Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 30. MAf 2008 Sport DV Úrslitakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu hefst 9. júní. 16 lið komust á mótið og þurftu landsliðsþjálfarar allra liðanna að kalla til 23 manna hóp fyrir mótið. Þegar ekki er hægt að velja alla sem þú vilt hljóta ein- hverjir að þurfa sitja eftir heima, súrir og svekktir fyrir framan sjónvarpið. DV tekur hér saman 10 menn sem eiga fyllilega skilið að spila í sumar en verða heima með popp og kók eins og hver annar áhorfandi. PIPPO" INZAGHI FÉLAGSLIÐ: AC MILAN ALDUR: 34 LANDSLEIKIR: 57 MÖRK: 25 „Pippo var fæddur rangstæður," sagði Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, um þennan magnaða framherja. Inzaghi er dæmdur rangstæður að minnsta kosti lOsinnum (leiken í þetta eina skipti sem hlaupið tekst skorar hann alltaf. Hann kom seint inn i lið Milan á árinu en auðvitað skoraði maðurinn. 18 mörk í 28 leikjum, þar af 5 mörk í sex leikjum í Meistaradeildinni. Þegar boðið er upp á Marco Borriello og Fabio Quagliarela i hópnum hlýtur að vera pláss fyrir þennan náttúrulega markaskorara. Þegar þig vantar mark á ögurstundu mun Inzaghi redda þér, það vita allir. DAVIDTREZEGUET FRAKKLAND FÉLAGSLIÐ: JUVENTUS ALDUR: 30 LANDSLEIKIR: 70 MÖRK: 34 Ekki var pláss í franska hópnum fyrir næstmarkahæsta leikmann landsliðsins frá upphafi, David Trezeguet. Raymond Domenech, landsliðsþjálfara Frakka fannst tuttugu mörkTrezeguetá tímabilinu ekki nægileg ástæða fyrir að velja hann. Nýliðinn Bafetimbi Gomis mun spranga um á iðgrænu grasinu í Austurríki og baða sig í sviðsljósinu á meðanTrezeguet situr heima með vínglasið sitt og horfir á keppnina í sjónvarpinu. Trezeguet þykir með eindæmum vanmetinn leikmaðurog þótt hann sjáist sjaldan í leikjum dúkkar hann alltaf upp og setur eins og eitt mark eða svo. MATHIEU FLAMINI FRAKKLAND FÉLAGSLIÐ: AC MILAN ALDUR: 24 LANDSLEIKIR: 2 MÖRK: 0 Þrátt fyrir magnaða frammistöðu með Arsenal á árinu, sem skilaði honum sölu til AC Milan, komst hann ekki með hinum í franska hóp- inn. Flamini er einstaklega ofmetinn leikmaður og mun Milan komast að raun um það næsta vetur. Domenech sér hins vegar í gegnum alla vitleysuna og valdi Flamini ekki. Sem betur fer fyrir Flamini þarf hann ekki að spila fyrir nýjum samningi eða nýjum atvinnuveit- anda þar sem Milan hefur nú þegar klófest Frakkann. Það má alveg fastlega búast við því að Flamini hafi brugðið i brún þegar hann sá að hann var ekki valinn (franska landsliðshópinn að þessu sinni. FÉLAGSUÐ: REAL MADRID ALDUR: 31 LANDSLEIKIR: 102 MÖRK: 44 Það er ástæða fyrir að Raúl er kallað- ur kóngurinn. Hann er kóngurinn. 205 mörk í 483 leikjum fyrir Real Madrid og annað eins fyrir landsliðið. Real Madrid var endurskírt af spænskum fjöfmiðl- um, Raúl Madrid, en ferill hans dugði honum ekki í landsliðshópinn á EM. Gengi þessa magnaða leikmanns hafði ekki verið gott síðustu 2 ár en ef hann átti einhvern tíma skilið landsliðssæti er það núna. Hann var hreint magnaður með Madrid í ár, skoraði 23 mörk og lagði annað eins upp. Aragones vill eflaust yngja upp í spænska liðinu en tíminn fýrir að skera á Raúl er ekki núna. FÉLAGSLIÐ: REAL MADRID ALDUR: 31 LANDSLEIKIR: 14 MÖRK: 3 Guti á ekki marga landsleiki að baki enda hafa flestir landsliðsþjálfarar Spánar séð í gegnum Madrídar- pressuna sem talar svo fallega um hann. Guti var að Ijúka sínu þrettánda ári hjá Real Madrid og líklega því langbesta. Allt sem sagt hefur verið að hann geti í gegnum tíðina gerði hann loksins og það var hrein unun að horfa á manninn oft á tíðum. Einfaldar sendingar í gegnum varnir sem skildu varnarmenn eftir að klóra sér í hausnum á meðan Nistelrooy eða Raúl fögnuðu marki „Hann gæti skoriö upp niðursuðu- dós með þessum vinstri fæti sínum," hefur verið sagt um Guti. (dag er það líklega satL bwi/r CLARENCE SEEDORF HOLLAND FÉLAGSLIÐ: AC MILAN ALDUR: 32 LANDSLEIKIR: 86 MÖRK: 11 Seedorf mun ekki leika á Evrópumótinu i sumar en það er honum sjálfum að kenna. Marco Van Basten, landsliðsþjálfari Hollendinga hafði valið hann upphaflega í æfingahópinn en Seedorf afþakkaði pent og ætlar frekar að vera áhorfandi. Hann gaf engar ástæður fyrir neitun sinni en Basten sagðist virða hana og eiga nóg af leikmönnum til að fylla skarð hans. Það er þó ekki alveg rétt því Seedorf hefur nokkra sérstöðu í hollenska liðinu þar sem hann getur bæði sótt og varist mjög vel. Hann er ekki jafnmikil dúkka og margir Hollendingar og spilar aldrei betur en i stóru leikjunum. HAKAN SUKUR TYRKLAND FÉLAGSUÐ: GALATASARAY ALDUR: 36 LANDSLEIKIR: 112 MÖRK: 51 Það getur svo sem enginn láð neinum landsliðsþjálfara að velja ekki 36 ára gamlan mann ( landsliðið en ferill hans talar sinu máli. Það bjóst enginn við öðru en að Sukur myndi verða valinn í tyrkneska hópinn enda nýtur enginn meiri virðingar (Tyrklandi en Sukur. Hann er hvergi hættur að skora í heimalandinu og ferill hans með landsliðinu er ótrúlegur en það dugði honum ekki til að verða valinn.Tyrkneskum fjölmiðlum kom þetta val virkilega á óvart og var skrifuð stór grein um málið þar sem ritað var að landsliðsferli þessa merka markaskorara væri endanlega lokið. URBY EMANUELSON HOLLAND FÉLAGSLIÐ: AJAX ALDUR: 21 LANDSLEIKIR: 11 MÖRK: 0 Ein skærasta stjarnan í hollenskum fótbolta var skilin eftir heima. Hann var valinn í 30 manna æfingahóp Marcos Van Basten en var fyrstur til að fjúka ásamt öðrum efnilegum leikmanni, Hedwiges Madouro. Margir höfðu beðið eftir því að sjá Emanuelson spígspora upp vinstri kantinn úr bakvarðarstöðunni en Evrópumótið átti að vera hans sýningargluggi fyrir hæfileika sína. Það var búið að ákveða að hann yrði keyptur eitthvað frá Ajax eftir mótið þegar heimurinn sæi hvað hann gæti afrekað. Hvort það spili inn i að Van Basten sé að taka við Ajax í haust er erfitt að segja til um á þessu stigi málsins. PAUL SCHARNER AUSTURRlKI FÉLAGSLIÐ: WIGAN ALDUR: 28 LANDSLEIKIR: 12 MÖRK:0 Ekki stærsta nafnið á listanum en sagan á bak við hann er nokkuð skondin. Þó ekki fyrir hann. Paul Scharner fór í fýlu við núverandi landsliðsþjálfara Austurríkis fýrir nokkrum árum. Daginn eftirvar tilkynnt að Austurríki myndi halda Evrópukeppnina og þátttaka Scharners, sem er einn besti maður liðsins á heimavelli, væri möguleiki. Landsliðsþjálfarinn er tilbúinn til að velja hann í liðið en Scharner segist ekki ætla að spila fýrr en hann biðjist fyrirgefningar. Þjálfarinn er samt ekkert á þeim buxunum og er Scharner það þrjóskur að hann mun missa af Evrópumótinu í sínu eigin heimalandi. MANICHE PORTUGAL FÉLAGSLIÐ: ATLETICO MADRID ALDUR: 30 LANDSLEIKIR: 44 MÖRK: 7 Maniche hefur spilað sig út úr landsliðinu undanfarin ár eftir að hafa verið óheppinn meðdvöl hjá félagsliðum. Vistaskipti hans til Atletico enduðu með lánssamningi til Inter þar sem hann stóð sig ekki sem best. Maniche hefur verið akkerið á miðju Portúgals undanfarin ár en þarf nú að sitja heima og horfa á keppnina á meðan litli bróðir hans, Jorge Ribero, er í hópnum. Ribero átti magnað tímabil með Boavista í heimalandinu og fékk verðskuldað kall frá Scolari landsliðsþjálfara. Maniche mun þurfa að láta sér það lynda að horfa á litla bróður spila á Evrópumótinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.