Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 30. MAl 2008 Helgarblað DV TRAUSTI HAFSTEINSSON bladamadur skrifar: trau. Snakk úr fiskroði, kattamatur, parkett, skeifur, víkingaskip, stíg- vélaþurrkarar og minjagripir sem byggja á hugmyndafræði Snorra- Eddu eru meðal nýsköpunarverk- efna sem Byggðgstofnun ákvað að styrkja á dögunum. Flest fyrirtækin sem hlutu styrk einblína á þróun í fiskvinnslu ýmiss konar, seiðaeldi og sjóstangaveiði. Byggðastofnun hefur geng- ið frá styrkveitingum og hlutafjár- framlögum til eflingar atvinnuþró- unar og nýsköpunar árin 2008 og 2009. Styrkirnir eru hluti mótvæg- isaðgerða ríkisstjórnarinnar eftir að þorskkvóti var skorinn niður í 130 þúsund tonn. Nærri 200 milljón- ir króna voru veittar til tæplega 70 fýrirtækja víða um landið, flestra á Norðurlandi. Ekki var hægt að veita styrk til allra þeirra sem sóttu um því alls bárust 253 umsóknir þar sem óskað var eftir nærri 1,6 milljörðum króna samtals. Rúmur fjórðungur umsókna var samþykktur og veittir voru styrkir að verðmæti rúmlega 12 prósent af heildarfjárhæðinni sem óskað var eftir. Mikil þörf Hæstu styrkina, 5 milljónir hver, hlutu Þóroddur ehf. á Tálknafirði vegna uppbyggingar seiðaeldis- stöðvar, JE-Vélaverkstæði ehf. á Siglufirði vegna þróunar á nýrri gerð af snekkju og Vélfag ehf. Ól- afsfirði fyrir þróun og smíði roðvél- ar. Við mat á umsóknum var eink- um tekið tillit til hlutfalls starfa í veiðum og vinnslu á viðkomandi svæði, nýsköpunargildis, gæða og mögulegs árangurs verkefna auk fjölda starfa sem þeim er ætlað að skapa. Byggðastofnun gerir á næst- unni samninga við styrkþega um framvindu og árangursmat verkefn- anna en styrkirnir verða greiddir út í tvennu lagi. Sigríður Þorgrímsdóttir, sérfræð- ingur á þróunarsviði Byggðastofn- unar, er ánægð með hvernig til tókst í úthlutuninni. Hún viðurkennir að „í þeim efnum hefur ríkisstjórnin svikið sín loforð og aðgerð- irnareru hennitil skammar. Verið er að setja tiltölulegan smápening í þetta, aðeins brotabrot, í samanburði við hinn mikla skaða sem orð- ið hefur í sjávarútveg- inum." helst hefði hún viljað styrkja flest af þeim verkefnum sem bárust. „Við höfðum það að leiðarljósi að efla atvinnusköpun á svæðum sem urðu sem verst úti í þessum kvótaniðurskurði. Ég myndi segja að þörfin sé mjög mik- il og að sjálfsögðu vonum við að þessir fjármunir komi fyrirtækjunum til góða," segir Sigríður. Dugarskammt „Okkur barst mikill fjöldi umsókna og það gefur augaleið að við gátum ekki veitt öllum styrk því fjöld- inn var langt fram það sem við höfðum til reiðu. Auðvitað hefði ég al- veg viljað styrkja fleiri, kannski ekki al- veg alla því sumir voru fyrir utan gefinn ramma en að minnsta kosti alla þá sem skoruðu hátt í matinu hjá okkur. Þó að við höfum ekki getað styrkt alla umsækjendur þýðir það alls ekki að þeir sem fengu ekki úthlut- að hafi verið ómöguleg- ir. Okkur bárust margar. mjög fínar og frumleg- ar umsóknir og mjög leitt að geta ekki sinnt fleirum," segir Sigríður. Halldór Halldórs- son, bæjarstjóri fsa- fjarðarbæjar og for- maður Sambands íslenskra sveitarfé- laga, fagnar úthlutun- inni þó vissulega hefði mátt veita hærri fjár- hæðir að hans mati. Hann segist jákvæður gagnvart því að mót- vægisaðgerðirnar skapi ný verkefni og hlakkar til að sjá hvað kemur út úr þessari úthlutun. „Við getum að minnsta kosti kallað þessa úthlutun ágætis viðleitni sem verði vonandi til þess að koma einhverjum góðum verkefnum af stað. Það hins vegar alltaf þörf fyrir meiri pen- inga og allir geta verið sammála því að meiri peningar geri meira gagn," segir Hall- dór. er Brotabrot Guðni lýsir vonbrigðum sínum með svikin loforð ríkisstjórnar innar og segir mótvægisaðgerðirnar eins og hvert annað grín. SKIPTING STYRKJA MILLILANDSHLUTA NORÐURLAND 31 styrkur 78,5 milljónir króna VESTFIRÐIR 14 styrkir 33,1 milljón króna AUSTURLAND 9 styrkir 31,5 milljónir króna VESTURLAND 9 styrkir 23,8 milljónir króna Umdeild akvörðun Ríkisstjórnin ákvað að skera niður þorskkvóta í 130 þúsund tonn og boðaði viðamiklar mótvægisaðgerðir í kjðlfarið. Brotabrot af skaðanum Steingrímur J. Sigfússon, for- maður vinstri grænna, segir vissu- lega gott að fyrirtækjum sé komið til aðstoðar og vill ekki gera lítið úr því framtaki. Hann gagnrýnir hins veg- ar hversu seint og hversu takmark- að ríkisstjórnin hefur brugðist við kvótaniðurskurðinum. „Þessi nýj- asta úthlutun er hluti af mótvægis- aðgerðamambói ríkisstjórnarinn- ar. Ég stend harður á því að standa hefði átt mikið betur að þessum að- gerðum og gera þær skilvirkari, fyrir utan hversu drjúgan tíma þetta hef- ur tekið ríldsstjórnina. Fjárhæðirn- ar eru ekld stórar og þær draga ekki langt. Því miður óttast ég að þess- ir fjármunir nú vegi ósköp lítið því þetta er bara smá brot af því sem þörf er á," segir Steingrímur. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, telur óþarft hversu harkalega kvótinn var skor- inn á síðasta ári og hefði frekar vilj- að fara vægar í hlutina. Hann brosir að aðgerð- um rrkis- SUÐURNES 3 styrkir 9,6milljónirkróna SUÐURLAND 3 styrkir 11,5 milljónir króna SAMTALS 69 styrkir 188 milljónirkróna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.