Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Blaðsíða 72
72 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
Helgarblað DV
Úrslitin í Laugardagslögunum fara fram í Vetrargarðinum í Smáralind laugardagskvöldið 23. febrúar. Átta lög
keppa til úrslita og ættu lesendur að þekkja þau orðið vel. Sigurlagið fer utan til Belgrad að taka þátt í Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem verður haldin 20., 22. og 24. maí næstkomandi.
GEFMÉRVON
Flytjandi: Páll Rósinkrans
Höfundur: Guðmundur Jónsson
Lagið er viðamikið og ekki langt frá þvf að vera
gospellag.
NÚNAVEIT ÉG
Flytjandi: Magni Ásgeirsson
Höfundur: Hafdís Huld Þrastardóttir
Lagið söng Magni upphaflega með Birgittu Haukdal.
Hún verðurfjarri góðu gamni á laugardaginn og
spilar Magni lagið (mun rokkaðri útgáfu en áður.
IN YOUR DREAMS
Flytjandi og höfundur: Davíð Olgeirsson
Davfð Þorsteinn syngursitt lag sjálfur. Lagið ber keim
af að vera falsetta, kallar fram hressar og góðar
tilfinningar.
HVAÐVAR ÞAÐ.SEM ÞÚ SÁST f HONUM?
Flytjandi: Baggalútur
Höfundur: Magnús Eiríksson
Baggalútsbræður koma með skemmtilegt framlag (
keppnina með stuðsveiflunni sem áður var
kántrísmellur.
THISISMY LIFE
Flytjandi: Eurobandið Höfundun ÖrlygurSmári
Páll Óskar tók lagið f gegn, breytti því (algjöran
danssmell og kom því ofarlega á lista yfir vinsælustu
Youtube-myndbönd Bretlands (liðinni viku.
HVARERTU NÚ?
Flytjandi: Dr. Spock
Höfundur: Dr. Gunni
Frá Dr. Gunna kemur mikið rokklag þar sem skrítnir
búningar og kraftmikil sviðsframkoma vega mest.
HO,HO,HO, WE SAY HEY,HEY, HEY
Flytjandi: Mercedes Club
Höfundur: Barði Jóhannsson
Var vinsælasta lagið. Það dalaði aðeins eftir síðustu
frammistöðu en flytjendur hafa lofað henni betri.
DON'TWAKEMEUP
Flytjandi: RagnheiðurGröndal
Höfundur: Margrét Kristín Sigurðardóttir
Lagið er rólegt og sviðsframkoma ólík hinum
lögunum. Komst nokkuð óvænt áfram í úrslitin.
PIZZERIA
t/Wtsts
afsóttum pizzuttt
<XO<( /
tsf/n/rum
■tsWt/m