Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 30. MAl 2008 Helgarblað DV Mikael Franson var fyrsti flóttamaðurinn sem skrifaði sig á lista til íslands í flóttamannabúðum í Austur- ríki árið 1956. Hann predikaði yfir fleirum það sem hann vissi um ísland og bættist 51 Ungverji i hópinn sem kom hingað til lands. Mikael var tvítugur hermaður sem flúði skálmöldina sem geisaði í Ungverja- landi og var aðeins með skammbyssu og tvo sígarettupakka þegar hann kom í flóttamannabúðirnar. BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON bladamadur skrifar: Það er lífsreyndur maður sem tek- ur á móti blaðamanni í fallegri íbúð í Breiðholti. Maðurinn er Mikael Franson, fyrsti maðurinn sem skrifaði sig á lista fyrstu flótta- mannanna hingað til lands. Hann kom hingað á Þorláksmessu 1956, einn en með gleði í hjarta. Honum hafði tekist að flýja frá Ungverja- landi þar sem hann hefði verið drepinn hefði flóttinn ekki tekist. „Það var bara ekkert um ann- að að velja fyrir mig en að flýja. Annaðhvort hefði ég verið skotinn eða að minnsta kosti fangelsaður verandi á móti kommúnistum og Rússum. Svo ég varð að fara." Hafði lært aðeins um (sland Mikael flúði í yfirgefinn rússn- eskan herkastala í Austurríki þar sem Austurríkismenn tóku á móti flóttamönnum úr austri. „Ég ætl- aði að fara til Kanada og langaði þangað en svo kom í ljós að það var þriggja mánaða bið til að kom- ast þangað. Ég var frekar á taug- inni eftir byltinguna, herþjónustu og allt það. Þarna voru ömurlegar aðstæður og sálarlíf mitt var einn- ig ömurlegt. Þess vegna fannst mér allt umhverfið vera ömurlegt. Ég gat því ekki hugsað mér að bíða í þrjá mánuði. Ef það hefði gerst hefði ég gert eitthvað svakalegt við sjálfan mig. Þá kom doktor Gunnlaugur ÞórðarsonsemvarformaðurRauða kross Islands á þeim tfma. Akveðið hafði verið að taka fulla flugvél af flóttamönnum til fslands á vegum Rauða krossins. Það var nú ekki mikið sem ég vissi um ísland, það voru tvær blaðsíður um landið í landaffæðibókinni minni þegar ég var í menntaskóla. Þar var aðeins um veðurfar og atvinnumöguleika. En það voru færð rök fyrir fslands- ferð þarna en flestir vissu ekkert um landið. Menn héldu að þar byggju eskimóar í snjóhúsum. Ég vissi aðeins betur en vildi fá frekari upplýsingar," seg- ir Mikael. „Ég skráði mig því fyrstur á listann. Þarna var túlkur, ungverskur prestur sem þjónaði í Austurríki, sem hjálp- aði mér að fá upp- lýsingar um hvert ég væri að fara og hvað ég væri að , fara gera. landsins. Fólkið var bara ekki nógu vel upplýst. Ég gerði þetta og þó ég segi sjálfur frá tókst mér vel upp. Því morguninn eftir þegar átti að skrá sig var fullt af fólki mætt til að skrá sig til íslands. Þannig atvikað- ist það að 52 voru valdir til að koma hingað til lands." Engin námskeið fyrir flóttamenn Mikael flúði frá Ungverjalandi yfir landamærin til Austurrík- is. Hann var einn á ferð, aðeins með skammbyssu í hendi og tvo sígarettupakka í vasanum. „Mað- ur skríður ekki yfir jarðsprengju- belti með ferðatösku. Ég var með skammbyssu, sem ég skilaði nú aldrei. Ég var bara með fötin sem ég var í, engan pening og ekki neitt." Hann kom hingað til lands 2] árs gamall. Hann hafði lokið stúd- entsprófi sem og tveggja ára her- skyldu í Ungverjalandi. Mikael kom til landsins á Þorláksmessu og var byrjaður að vinna strax 7. janúar. „Ég lærði til loftskeytamanns í sambandi við flugvélar og nefndi að mig langaði að gerast loftskeyta- maður á togara. En ég rann á rassinn með það því ég talaði ekki málið. Maðurinn sem ég talaði við vann hjá bæjarsímanum og hann var mjög góður við mig. Ég var frekar niðurbrot- inn þegar ég kom og hann út- vegaði mér starfhjá línumönn- . I, um hjá bæjarsíma Reykjavíkur. Ég var svokallaður línumaður, við reistum símastaura og ég var í stálskóm og skrúfaði króka og setti línur. Þetta var ágætt. Ég var í góðu formi og kallaði ekki allt ömmu mína, búinn að vera tvö ár í hemum. Mér var ekkert kalt og það var - »1 W " ' W Ásamt Kristjáni Eldjárn Mikael er hér árið 1977 ásamt þáverandi forseta Islands, Kristjáni Eidjárn. áH allt Þeir báðu mig í ljósi þess- ara upplýsinga að færa rök . fyrir fslands- för í búðun- um vegna þess að það vildu engtr fara til (fM lagi. Ég lenti með dásam- legum félögum og ég lærði þetta fljótt. Svo bara spurði ég og spurði því það var ekkert nám- skeið eða neitt fyrir flóttamenn á þessum tíma. Við vorum ekk- ert umkringdir sykur- púðum. En það var allt í lagi. Þetta var bara nýr 7 heimur og þetta hjálp- aði manni. Það var ágætt að mæta svolítið hörðu umhverfi, mér Uk- aði það vel að vera úti." Var aleinn í heiminum Mikael segir að sér hafi strax verið tekið vel hér á landi. „Við fórum beint úr flugvélinni í rigningu og roki nið- ur í miðbæ. Það var að vísu myrkur og maður sá lítið H r -\.C i -3>í|< JMmm TSKi, MÆm' ‘ÍB'Mií ’-fÍ' „Maður skríður ekki yfirjarðsprengjubelti með ferðatösku" nema dropana á rúðunni. Eftir flugið var maður hálfkvíðinn en glaður að maður yrði að minnsta kosti ekki skotinn eða myndi ekki stígaájarðsprengju. Enþettabless- aðist vel að mínu mati." Mikael kom einn hingað til lands, móðir hans og systir urðu eftir í Ungverjalandi en faðir hans var látinn þegar Mikael flúði. „Syst- ir mín er enn á lífi en móðir mín er löngu dáin. Ég missti föður minn 1944 og ég var í raun aleinn í heim- inum. Allavega svona til að byrja með, áður en ég eignaðist góða vini, svo ég tali nú ekki um yndis- lega konu." Mikael segir að Reykja- vík hafi breyst mikið frá því þegar hann kom hingað. „Við erum að tala um 52 ár. Reykjavík var mjög vinalegur bær og það var hægt að fara að heiman með opnar dyr og opinn glugga. Ekkert læst. Það voru engir glæpamenn eða þjófar eða neitt. Það er því miður ekki svoleiðis í dag." Erfið spurning Eftir að Mikael aðlag- aðist íslensku þjóðfélagi og fékk íslenskan ríkis- borgararétt hefur hann oft í gegnum tíðina ver- ið spurður hvort hann telji sig íslending eða Ungverja. „Þetta er dá- lítið erfið spurning. Það er ekki hægt að svara henni já eða nei. Ég er fæddur Ungverji og mun deyja sem slíkur. En í millitíðinni mun ég reyna að vera eins góður íslendingur og ég get."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.