Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2008, Side 23
22 FÖSTUDAGUR 30. MA( 2008 Umræöa DV ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaöifi-Vísir útgáfufélag ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, iontrausti@d».ls og ReynirTraustason, rt@d».ls FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson, janus@d».ís FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@d».ls AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason, asi@birtingur.is DREIFINGARSTJÓRI: Jóhannes Bachmann, joib@birtingur.is DV A NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSlMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 70 40. Umbrot: DV, Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins á stafraenu formi og (gagnabönkum án endurgjalds. Oll viötöl blaðsins eru hljóðrituö. SA\I)IvOK\ ■ Björn Bjarnason dóms- málaráðherra gerir hiklaust út á kommagrýluna í málsvörn sinni fyrir hönd þeirra sem létu hlera síma vinstri- manna um og eftir mið- bik seinustu aldar. Ráð- herrann er ekki á þeim buxunum að biðj- ast afsökunar á því sem flestir telja vera siðleysi stjórnvalda. Björn hefur gjarnan átt skjól hjá fréttastofu Sjónvarpsins sem Össur Skarphéðinsson iðnað- arráðherra kallar bláskjá. En nú bregður svo við að ráðherrann hundskammar höfuðvígið fyr- ir að ættfæra ekki fórnarlömb hlerananna. ■ Þingmennirnir Helgi Hjörv- ar, Samfylkingu, og Álíheið- ur Ingadóttir, VG, fara mest fyrir brjóst dómsmálaráðherr- ans sem kveinar undan atlögu þeirra í þinginu þegar hlerana- málið var rætt þar. Björn rétt- lætir hleran- ir á Inga R. Helgasyni heitnum, föður Álf- heiðar, með því að hann hafi á sínum tíma verið „innsti koppur í búri kommúnista og sósíalista á íslandi og kallaður „gullkistuvörður" þeirra". Ljóst er að dómsmálaráðherrann hefur tekið að sér að styðja þá aðferðafræði í stjórnmálum að það megi hlera andstæðinga svo þeir nái ekki völdum með óeðlilegum hætti. ■ Grírnur Atlason, fyrrver- andi bæjarstjóri í Bolungarvík, situr ekki auðum höndum þótt hann hafi verið sviptur emb- ætti í bænum. Hann og Lýður Árnason, læknir og listamaður, halda úti hljómsveitinni Grjót- hrun í Hólshreppi sem gefur út sína fyrstu plötu í dag. Til að fagna því efndu þeir til tónleika á þeim stórhættulega stað, Ós- hlíðinni. Heppnir vegfarendur fengu plötu sveitarinnar að gjöf. ■ Lýður Árnason og kona hans, íris Sveinsdóttlr lækn- ir, eignuðust á dögunum sitt þriðja barn, dreng, en þau eiga fyrirtvær stúlkur. Fæðinguna bar upp á verkalýðs- daginn, 1. maí. Ungi læknasonurinn hefur enn ekki verið skírður en í Bolungar- vík eru gárungarnir með það á hreinu að einungis komi eitt nafn til greina í ijósi fæðing- ardagsins og hann fái nafnið Verkalýður Lýðsson. Lýður, sem er alkunnur gleðigjafi, tekur ekki fyrir að sú verði raunin. LEIÐARI Þriú hundruð verkakonur REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. Þi’í midur er luegt ad likja þessu við það að skipstjóri á þrtelaskipi siglir milli skers og báru. Það tekur Sigurð Einarsson, æðsta stjómanda Kaupþings, tvo mánuði að vinna sér inn ævitekjur íslensks verkamanns. Árið 2006 fékk hann sömu laun og 321 verkakona í fullu starfi. ís- land er ekki lengur iand sem getur státað af jöfnuði. í þessu gaf Davíð Oddsson tóninn þegar hann tók 530 þúsund krón- ur sínar úr Kaupþingi við kaupréttarsamninga Sigurðar Einarssonar og Hreiðars Más Sigurðssonar síðla árs 2003. Gagnrýnt var að bankastjór- amir myndu græða hundmð miiljóna við samningana, auk þess sem þeir væru tryggðir gegn tapi. Kaupréttarsamningamir áttu að gera þeim kleift að fá sex milljónir hluta á genginu 156 þegar það stóð í 210. Nú stendur gengið í tæplega átta hundmð. Þeir hefðu verið búnir að græða um Qóra milljarða króna á fjómm ámm, ef þeir hefðu fengið samning- inn. Rökin fyrir slíkum samningi vom þau að bankarnir þyrftu að halda í hæfileikamenn í samkeppni við aðra vinnuveitendur, þótt ekki væri Ijóst hvar viðlíka eftir- spum væri eftir íslenskum bankastjórum. Sömu rök voru notuð þegar laun seðlabankastjóra voru hækkuð verulega árið 2005 í aðdragandanum að komu Davíðs í bankann. Hvaða dæmi eru um að erlendir bankar hafi söls- að undir sig íslenska bankastjóra með gríðarlegum gylliboðum? Það eru helst íslensku bankarnir sem yf- irbjóða aðra á erlendum markaði. Þeir eru sumpart leiðandi í hækkun ofurlauna í Vestur-Evrópu. Ójöfnuðurinn kemur frá íslandi. Á yfirstandandi valdatíð Sjálfstæðisflokksins hefúr fyrirmynd ís- lensks samfélags fremur verið Bandaríkin heldur en Norðurlöndin. Ójöfnuður hefur snaraukist. Sama þróun hefur verið í Bandaríkjunum frá þvi Reagan og Repúblikanaflokkurinn tóku við valdataumunum. jírið 2005 jukust tekjur hins 1% ríkustu Bandaríkjamanna um 14% að raunvirði, en tekjur 90% landsmanna lækkuðu. Frá 1979 til 2005 jukust tekjur fyrmefnda hópsins um 176% en þess síðarnefnda aðeins um 6%. Það er ókostur að þeir sem stjóma fyrirtækjunum sem ráða öllu um afdrif okkar lands lifi ekki í sama raunveruleika og íbúar landsins. Þeir em vellauðugir og tryggðir fyrir áhættu, en þorri fólksins er það ekki. Því miður er hægt að líkja þessu við það að skipstjóri á þrælasldpi siglir -) j ) j milli skers og bám. Hann getur stokkið í björgunarbát- ÍLlXlJJLÍIí. inn allt um þrýtur, en þrælamir eru hlekkjaðir í lest- inni og komast hvergi. Flestir fslendingar leggja ailt sitt undir hér á landi. Auðmenn geta hins vegar dreift áhætt- unni og eiga útgönguleið. f niðursveiflu krónunnar náðu bankarnir til dæmis að græða stórfé á gengishagnaði á meðan íslenskur almenningur hrapaði með krónunni. Við viljum ekki koma í veg fyrir að menn geti grætt. Við viljum bara ekki að moldríkir menn sem tryggðir em gegn áhættu spili með sparifé okkar og steypi okkur í glötun. Einfaldasta leiðin er evra og Evrópusambandið. LJ0TIR K0MMAR SVARTHÖFÐI Skiiningsleysi ríkir á með- al vinstrimanna um þá illu nauðsyn að hlera síma þeirra sem tengdust hinum grimmu öflum kommúnista í austri. Allir vita að kommarnir stefndu að heimsyfir- ráðum á umræddum tíma og þess vegna var eins gott að standa í lapp- irnar og hafa skýra yf- irsýn yfir það hvað leikarar á borð við Arnar Jónsson og Þórhildi Þor- leifsdóttur voru að tala og hugsa. Þetta vissi Bjarni heitinn Benedikts- son, einn fremsti ráðamaður þjóðarinnar. Dómar- ar héraðsdóms gerðu sér líka grein fyrir þeirri hættu sem steðjaði að ís- lendingum úr austrinu þar sem fólk var kúgað undir alræði öreiganna. Hleranir voru því eðilegar og sjálf- sagðar og það kæmi Svarthöfða ekki á óvart þótt á daginn komi að okkur hafi verið forðað frá byltingu og þvf að verða kommúnistaríki. Svarthöfði gerir sér fulla grein fyrir því að fsland þarf á bandamönnum að halda. Sú var tíðin að stór hluti þjóðarinn- ar trúði á þriðja ríki Adolfs Hitler. Þýskir njósnarar fóru um fsland og njósnuðu um óvini Þýskalands. Það var á þeim tíma að það þurfti að forða okkur frá því að lenda undir hæl Breta og Bandaríkjamanna, alræmdra heimsveldissinna. Svo hailaði undan fæti hjá Þjóðverjum og við uppgötvuðum að þeir voru hinir verstu böðlar. Allir þeir sem studdu þau illmenni hafa nú séð að sér og svarið af sér þá hörmung. Svo kom Bretinn, rjóður, ofsalega góður, eins og segir í dægurlagatextanum. Þá snerumst við á band með því ágæta heimsveldi. En það var ekki fyrr en Kaninn kom að við áttuð- um okkur á því hverjir voru okkar mestu og bestu bandamenn. En það skildu ekki allir að Kan- innvarmálið. Örfáar listaspír- ur og ritstjórar með vinstri- villu bjuggu yfir skrýtnum og þjóðhættuleg- um skoðunum um að við ættum ekki að elska Kan- ann. Auðvitað varð að fylgjast með því hvort þetta fólk væri að undir- búa byltingu í landinu og þess vegna var hlerað dag og nótt. Að vísu var bandarískur her á íslandi og því erf- itt fyrir Rússana að koma inn í land- ið. En allur er varinn góður. * Islendingar hafa allar götur síð- an lifað friðsælu og gefandi h'fi í skjóh Kanans sem allir vita jú að rekur heimsvaldastefnu sína af mannúð. Einhver kvittur var um fjöldamorð í Víetnam en það var orðum aukið og í versta falli þannig að einstakir bandarískir hermenn höfðu misst stjórn á sér í því skiln- ingsleysi sem ríkti í því landi á því að þeir voru að bjarga þjóðinni en ekld farga. í rúmlega 50 ár hefur fsland notið góðs af vináttunni við Bandaríkjamenn. Þegar ákveðið var að ráðast inn í frak vegna þess að Saddam Hussein réð yfir gjöreyð- ingarvopnum og gat fargað stórum hluta heimsbyggðarinnar skrifuðum við okkur umsvifalaust á lista hinna viljugu þjóða og staðfestum þannig aðild okkar að stríðinu. Það tók Hall- dór Ásgrímsson og Davíð Oddsson örskotsstund að ákveða undirskrift- ina og fullkomlega óþarft var að hafa samráð við vitleysingana í utanríkis- nefnd. Þetta var nú það minnsta sem við gátum gert fyrir áratugavernd. Meirihluti íslensku þjóðarinnar vissi sem var að Bandaríkjamenn höfðu gildar ástæður til að fara inn í landið. Niðurrifsmenn hafa haldið því fram að olíuhagsmunir hafi ráðið ákvörð- un um innrás en ekki áhyggjur af heimsfriði. Það er auðvitað kjaftæði. Það varð Halldóri utanríkisráð- herra gleðiefniþegar íslenskir herUðar í frak fundu sinneps- gas. Síðar kom á daginn að þetta var eitthvað allt annað en það er önnur saga. í framhaldi þess lokaði Kaninn herstöðinni á íslandi og við erum nú varnarlaus. Víð fslendingar munum halda áffarn að velja okkur heims- veldi til að fá skjól frá nöprum vindum illra afla. Þessa dagana er vonandi verið að hlera þá sem dást að Pútín og jafnvel þá sem vilja allt fýrir Bush gera. Svarthöfði treystir því að í dómsmálaráðuneytinu séu menn ennþá á tánum og dómarar hafi til þess vit að samþykkja njósnir um þá sem líklegir eru til að svíkja okkur í hendur óvina lýðræðisins. DÓMSTÓLL GÖTUNNAR EF ÞÚ FENGIR 500 MILLJARÐA, í HVAÐ MYNDIR ÞÚ EYÐA PENINGUNUM? „Ég myndi skila þeim aftur því ég þigg ekki þeninga frá ókunnugum." Fríða Björnsdóttir, 20 ára afgreiðsludama. „Ég myndi kaupa mérglænýjan Hummer og svo myndi ég kauþa ný dekk og krómfelgur undir bílinn sem ég á núna." Claudia Sigurbjörnsdóttir, 36 ára aðstoðarverslunarstjóri Samkaups Úrvals á Selfossi „Ég myndi kaupa mér KTM-mótorhjól því ég hef mikinn áhuga á mótorhjól- um og langar í þannig mótorhjól." Einar Knútsson, 12 ára grunnskólanemi „ Því miður get ég ekki svarað því. Ég hef bara ekkert spáð (þetta áður." Magnús Friðfinnsson, 58 ára rafvirki DV Umræöa FÖSTUDAGUR 30. MAl 2008 23 MYNDIN Ungviði á Alþingi Alþingi fer brátt í sumarfrí en áður tóku þingmenn þó á móti leikskólabörnum sem voru áhugasöm um störf ráðamanna þjóðarinnar. DV-MYNDSigurður _ Geir H. Haarde forsætisráð herra fær minus fyrir að fresta afgreiðslu á bæði eftirlaunafrumvarpinu og frumvarpi um bætur til handa vistmönnum í Breiðavik. SPURNINGIN ER SKJÁLFTI f ÞÉR? „Já, það er smá skjálfti I mér, en ég vonasttil að komast heill heim," segir Ragnar.skjálfti" Stefánsson, prófessor við Háskólann á Akureyri. Sterkur jarðskjálfti reið yfir Suðurland I gær. Um moldvörpurog síma Nú er sumarið rétt að koma og sól- in mun skína á mig og þig og ríksis- stjórnina sem er á leið í verðskuldaða fríið sitt þar sem hún mun huga frek- ar að eftirlaununum sínum um leið og hún safnar orku fyrir næsta þing; megi henni gefast að gera það og líka hitt að greina bemr á milli stórra mála og lítilla og alls þess sem bíður henn- ar að betrumbæta þegar hún kemur aftur með uppbrettar ermar og tilbú- in í slaginn. Hvert einasta sumar gefur íýrir- heit og að gefnu tilefni minnist mað- ur löngu liðins tíma á íslandi - sem í þá daga var eiginlega ekki frægt íyr- ir neitt nema fom skinnhandrit sem forfeðumir lögðu sér til munns vegna grimmilegs hungurs sem við þekkj- um, sem betur fer, ekki lengur af eig- in raun. En umrædd minning er alls ekki tengd því hvað íslendingar hafa étið í harðindum og þaðan af síður hvað þeir hafa skrifað á skinn. Hún tengist sveitinni, þangað sem krakkar á öll- um aldri vom sendir sumarlangt. Ég var einn þeirra og ég var heppin með pláss, fólídð á bænum var gott og ég lærði að taka til hendinni og púlvinna einsog hestur. Þetta var í lok sjöimda áratugarins og í frítímanum hlust- uðum við á útvarp, lásum bækur og spjölluðum um daginn og veginn og svo auðvitað um náungann. Sitt sýndist hverjum þá einsog á blogg- inu núna, en sá reginmunur var á að menn töluðu saman augliti til aug- litis en vom ekki þær gungur, einsog margir bloggverjar, að þora ekki að segja skoðun sína í björtu og undir nafhi. Það var sem sé nóg við að vera alla daga en ég man ekki eftír mörgu VIGDÍS GRÍMSDÖTTIR rithöfundur skrifar „En vitimenn, ásama tíma og við í sveitinni lágum frjáls á línunni, vitandi hvert um annars forvitni, athafnaði lögregla lands- inssig leynilega." sem vakti jafnmikla eftirvæntíngu og spennu og hinn símurrandi svartí kassi sem hékk uppi á vegg á hentug- asta stað í hverjum einasta bæ. Þettavarsíminn. Minn bær átti hringinguna tvær stuttar og eina langa og þegar hún heyrðist var sko hlaupið tíl og svar- að. En maður hljóp oftar en manni bar vegna þess að í hvert skipti sem hringt var á hina bæina, sem hver um sig hafði auðvitað sína sérhringingu líka, heyrðist glamrið á öllum öðrum bæjum sveitarinnar og fleiri stukku á fætur til að grípa tólið en þeir sem áttu erindi. Þess vegna vissi maður um allt sem gerðist á öllum bæjum en það vissu hinir líka því þeir gerðu nákvæmlega það sama; hlerunin var í raun heldur aumleg, sífelldir skruðn- ingar og óviðkomandi andardráttur á línunni, en hún var viðurkennd og glæpinn áttu allir sameiginlegan. En viti menn, á sama tíma og við í sveitinni lágum ffjáls á línunni, vit- andi hvert um annars forvimi, athafri- aði lögregla landsins sig leynilega, hleraði andstæðinga stjórnvalda til þess að geta haft hemil á þeim og hik- aði ekki við að brjóta á þeim mann- réttindi með fullum stuðningi dóms- málaráðuneytisins. Svona moldvörpugangur hlýtur að kalla á spumingar um hversu lengi hleranir í svipuðum leynistíl hafa við- gengist og hvort þeim hafi kannski aldrei verið að fullu hætt. Þarna er enn einn efinn og menn ættu að kveða hann í kútinn strax eftir sumarfrí. Sandkassinn EINKENNf LEGUR finnst mér grátur landsmanna um kreppuna. Við fslendingar eru vellauðug þjóð þrátt fyrir að við höfum stundum haft meira lausafé á milli hand- anna en akkúrat á þessum síð- ustu mánuðum. Mér finnst þess vegna hálfhallærislegt að heyra sumar „kreppusögur" samlanda minna. „Ég varð að hætta við aðra utanlandsferðina mína í sumar. Þetta er bara hræðilegt," heyrði ég ljóshærða, þybbna skólastelpu um tvítugt segja við vinkonu sína á frekar fínum veit- ingastað í vikunni. ÉG SATT BEST að segja dauðvor- kenndi henni. Ekki vegna þess að hún kemst ekki út, heldur vegna þess að henni fannst hún líða skort vegna þessa. Hún var alveg eyðilögð. Kunningi minn sagðist um dag- inn hafa hætt við að kaupa sér heimabíó og sagðist ennfremur í auknum mæli stunda það að versla í Bón- us, þegar hann gerði stórinnkaup fyrir heimilið. Svo mikil væri kreppan orðin. AFIMINN er að verða níræður. Hann yrði líklega ekki eldri ef hann heyrði svona væl. Við sem fædd erum eftir miðja síðustu öld vitum ekki hvað kreppa er. Kreppa er ástand þar sem fólk virkilega líður skort. Það er ástand þar sem brauð- hleifur kostar fullar hjólbör- ur af seðlum og allir bílar standa kyrrstæðir vegna elds- neytísverðs. Þegar fýrirtæki lam- ast og fólk getur ekki séð fyrir sér og sínum. Þá er komin kreppa. uNUS VISSULEGAeru ekki allir fslend- ingar ríkir. Eins og víðast hvar annars staðar er gæðum heims- ins misskipt. Stækkandi hópur fslendinga nær ekki endum sam- an. Sumir af ástæðum sem þeir geta lítið við gert, aðrir vegna þess að þeir eyða um efni fram. Mér finnst allt tal um að núna sé kreppa, gengisfella það ágæta hugtak. Spyrjið bara afa ykkur og ömmur. Vi3 g |efu ÞÚ GETUR UNNIÐ! m hundrað 1D.DDD l(P. inneignir hjá 1 Fylgstu med DV og dv.is á mánudaginn. Ps. því oftar sem þú tekur þátt. því meiri möguleika áttu á a3 vinna 3ónus í júní Ej *2a , i IB is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.