Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
Helgarblaö DV
BARIST UM KEIKÓ , „
Arið 1976 fæddist háhyrningur við strendur Islands. Þremur árum síöar var
háhyrningurinn ungi veiddur í þeim tilgangi að verða sýningargripur á sæ-
dýrasafni í Bandaríkjunum. Það var bandaríski sjóherinn sem sá um þjalf-
un háhyrningsins fyrst um sinn. Háhyrningurinn öðlaðist síðar heimsfrægð
þegar hann „lék" í kvikmyndinni Free Willy. Árið 1993 hófst svo herferð
mikil fyrir því að frelsa háhyrninginn, sem hafði hlotið nafnið Keiko, sem
þá var í sædýrasafni í Mexíkóborg og heldur bágur til heilsunnar. Keikó var
fluttur í sædýrasafn í Oregon þar sem hann fór í endurhæfingu og árið 1993
var hann fluttur með herflugvél til Vestmannaeyja til að búa hann undir
frelsið í hafinu. Þar var honum kennt að veiða og einnig var honum sleppt
úr kví sinni í Klettsvík í þeirri von að hann myndi hitta aðra háhyrninga og
blanda geði við þá. Talið er að þessar aðgerðir hafl kostað um hálfa millj-
ón dala á mánuði eða um 38 miUjónir. Keikó, sem þýðir hinn heppni á jap-
önsku, greindist með bráða lungnabólgu í desember árið 2003 og drapst
í kjölfarið, hann var þá nálægt Taknesbugt í Noregi. Hann varð 27 ára en
meðalaldur villtra háhyrninga er um 35 ár.
SLAPPUNDAN
BÖÐLUM SÍNUM
Kýrin Sæunn er einhver lífseig-
asta skepna sem íslendingar geta
státað af. I október árið 1987 átti
að slátra Sæunni, en slapp hún
frá böðlum sínum og synti yfir
þveran Önundarfjörðinn. Þegar
hún svo kom í land á Kirkjubóli,
tók bóndinn þar við henni og Ufði
hún þat í sex ár. Hún var að lok-
um heygð í sjávarkambinum þar
sem hana bar að landi og heitir
það núna Sæunnarhaugur.
BJARGVÆTTUR
OG RÁÐGJAFI
Hundurinn Tanni hefur oftar en einu sinni
verið nefndur á nafn í íslenskum fjölmiðl-
um sem er kannski ekki furða þegar liorft
er til þess að hann var í eigu valdamesta
Islendings seinni tíma, Davíðs Oddsson-
ar. Tanni vann sér það meðal annars til
frægðar að hrekja Bjarna Bernharð á brott
með urri sínu þegar Bjarni hringdi bjöll-
unni á heimili Davíðs og eiginkonu lians,
Ástríðar Thorarensen, eftir að hafa framið
hið svokallaða Bader-Meinhoff-morð á ní-
unda áratugnum. Ilavíð sagði líka eitthvað
á |tá leið í einu viðtali að hann tæki rneira
mark á Tanna en mörgum manneskjum
sem leggja eitthvað til málanna.
FRÆGUR ITIMES
I.ucy, hundurfyrrverandiljármála-
ráðherrans Alberts Guðntunds-
sonar, er einn mikilvægasti
hundur (slandssögunnar. Á
árum áður var hundahakl bann-
að í Reykjavík, en jrrátt fyrir það
voru um 3.000 hundar á höfuð-
borgarsvæðinu. Þegar svo kona
neitaði aö greiða sekt tyrir að eiga
hund, ákváðu fréltamenn hjá RIJV
að leita álits hjá Alberti. Alberl
sagðist þá sjálfur eiga hund, sem
hann væri í lians augum fullgildur
fjölskyldumeðlimur. Albert
neitaði sjálfur að greiða sekt og
sagðist frekar llytja en að losa sig
við tt'kina. Vakti tíkin athygli úti
um allan heim og skrifaði meðal
annars tímaritið Time um málið.
Alhert reyndi að lá banninu
aflétt, eða að liigunum yrði
breytt, en ekkert gerðist fyrr en í
borgarstjóratíð Davíðs Oddssonar.