Fréttablaðið - 12.04.2016, Síða 6
Fitul’til og
pr—teinr’k . . .
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Heimsækja Hírósíma
Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins og utanríkisráðherrar Kanada, Bretlands, Ítalíu, Frakklands og Þýskalands, ásamt John Kerry, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, lögðu í gær blómsveig að minnisvarða um þá sem fórust þegar kjarnorkusprengju var varpað á japönsku borgina
Hírósíma í seinni heimsstyrjöld. Kerry er æðsti bandaríski embættismaðurinn sem heimsótt hefur borgina. Nordicphotos/AFp
Bretland David Cameron, forsætis-
ráðherra Bretlands, brást við upp-
ljóstrunum úr Panama-skjölunum
í gær með því að boða strangari
reglur um skattsvik.
Jafnframt stóð hann fast á því að
það geti ekki verið glæpur að eign-
ast auðæfi: „Við eigum að verja rétt
allra breskra ríkisborgara til þess
að græða peninga,“ sagði hann á
þingi, þar sem hann svaraði gagn-
rýni vegna tengsla við aflandsfyrir-
tæki föður síns.
Hann segist sjálfur hafa selt öll
hlutabréf sín árið 2010, þegar hann
tók við embætti forsætisráðherra.
Ástæðan hafi verið sú að hann hafi
viljað tryggja að enginn hagsmuna-
árekstur gæti orðið: „Einfaldasta og
skýrasta leiðin til að gera það var að
selja öll hlutabréfin mín.“
Cameron birti um helgina yfir-
litstölur úr skattframtali sínu.
Hann sagði þetta nauðsynlegt
en fordæmalaust. Hins vegar eigi
ekki að vera nauðsynlegt að allir
þingmenn fylgi þessu fordæmi,
en sterk rök séu fyrir því að bæði
forsætisráðherra og fjármálaráð-
herra, ásamt leiðtoga stjórnarand-
stöðunnar og fjármálaráðherra
skuggastjórnar stjórnarandstöð-
unnar eigi að birta opinberlega
upplýsingar úr skattframtölum
sínum.
Í gær kom í ljós að Jeremy
Corbyn, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, hafði skilað skattskýrslu
sinni viku eftir að skilafrestur rann
út þann 31. janúar síðastliðinn, og
þurfti að greiða hundrað pund í
sekt fyrir vikið.
Corbyn birti svo afrit af skatt-
skýrslu sinni í gær, meðan Cameron
var í ræðustól.
David Osborne, fjármálaráðherra
í ríkisstjórn Camerons, birti einnig
tölur úr skattframtali sínu í gær.
Á morgun koma embættismenn
frá nærri fimmtíu löndum saman
í París á vegum OECD til að ræða
hvernig bregðast eigi við uppljóstr-
unum úr Panama-skjölunum.
Ætlunin er að efla samstarf gegn
skattsvikum og auðvelda skipti á
upplýsingum.
gudsteinn@frettabladid.is
Ráðherra segir ekkert rangt við að græða
Cameron bregst við Panama-skjölunum með því að boða strangari viðurlög við skattsvikum. Osborne og Corbyn hafa einnig birt tölur
úr skattframtölum sínum. Á morgun koma embættismenn frá 50 löndum saman til að ræða viðbrögð við skjölunum og samstarf.
david cameron, forsætisráðherra Bretlands, heldur til þings í gær þar sem hann
brást við gagnrýni. Nordicphotos/AFp
kosningar Þrátt fyrir að dágóður
hópur hafi að undanförnu kynnt
áform um að bjóða sig fram til em-
bættis forseta Íslands hefur enn
engin tilkynning um framboð borist
til innanríkisráðuneytisins.
Framboðsfresturinn rennur út á
miðnætti föstudaginn 20. maí 2016.
Þá verða fimm vikur til kjördags
sem er laugardagurinn 25. júní.
„Við gerum varla ráð fyrir að
formlegar tilkynningar um fram-
boð berist fyrr en í lok þessa frests.
Enginn hefur tilkynnt hingað til um
framboð eða tilkynnt um tilskilin
gögn,“ segir í svari frá Jóhannesi
Tómassyni, upplýsingafulltrúa
innanríkisráðuneytisins.
Eins og fram hefur komið þurfa
forsetaframbjóðendur að skila
meðmælum með framboði sínu
frá minnst 1.500 kosningabærum
mönnum.
„Framboðum til forsetakjörs skal
skila til innanríkisráðuneytisins,
ásamt samþykki forsetaefnis, nægi-
legri tölu meðmælenda og vott-
orðum yfirkjörstjórna um að með-
mælendur séu kosningabærir,“ segir
um forsetakosningarnar á vefnum
kosning.is.
Enn fremur segir að gert sé ráð
fyrir því að yfirkjörstjórnir auglýsi
í byrjun maí hvar og hvenær þær
taki við meðmælendalistum til stað-
festingar á kosningabærni meðmæl-
enda. – gar
Enginn enn í
forsetaframboði
Framboðsfrestur rennur
út á miðnætti föstudaginn
20. maí 2016.
1 2 . a p r í l 2 0 1 6 Þ r i Ð J U d a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð
1
2
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
0
7
-4
3
B
8
1
9
0
7
-4
2
7
C
1
9
0
7
-4
1
4
0
1
9
0
7
-4
0
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
3
2
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K