikum viðs vegar
um Evrópu, meðal annars ÍVarsjá,
Flórens og (Amsterdam. 13. mars liggur
leiðin til Singapore þar sem sveitin
kemur fram á Mosaic Music Festival
áður en hún heldur til Ástralíu þar sem
hún er bókuð á fimm tónleika í
Brisbane, Melbourne, Sydney og Perth.
Þar með er glæsilegri skrúðgöngu múm
til heiðurs nýjustu plötunni Go go
smear the poison ivy fjarri því lokið því
eftir örlitla páskaeggjapásu flýgur
sveitin til Kaliforníu og leikur á átta
tónleikum f Bandarlkjunum, þar á meðal
á Coachella-hátlðinni (Kaliforníu og I
Brooklyn MasonicTemple (New York.
Sveitin var að opna nýja vefsíðu hér:
mum.is. Áfram, áfram arfasmurning!
Hmn íslenzki Þursa-
flokkur fagnar þrjátíu
ára afmæli sínu um
þessar mundir og
heldur af því tilefni
stórtónleika í Laugar-
dalshöll annaö kvöld
ásamt Caput-hópnum.
Ásgeir Óskarsson,
tronnnuleikari Þursa-
flokksins, segir aldrei
hafa staðið til þegar
sveitin var stofnuð að
spila fleiri en þrjú til
fjögur gigg.
ASGEIR OSKARSSON
Trommuleikari í Hinum
islenzka Þursaflokki.
„Við byrjuðum nú bara að setja
hljómsveitina saman í kringum
þessi gömlu þjóðlög og það stóð
aldrei neitt annað til en að spila
bara einhver þrjú til fjögur gigg.
Svo höfðum bæði við og aðrir svo
gaman af að hljómsveitin var starf-
andi í einhver fjögur ár," segir Ás-
geir Óskarsson, trommuleikari
Hins íslenzka Þursaflokks.
Hljómsveitin heldur tónleika í
Laugardalshöllinni annað kvöld,
laugardagskvöld, ásamt Caput-
hópnum. Tilefnið er þrjátíu ára af-
mæli Þursaflokksins en sveitin var
Staðgengill Karls lóhanns Sig-
hvatssonar heitins á Hammond-
orgelinu verður svo Eyþór Gunn-
arsson.
Caput-hópurinn samanstend-
ur hins vegar af ríflega tuttugu
afskaplega fjölhæfum tónlistar-
mönnum og munu þeir verða fé-
lögum sínum í Þursaflokknum til
halds og trausts á sviðinu í Höll-
inni. Það má því búast við hörku-
stemningu í Laugardalshöll.
Lítið mál að koma saman á ný
Ásgeir segir hljómsveitarmeð-
an árið 2000 og spiluðum aðeins
saman þá svo það voru nú ekki al-
veg tuttugu og sex ár síðan við spil-
uðum saman síðast."
Hinn íslenzki Þursaflokkur
er án efa orðinn ein af goðsögn-
um íslensks tónlistarlífs en á fjög-
urra ára ferli sínum spilaði sveit-
in á nær þrjú hundruð tónleikum
í níu löndum sem var ekki svo al-
gengt á þeim tíma. „Það voru ýms-
ar hljómsveitir alltaf að reyna að
meika það en fóru kannski ekki
beint í svona ferðir svo ég muni.
Þetta voru nú reyndar engin risag-
Sjá bara til með framhaldið
Aðspurður hvort landsmenn
megi eiga von á fleiri Þursaflokka-
tónleikum en þessum einu svarar
Ásgeir: „Við erum nú ekkert byrjað-
ir að hugsa það langt ennþá og það
hefur ekkert verið rætt neitt enn-
þá. Ef svo yrði þarf samt alls ekkert
endilega að vera að það yrðu aðrir
tónleikar með þessu móti. Við sjá-
um bara til með framhaldið."
Þess má geta að í tilefhi af þtjátíu
ára afmælinu gaf Sena út heildar-
safn með Þursaflokknum 18. febrú-
ar síðastliðinn sem inniheldur all-
Laeitia Sadier, fýrrverandi söngkona
Stereolab, og nýja hljómsvertin hennar
Monade sendu frá sér nýja plötu laust
fyrir helgina. Monster Cosmic er þriðja
plata sveitarinnar
síðan hún var
stofnuð sem
rassvasaverkefni
Laeitiu og Rosie
Cuckston, söngkonu
hljómsveitarinnar
Pram. Monade
heldurtryggð við
stemningu sem er
einsogprjónuðfyrir
léttúðuga franska sjónvarpssápu frá
sjöunda áratugnum og gerir það vel.
Þessi áferð skilaði sér ekki á tónleikum
hljómsveitarinnar í Þjóðleikhúskjallaran-
*• um fyrir um ári þar sem slagkraftur
sveitarinnar viröist liggja að mörgu leyti
i sjarmerandi raddsetningum,
orgeldúllum, lúðraþyt og öðru sem
kann að virðast auka en er aöal hjá
hljómsveit eins og Monade. Því ef viö
fjarlægjum finirfiö verður það sem eftir
situr ef til vill fullflatt. Monade er nú á
tónleikaferð um Evrópu og leikur meöal
annars á II Covo-klúbbnum í Bologna á
laugardagskvöldlð.
einmitt stofnuð árið 1978.
Hinn íslenzki Þursaflokkur
samanstendur af þeim Agli Ól-
afssyni, Ásgeiri Óskarssyni, Rún-
ari Vilbergssyni, Tómasi Magn-
úsi Tómassyni og Þórði Árnasyni.
limi hafa verið á ströngum æflng-
um að undanförnu en þó hafi það
verið lítið mál fyrir þá félaga að
koma svona saman á ný. „Þetta
var bara allt saman fljótt að koma.
Við komum reyndar aðeins sam-
igg sem við vorum að spila þarna
en það gekk mjög vel hjá okkur og
þetta var allt alveg voðalega gam-
an. Við spiluðum í Noregi, Svíþjóð,
Danmörku, Finnlandi, Hollandi og
Færeyjum."
f
ar fjórar plötur sveitarinnar ásamt
aukaplötu með flmm lögum. Plöt-
urnar hafa allar verið endurhljóð-
blandaðar og bæklingur og kápa
innihalda áður óbirtar myndir og
sögu Þursaflokksins. krista@dv.is
Allar veislur morgundagsins
AH Tomorrows Parties - tónlistarhátíðin stórkostlega og veftímaritið Pitchfork Media hafa
tekið höndum saman um val á hljómsveitum þetta árið og hafa nú kunngert dagskrána.
Meðal hetjanna sem skemmta á All Tomorr-
ows Parties í ár eru Caribou, Of Montreal, Seba-
doh, Hot Chip, Marissa Nadler, Jens Lekman og
hljómsveitin Vampire Weekend sem hefur gert
allt vitlaust undanfarið.
Hátíðin er haldin á gömlu, sjarmerandi sum-
arleyflssvæði við strandbæinn Camber Sands á
Englandi þar og í aðgöngumiðanum er innifalin
gisting í gömlum, huggulega sjúskuðum plast-
mótelherbergjum sem láglaunaðir Englending-
ar hafa brúkað í fríum sínum síðan á áttunda ára-
tugnum. Hátíðin verður haldin nú í áttunda sinn,
en hún var stofnuð árið 2000 af Barry Hogan sem
svar við hátíðum á borð við Reading og Glaston-
bury. ATP einblínir á jaðarrokk, skrítípopp, ffam-
sækna raftónlist og hip-hop. Ár hvert er nýrri
hljómsveit boðið að vera gestgjafi hátíðarinnar
og velja þar með inn á hana hljómsveitír. Mogwai,
Tortoise og Sonic Youth eru meðal þeina. Hátíðin
stendur 9. til 11. maí.
Hér kaupa menn miða á hátíðina: atpfestival.-
com.