Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
UmræSa DV
HVAÐ BAR HÆSTIVIKUNNI?
Farsælir samningar og
nýr leiðtogi
„Það er þrennt sem kemur upp í hugann.
I fyrsta lagi farsælir kjarasamningar aðila
vinnumarkaðarins með mikilvægri aðkomu
ríkisstjórnarinnar. Þeir eiga að geta byggt
undir efnahagslegan stöðugleika næstu
ára. í annan stað áffamhaldandi hækkan-
ir á skuldatryggingaálagi íslensku bank-
anna sem endurspeglar þær erfiðu mark-
aðsaðstæður sem nú ríkja á alþjóðlegum
íjármálamörkuðum. f þriðja lagi afgerandi
niðurstaða í skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins þar sem Hanna Birna er með afgerandi
forystu í huga fólks um leiðtogaefni borgar-
stjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Það hlýt-
ur að vera marktæk niðurstaða um viðhorf
fólks til leiðtogahæfileika hennar."
Bjarni Armannsson, fjárfestir
Juilliard-sigurvegarinn
„Forysta Sjálfstæðisflokksins tók loksins
af skarið og gaf Vilhjálmi ákveðinn tíma til
að gera upp hug sinn. Það var mikilvægt
að einhver úr framvarðasveit flokksins stigi
fram og það gerði Bjarni Benediktsson í
þætti um síðustu helgi. í kjölfarið komu
fleiri og sögðu að þetta væri ákvörðun sem
ekki gengur að draga lappirnar með. Það
má því vonandi búast við niðurstöðu á
næstunni. Vilhjálmur er auðvitað kjörinn
fulltrúi en ákvörðun sem þessi getur ekki
verið látin hanga í loftinu, sama hvar í
flokki fólk er.
Síðan var það stórkostlegur viðburð-
ur þegar Víkingur Heiðar Ólafsson spilaði
í Salnum með flautuleikaranum. Víking-
ur Heiðar vann nýlega píanókeppni í hin-
um virta skóla Juilliard. Ég vissi að þessi
atburður yrði það sem bæri hæst í menn-
ingarlífinu hjá okkur. Því miður komst ég
samt ekki á tónleikana vegna lasleika en ég
er búin að heyra margt afar gott af þeim og
vildi óska að ég hefði komist."
Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrverandi
þingmaður Samfylkingarinnar
Lægstu laun hækka
„Það voru að sjálfsögðu kjarasamning-
arnir sem bar hæst hjá okkur. Þeir voru
gerðir í því skyni að ná verðbólgunni niður
og reyna í leiðinni að leysa þann vanda
sem er að byggjast upp vegna þeirra sem
höfðu setið eftir í launaskriðinu og launa-
þróuninni á undanförnum misserum.
Þetta var mikill áfangi. Við hjá Samtök-
um atvinnulífsins stóðum bærilega sáttir
upp frá þessari samningagerð og teljum
að hún eigi eftir að lukkast mjög vel. Þarna
er horfið frá því fyrirkomulagi að hækka
alla um sömu prósentu, hvort sem hann er
með há laun eða lág. Við teljum að þetta
skapi fyrirtækjum almennan sveigjanleika
og hvetjum við fyrirtæki til að notfæra sér
hann. Þarna náum við að komast út úr allt
of hárri verðbólgu sem verður vonandi til
þess að vextir verði lækkaðir."
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins
Loðnuveiðar voru stöðvaðar
„Þegar loðnuveiðar voru stöðvaðar í
vikunni. Ef það finnst ekki nægjanleg loðna
til að hefja veiðar á ný mun þetta hafa
mjög alvarlegar afleiðingar fyrir fyrirtæki
og það starfsfólk sem byggir afkomu sína
á þessum veiðum. Meðalveiði hefur gefið
um 13 milljarða í þjóðarbúið og allt að 20
milljarða eins og árið 2002. Það er því ljóst
að þetta verður mikið áfall og mikil tekju-
rýrnun fyrir marga. Þarna þarf að huga að
því hvort auka eigi við veiðar á hval sem
étur mikið af loðnu og tekur meira af henni
en maðurinn."
Friðrik J. Arngrímsson, framkvaemdastjóri
Landssambands íslenskra útvegsmanna
Medal efnis:
• Fermingarbömin
• Veislan
• Fötin
• Gjafimar
• Trúin
Foreldrarfemingarbamanna
Minningamar
Fermingarmyndimar
Auglýsendur!
Pantið tímanlega eða jyrir kl. 12.00
Jimmtudaginn 21.febrúar.
Upplýsingar:
audurm@dv.is, ama@dv.is, asduldw@dv.is
vald@ajdv.is eðaisúna512 7000