Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 30. MAl 2008 Hetgarblað PV Þétt setnir skeiðvellir borgarinnar Þóttu vel fallnir til stefnumóta. \STIN ER EINS OG SINUELDUR Ýmislegt í sýn Rómverja á sjálfa ástina kemurokkur spánskt fyrir sjónir, annað þekkjum við af eigin reynslu. Viðþekkjum þærtilfinningar sem fram koma í best væri að staðurinn hyrfi af yfir- borði jarðar... Sumarleyfisstaður heldra fólksins Orðið sem fór af Baiae dró ekki úr áhuga ríkra og voldugra Rómverja á að dveljast þar. Þegar öldungaráð- ið tók sér hlé á vorin og Rómaborg fýlltist af hita og sóttum, flykktust efri stéttirnar suður á sveitasetur sín sem stóðu þétt við flóann. Keisaram- ir Caligula og Neró dvöldu þar iðu- lega, Cicero og Plinius yngri áttu þar setur og dvöldu þar langdvölum yfir hásumarið. Líkamsvessar stjórna heilsufari Þegar hér var komið í mannkyns- sögunni töldu menn víst að Iíkams- vessarnir fjórir - blóð, slím, gult gall og svart - stjómuðu heilsufari manna og sjúkdómar til líkama og sálar ættu rætur að rekja til ójafnvægis vess- anna. Með heitum og köldum böð- um, heitum og köldum gufum, þurrk og raka, mátti ná jafnvægi á ný. Heilsusamleg böðin drógu menn í fyrstu suður til Baiae en síðar ein- kenndu kynh'f og frjálslegar ástir líf- ið þar. Þar skorti ekki baðstrendur, sólskin eða skínandi Miðjarðarhaf- ið. Þar voru líka heitar uppsprettur sem góðar vom til lækninga og hægt ástarkvæðunum fornu, þær eru þær sömu þá og nú. Sígildur menningararfurinn ur löndunum við Miðjarðarhafið hefur einnig fylgt okkur allar götur síðan og á eftir að gera lengi enn. Til voru þeir Rómverjar sem töldu ástina sjúkdómog enn þjáumst við af ást. Þeir lýsa margirástinni sem logandi báli og undir þaðkyndirástarguðinn Amor með kyndlum sínum.Og þann eld er erfitt að slökkva, rétt eins og sinueldinn. Ovidius orti á þessa leið: Nóttina langa hefég ekki fengid sofíð heldurengstá beðnum svo nú verkjar mig um allan likamann. Ef þetta er ástættiégað kannast viðhana. Eftil vill nálgast hún og ræðstsvo að mér? Þannig erþað sjálfsagt, örin er föst ihjarta mér. Nú rikir Amor þar og ásækir mig án afláts. Gefst ég upp?Berstég á móti, tekst ég á við logana? var að láta sig fljóta áhyggjulaust um í hátimbmðum baðhúsum. Einn- ig mátti ganga sér til heilsubótar í íburðarmiklum skrautgörðum með fjölda gosbmnna og leita skjóls fyrir sólinni í skugga trjánna. Gestir í Baiae sóttu laugar eða syntu um í fjöruborðinu þar sem hitastig sjávarins var notalegt því vatnið úr heitu lindunum rann til sjávar. Þama hittu menn gamla vini og kunningja eða kynntust nýjum, sóttu stórveislur þar sem nóg var um mat, drykk, söng og gleði eða siglt á seglbátum á flóanum. En margir komu til Baiae til þess helst að eiga ástarfundi og það óttaðist Propertius einmitt mest þegar hann hugsaði til Cynthiu. Að fífla eða láta fíflast er áberandi kjami í mörgum rómverskum ást- arkvæðum. Og ástin þar er jafnt ljúf sem sár. I síðasta kvæði þriðju eftir- mæla Propertiusar kveður skáldið Cynthiu og segir eitthvað á þá leið að aldurinn eigi eftir að færast yfir hana af öllum sínum þunga, en hún reyni að dylja hann vegna hégómagirnd- ar sinnar, og fínlegir hrukkuþræð- imir eigi eftir að hylja hennar fögm ásjónu. Hárin gráni og þau reyni hún að rífa upp með rótum en spegillinn sýni hrukkur og bletti af grimmd. Þá verði henni háðslega hafnað og hún niðurlægð, kerlingin Cynthia megi þá þola allt sem hún gerði öðmm ... Birt með leyfl tímaritsins Sagan öll Rústirhins vinsæla sumarleyfis- og bað- staðar Rómverja, Baiae, við Napólíflóa. Myndina málaði William Turnerárið 1823 en bæjarstæðið ernú að mestu undirsjó. BYLTING í SVEFNLAUSNUM t AGAR - VAXTALAUS LÁN í 6 MÁNUÐI Frí legugreining og fagleg ráðgjöf um val á heilsudýnum. GEL/ETHANOL ARINELDSTÆÐI í SUMARBÚSTAÐINN EÐA HEIMILIÐ. REYKLAUS OG LYKTARLAUS Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi ■ Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16 WWW. TU ITI CJOtt. ÍS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.