Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 30. MAl 2008 HelgarblaB PV FORSETAKOSNINGARNAR í BANDARÍKJUNUM:) STALIN ST1NN S '&L John McCain Hefur átt i erfiðleikum í forkosningunum. HAFSTEINN GUNNAR HAUKSSON bhiðamodui ikiifar hafstemn^dv.is Nú sér loks fyrir endann á forkosn- ingiím stóru flokkanna tveggja í Bandaríkjunum um hver hreppi tilnefningu sem forsetaefni þeirra í kosningunum í nóvember. Þykir flestum sérfræðingum ljóst að Bar- ack Obama verði forsetaefni demó- krata en öldungadeildarþingmað- urinn John McCain verði fulltrúi repúblikana í slagnum. Líklegt þykir að barátta þeirra verði hörð enda njóta þeir báðir ómældra vin- sælda í landinu. Samkvæmt könn- unum er munur á fylgi þeirra afar lítill og ljóst að spennandi kosning- ar eru fram undan vestanhafs. McCain pyntaður í Víetnam Barack Obama hefur setið sem þingmaður í öldungadeild banda- ríska þingsins síðan 2004. Hann er menntaður lögfræðingur ffá Harv- ard og tókst meðal annars að verða fyrsti þeldökki forseti Harvard Law Review, tímarits skólans. í þinginu hefur hann beitt sér fyrir gagnsæi í opinberum fjármálum, í málefnum innflytjenda og lagt fram frumvörp sem miða að því að binda enda á hersetu Bandaríkjanna í írak. Þau mál eru í takt við kosningaloforð Baracks, en hann leggur til dæmis mikla áherslu á að ljúka Íraksstríð- inu og sker sig þar með úr fram- bjóðendahópnum. Stjórnmálaspekingar telja víst að fjendurn- ir Barack Obama og John McCain komi til með að heyja blóðuga baráttu um forsetastól Bandaríkjanna. John McCain á skrautlegan feril að baki, bæði í bandarískum stjórn- málum og í hernum. Hann tók þátt í Víetnamstríðinu og sat meðal ann- ars flmm og hálft ár í fangabúðum Víetnama við bágan kost og pynt- ingar. Hann hefur gegnt opinber- um embættum síðan 1982 og set- ið bæði í fulltrúa- og öldungadeild þingsins. McCain bauð sig fram í forkosningunum árið 2000 en tap- aði þá fyrir George W. Bush. Hann hefur þó fengið uppreist æru því allt útlit er fyrir að hann verði frambjóð- andi repúblikana í ár. Þyrnum stráðar forkosningar Forkosningarnar hafa verið erf- iðar fyrir báða ffambjóðendur enda áttu þeir við ramman reip að draga. Andstæðingar þeirra, Hillary CUn- ton úr Demókrataflokknum og Mitt Romney og Rudy Guiliani úr Rep- úblikanaflokknum, voru öU taUn lflc- legri til sigurs í upphafi. John McCain hafði auk þess bakað sér nokkr- ar óvinsældir meðal flokksbræðra Barack Obama Þarf að sækja I sig veðrið. sinna vegna smðnings við umdeUd innflytjendalög og ekki batnaði ástancúð þegar samstarfsmenn hans í kosningabaráttunni tóku að segja upp í hrönnum síðasta sumar. Það var ekki fyrr en á ofurþriðju- daginn 5. febrúar sem gæfan sner- ist McCain endanlega í hag og hann náði umtalsverðu forskotí, en þá hafði meðal annarra rfldsstjóri KaUf- orm'u, Amold Schwarzenegger, lýst yfir stuðningi við framboð hans. Mótffambjóðendur McCains tóku í kjölfarið að draga framboð sín til baka og margir þeirra smddu fram- boð hans. Leið Baracks hefur ekki verið jafn þymum stráð, þó barátta hans við Hillary Clinton sé öUu jafnari en McCains og andstæðinga hans. Eins og nú stendur hefur Barack 1.485 kjörmenn gegn 1.421 kjörmanni HiUary. Barack býst við því að inn- sigla sigurinn í næsm viku. McCain á móti réttindum samkynhneigðra Það er deginum ljósara að Obama og McCain koma tíl með að höfða tíl mismunandi þjóðfé- lagshópa í forsetakosningunum 5. nóvember. Almennt er taUð að Barack hafi sterkt bakland hjá þel- dökkum Bandaríkjamönnum og hefur hann meðal annars tryggt sér smðning Opruh Winfrey og Stevies Wonder í forkosningunum. Hann er að auki yfirlýstur andstæðingur Iraksstríðsins og spUar þar með á óánægju bandarískra borgara með stríðsreksmr stjórnvalda erlendis. McCain hefur hins vegar lýst því yfir að hann vUji halda hermönnum í landinu eins lengi og þörf krefur. Frambjóðendurnir eru að sama skapi ósammála um flest hinna stóru átakamála. Obama styður rétt lcvenna tíl fósmreyðinga og að- gang að ókeypis getnaðarvörnum, McCain ekki. Obama vill takmarka rétt til byssueignar og vopnaburðar, McCain ekki. Obama styður jafnan rétt samkynhneigðra á við gagn- kynhneigða, McCain ekki. McCain er einnig andvígur því að samkyn- hneigðum verði leyft að gegna her- þjónustu og styður „ekki spyrja - ekki segja frá"-stefnu stjórnvalda í þeim eftium. Áherslur frambjóðenda á öðr- um sviðum eru jafnframt nokkuð mislægar líkt og búast mátti við. I menntamálum stendur styrinn helst um ávísanakerfi svokallað sem hvetur tíl einkareksturs, en Obama telur að það muni grafa undan rík- isskólum. John McCain er raun- ar dyggur smðningsmaður frjáls- ræðis og einkareksturs sem víðast í þjóðfélaginu, ekki síst í heilbrigð- isgeiranum. Obama leggur áherslu á að öllum sé heilbrigðisþjónusta aðgengileg meðan McCain vill tak- marka flæði skattfjár til málaflokks- ins og auka áhersíu á spamað með einkarekstri. Það er því lfldegt að niðurstöður kosninganna muni ekki segja minna um viðhorf bandarísku þjóðarinnar en um frambjóðendurna sjálfa. . j ■’.'.r :„l.. -r. íli •*! Lítill munurá frambjóðendum Fjölmiðlar vestanhafs keppast nú við að bera saman mismun- andi frambjóðendur í skoðana- könnunum og sé John McCain og Barack Obama stillt saman er munurinn á fylgi þeirra hverf- andi. John McCain hefur í síðustu könnunum mælst með um þriggja prósenta forystu á andstæðing sinn með 47 prósenta fylgi gegn 44 prósenta fylgi Obama. McCain bíður enda varla boð- anna lengur og er þegar farinn að láta skína í tennurnar. Hann bauð Obama nýverið að fylgja honum til íraks og sýna honum ástand- ið þar í landi, en McCain hefur gagnrýnt andstæðing sinn fyr- ir reynsluleysi, ekki síst í hern- aði. Líklegt þykir að McCain nýti reynslu sína úr hernum sér til framdráttar í kosningabarátt- unni. Ljóst er að báðir frambjóð- endur eiga mildð verk fyrir höndum næstu mánuði. McCain glímir við lítið fylgi meðal frjáls- lyndra Bandaríkjamanna og sama vandamál stendur Barack fyrir dyrum meðal íhaldssamra hvítra. Samkvæmt stjómmála- spekingum dugir ekld lengur að bera í bakkafullan lækinn, held- ur þurfa frambjóðendur að ein- beita sér að því að ná til stuðn- ingsmanna andstæðingsins. Því eitt er víst; fátt er jafnfallvalt og álit almennings.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.