Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2008, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 14. APRlL 2008
Fréttir DV
Keyrði á
veitingastað
Lögreglan handtók
mann aðfaranótt sunnudags
eftir að hann hafði keyrt á
veitingastaðinn Asíu sem
er til húsa á Laugaveginum.
Maðurinn, sem er grunaður um
ölvun við akstur, ók einnig á aðra
bifreið. Bílstjóri þeirrar bifreiðar
brást hinn versti við og brutust út
átök á milli þeirra. Áverkar voru
á mönnunum eftir slagsmálin.
Skemmdir á húsnæðinu eru
óverulegar en bíll ökuþórsins er
talsvert skemmdur. Maðurinn
fékk að gista fangageymslur
lögreglunnar það sem eftir lifði
nætur.
Lést í eldsvoða
Karlmaður á
fimmtugsaldri, Björn
Kristjánsson, lést eftir að
eldur kviknaði í íbúð við
Skúlabraut á Blönduósi í
gærmorgun. Björn lætur eftir
sig tvo uppkomna syni. Hann
var einn í íbúðinni. Þegar
slökkviðið kom á vettvang
var mikill eldur og reykur í
íbúðinni. Reykkafarar voru
sendir inn í íbúöina og fundu
þeir manninn. Hann var
úrskurðaður látinn skömmu
síðar. Slökkvistarf tók um
tvær klukkustundir erv miklar
skemmdir urðu á húsnæðinu.
Lögreglan á Akureyri vinnur
að rannsókn á brunanum.
Góð nótt
á Akureyri
Lögreglan á Akureyri hafði
í nógu að snúast um helgina
en talsverð ölvun var í bæn-
um. Mikill mannfjöldi var í
bænum vegna söngvakeppni
framhaldsskólanema og þá var
einnig skíðamót í Hlíðarfjalli.
Að sögn lögreglunnar voru
þrír einstaklingar teknir vegna
ölvunaraksturs og svo voru
tveir handteknir vegna meints
lyfjaaksturs undir áhrifum
fflaiiefna. Þrátt fyrir gríðarlega
mannmergð gekk nóttin vel að
sögn lögreglunnar.
Uðað á
sendiráðið
Kínverska sendiráðið til-
kynnti lögreglu í gærmorgun
að á húsnæði sendiráðsins
hefði verið skrifað orðið
„murderers", eða morðingjar,
með rauðu úðalakki. Aðeins
eru nokkrir dagar síðan rauðri
málningu var hellt á tröppur
sendiráðsins í mótmælaskyni
vegna framkomu kínverskra
stjórnvalda við íbúa Tíbet.
Að sögn lögreglu er ekki
vitað hverjir voru að verki
en við rannsókn málsins
verður farið yfir myndir úr
öryggismyndavélum við
húsið.
Með hass og vopn
Héraðsdómur Reykjavíkur hef-
ur dæmt Hörð Einar Einarsson,
25 ára, í tveggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir fíkniefna- og
vopnalagabrot. Á heimili Harðar
fundust 52 kannabisplöntur, rúm
294 grömm af kannabisstöngl-
um og 0,37 grömm af maríjúana.
Jafnframt var honum gefið að sök
að hafa um nokkurt skeið ræktað
téðar plöntur í húsnæði sínu.
Skotvopn án tilskilinna leyfa
fundust á heimili hans. Hörður
játaði brot sín en frá árinu 2001
hefur hann hlotið sex dóma og
tvisvar gengist undir að greiða
sektir. Aðallega vegna brota á
umferðar- og fíknefnalöggjöf, en
einnig vegna þjófnaðar.
Réðust á Hákon Eydal refsifanga á Litla-Hrauni:
Fangar dæmdir fyrir ársás
HéraðsdómurSuðurlandsdæmdi
á Jón Einar Randversson og Hákon
rn Atlason í fangelsi fyrir líkams-
árás innan veggja Litla-Hrauns 4.
júlí í fyrra. Fórnarlamb árásarinnar
var Hákon Eydal, en hann fékk 16
ára fangelsi árið 2005 fyrir að hafa
banað Sri Rhamavati.
Jón Einar fékk eins árs
dóm, þar af níu mánuði
skilorðsbundna, en Hákon
Örn þrjá mánuði skilorðs-
bundna.
Hákon örn sló Hákon Ey-
dal nokkrum hnefahöggum í
andlitið þannig að hann féll
í gólfið. Þeir Hákon Örn og
Jón Einar spörkuðu ítrekað
í Hákon Eydal en hann fót-
brotnaði meðal annars
við árásina. Ástæða
árásarinnar var
sú að Hákon Ey-
dal vildi ekki láta
þá hafa
meira
brugg.
Moröinginn Hákon Eydal varö fyrir hrottalegri árás samfanga sinna á Litla-Hrauni'
DEILDU UM BRUGG 0G
Sautján ára stúlku var nauðgað á salerni skemmtistaðarins Trix í Reykjanesbæ
aðfaranótt sunnudags. Jósep Þorbjörnsson. eigandi Trix, vill ekki svara fyrir hvers
vegna stúlku undir lögaldri var hleypt inn á staðinn. Lögregla fer nú yfir upptökur úr
öryggismyndavélum staðarins.
SAUTJAN ARA
NAUÐGAÐA
SKEMMTISTAÐ
ERLA HLYNSDÓTTIR
bladamadur skrifar:
Sautján ára stúlku var nauðgað á
salerni skemmtistaðarins Trix í
Reykjanesbæ aðfaranótt sunnudags.
Lögregla verst fregna og segir málið
í rannsókn. Enginn hafði verið
handtekinn þegar DV fór í prentun
ígær.
Samkvæmt traustum heimildum
blaðsins hafði stúlkan verið á spjalli
við ofbeldismanninn skömmu áður
en hann nauðgaði henni. Því er búist
við því að hún þekki hann aftur.
Fjöldi öryggismyndavéla er einnig á
skemmtistaðnum og vinnur lögregla
í að fara yfir upptökurnar.
Jósep Þorbjörnsson, eigandiTrbc,
segist ekkert hafa heyrt af nauðgun-
inni fyrr en lögreglan kom á staðinn
eftir lokun í gærmorgun og hóf
vettvangsrannsókn sem stóð
yfir í fleiri klukkustundir.
Árás á salerni Stúlku
undir lögaldri var
nauðgað á skemmti-
staðnum Trix um helgina.
Undir lögaldri áTrix
Samkvæmdheimild-
um DV yfirgaf stúlkan
skemmtistaðinn
eftir árásina ásamt
vinkonu sinni.
Þær leituðu til lög-
reglunnar á Suð-
urnesjum og
var þaðan
farið með
þolandann
á neyðarmót-
töku fyrir fórn-
arlömb nauðg-
ina.
Athygli vekur
að stúlíamni var
hleypt inn á skemmti-
staðinn Trix þrátt fyrir að
vera aðeins sautján ára. Aðspurður
hvort gæslu á staðnum hafi
verið ábótavant þvertekur Jósep
Þorbjömsson fyrir það og segir:
„Hún hefur alltaf verið mjög góð."
Að öðm leyti vildi hann ekki tjá sig
um þá staðreynd að stúlkan var of
ung til að vera inni á staðnum en
aldurstakmarkið þar er átján ár.
Þekktur fyrir splash-partí
Lögum samkvæmt er ungmenn-
um undir 18 ára aldri óheimilt að
vera inni á skemmtistöðum með
vínveitingaleyfi eftir klulckan tíu
á kvöldin nema í fylgd með for-
ráðamönnum. Dyraverðireðaaðrir
sem bera ábyrgð á rekstri staðarins
eru skyldugir til að fá staðfestingu
á aldri gesta sinna. Sektargreiðsla
liggur við því á hendur forsvars-
mönnum skemmtistaðar sem
heimildar ungmennum undir aldri
að vera þar inni. Ekki náðist í Ólaf
Geir Jónsson, skemmtanastjóra
á Trix, við vinnslu fréttarinnar.
Hann er fyrrverandi herra fsland
og vakti mikla athygli þegar hann
var sviptur titlinum því að sögn
keppnishaldara þótti hann ekki
nógu góð fyrirmynd. Ólafi Geir
fannst að sér vegið, kærði svipt-
inguna og fékk titilinn til baka.
Skemmtistaðurinn Trix hét
áður Traffic. Fyrir nafnbreytinguna
voru þó bæði Ólafur Geir og Jósep
við stjórnvölinn. Hinn fyrrnefridi
hefur reynt að höfða til yngri
kynslóðarinnar, meðal annars með
svokölluðum splash-partíum.