Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Blaðsíða 84
84 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
Helgarblað PV
MERZEDES CLUB OG EUROBANDIÐ SIGURSTRANGLEGUST
NYTTFRA
BUBBA
Bubbi Morthens gaf ekki út plötu
á síðasta ári, en hann hefur yfir-
leitt geflð út plötu árlega. Nú er
útlit fyrir nýja plötu, en Bubbi hef-
ur tekið upp þrettán ný lög ásamt
sveit úrvalsmeðspilara. Platan
hefur hlotið vinnuheitið Fjórir
naglar. Á spjallsvæði heimasíð-
unnar bubbi.is hefur kóngurinn
tjáð sig um gripinn, en þar segir
hann að leitast hafi verið eftir að
ná hljómi sem ekki hefur heyrst í
íslenskri lagasmíð um áraraðir.
CASCADA
Á LEIÐINNI
Söngkonan Cascada
kemur fram á
Broadway í apríl
í boði Flass FM.
Cascada er þýsk
eurodance-
hljómsveit sem
er hvað þekktust
fyrir lagið Everytime
We Touch sem kom út á samnefndri
plöm árið 2006. Bandið er í raun
bara ein söngkona sem heitir réttu
nafni Natalie Horler en þeir DJ Man-
ian og Yann Pfeiffer koma mikið að
tónlistargerðinni. Þeir tveir hafa líka
unnið að verkefninu Tune Up! sem
er annað þekkt eurodance-nafn.
Jón Karl Stefánsson hjá Bæjarbalcaríi
í Hafnarfirði bar sigur úr býtum
í keppni um Köku ársins sem
Landssamband bakarameistara efnir
árlega til. í tilefni af konudeginum
hefst sala á kökunni í bakaríum
félagsmanna Landssambands
bakarameistara um næstu
helgi. Sigurkakan er samsett úr
súkkulaðibotnum, hnetubotni, hvítri
súklotlaðimús með kaffikeim og
hjúpuð með hvítu súkkulaði.______
Á meöan vinsældir Merzedes
Club vaxa heima fyrir fær Euro-
bandið mikla athygli á erlendri
grundu. Lagið Ho, ho, ho we say
hey, hey, hey er eitt mest umbeðna
lagið á útvarpsstöðvum landsins
á meðan This is my life er í 22.
sæti yfir vinsælustu Youtube-
myndbönd Bretlands.
Allt stefnir í að úrslit Laugardagslagana um
helgina verði einvígi milli danssmellanna FIo,
ho, ho, we say hey, hey, hey og ensku útgáfunnar
af Fullkomið líf, This is my life. Ho, ho, ho, we say
hey, hey, hey sem er flutt af Merzedes Club hefur
sótt í sig veðrið hér heima og er mikið umbeðið á
útvarpsstöðvum landsins. A meðan hefur enska
útgáfan af laginu Fullkomið líf, sem heitir This is
my life og er samin af Páli Óskari Hjálmtýssyni,
vakið mikla athygli erlendis og var í gær
(fimmtudag) í 22. sæti yfir vinsælustu Youtube-
myndbönd Bretlands. Lagið
hefur verið spilað yfir
7.000 sinnum á fáeinum
dögum og einnig valið
lag esctoday.com í
forkeppninni sem
er sú stærsta sinnar
tegundar.
„Þetta er mikill
heiður," segir Friðrik
Ómar um þær fregnir
að esctoday.com hafi
valið This is my life sem
sittuppáhaldslagííslensku
forkeppninni. „Þessi síða
er orðin svo rótgróin
og alveg sérkapítuli
af keppninni," segir
Friðrik en Eurovision-
aðdáendur á
spjallborði síðunnar
keppast
einnig um að lofa lagið. Friðrik segir vinsældir
lagsins á vefnum youtube.com hafa komið sér
skemmtilega á óvart. „Sérstaklega þar sem þetta
hefur verið svo stutt.þarna inni."
Friðrik segir að þó fjölmiðlar stilli lögunum
tveim upp sem helstu keppinautunum líti hann
ekki á það sem svo. „Það má ekki gleyma því að
það eru átta sterk lög í keppninni og úrslitakvöld-
ið er ekki búið. Þá kemur reynsla keppenda í ljós
og allt getur gerst. Við verð-
um ekki með neinar yfir-
lýsingar heldur hlöldc-
um við bara til þess að
taka þátt," segir Friðrik
spenntur að lokum.
Merzedes klúbb-
síðunni youtube.com. Þar er hægt að finna lag-
ið á fjórum mismunandi stöðum og er búið að
horfa á það í kringum 100 þúsund skipti. En lag-
ið hefur verið inni síðan fyrir jól. „Lagið okk-
ar hefur vakið gríðarlega athygli í Frakklandi,
Þýskalandi og Austur-Evrópu. Nú síðast hringdu
menn frá Emi í Barða og sögðu við hann að þetta
myndi fara beint á toppinn í Frakklandi," segir
Egill Gillzenegger Einarsson, hljómborðsleikari
Merzedes Club. „Síðan er fólk að kalla þetta grín.
Við erum að lenda fyrsta plötusamningnum
okkar núna við Cod Music, sem er undirfyrir-
tæki Senu. Varla færi Sena að gera samning
við einhverja grínista." Egill hefur tröllatrú
á laginu og vill meina að ef lagið komist
áfram verði það alþjóðlegasta framlag ís-
lendinga í keppnina frá upphafi. „Þetta er
einfalt, hey hey og hó hó virkar úti um all-
an heim." asgeir@dv.is, dori@dv.is
Regína Ósk og Friðrik Ómar
Segja keppnina standa milli
átta laga en ekki tveggja.
ASDIS RAN ERI ÞRIÐJA SÆTIINETSAMKEPPNI WWW.ISSHEHOT.COM
0,14% FRÁ ÞVÍ AÐ
VERÐA MILUÓNER
ÁsdísRánGunnarsdóttir,fyrirsætaogfegurðarfrömuður,
er um þessar mundir í þriðja sæti í netsamkeppninni
Hot for the money, sem finna má á heimasíðunni
www.isshehot.com. Um er að ræða netsamfélag þar
sem notendur geta sent inn myndir af sér og eiga
lesendur síðunnar að dæma fyrir sig. Nú er sérstök
samkeppni í gangi, þar sem milljón dollara er í boði
fyrir sigurvegarann, eða um 67 milljónir íslenskra
laóna. Ásdís kallar sig Icequeen á síðunni og er með
8,76 af tíu mögulegum í einkunn, og má sjá fjöldann
allan af glæsilegum myndum af henni þar í kring.
Ásdís er aðeins 0,14 prósentustigum á eftir þeirri sem
er í fyrsta sæti, Tinu Marie sem er 44 ára barmgóð
Bandaríkjamær. Ef íslendingar taka sig saman og skrá
sig inn á síðuna og kjósa Ásdísi, eins og gert var með
Magna forðum er ljóst að sigurinn gæti orðið hennar.
Ef hún sigrar má þá búast við því að fjöldi karlatímarita
vilji fá hana á síður sínar, sem er löngu orðið tímabært.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Erfunheitfyrirallan peninginn