Fréttablaðið - 12.04.2016, Page 8
Aðalfundur
Geðverndarfélags Íslands
Aðalfundur Geðverndarfélags Íslands verður haldinn
fimmtudaginn 14. apríl 2016 að Hátúni 10, jarðhæð.
Fundurinn hefst kl. 17.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
ÁRSFUNDUR LANDSVIRKJUNAR 2016
Hilton Reykjavík Nordica
Fimmtudaginn 14. apríl kl. 14
• Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra
Ávarp
• Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður Landsvirkjunar
Ávarp
• Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar
Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar
Auðlind fylgir ábyrgð
• Edda Hermannsdóttir stjórnar umræðum að fundi loknum
Auðlind
fylgir ábyrgð
Ársfundur Landsvirkjunar verður haldinn á Hilton Reykjavík
Nordica fimmtudaginn 14. apríl kl. 14-16. Þar kynnum við
fjárhag og framtíðaráætlanir fyrirtækisins og hvetjum
til opinnar umræðu um þau tækifæri og áskoranir sem
framundan eru. Bein útsending verður frá fundinum á
landsvirkjun.is.
Allir velkomnir
Skráning á www.landsvirkjun.is
Kjaramál Næsti fundur í kjara-
deilu flugumferðarstjóra við
Isavia og Samtök atvinnulífsins fer
fram í fyrramálið hjá ríkissáttasemj-
ara. Nokkur röskun hefur orðið á
innanlandsflugi frá því að yfirvinnu-
bann flugumferðarstjóra tók gildi á
miðvikudag í síðustu viku og smá-
vægileg röskun á millilandaflugi.
Sigurður Guðnason, upplýsinga-
fulltrúi Isavia, sem er opinbert
hlutafélag sem fer með rekstur flug-
valla hér á landi, segir erfitt að segja
til um hversu mikið flug kunni að
raskast vegna yfirvinnubannsins,
það ráðist af mönnun á vöktum.
Hægt hafi verið að hliðra þannig
til í Keflavík að lítil áhrif hafi orðið
Flýta flugi til að forðast Keflavík
Reykjavíkurflugvelli var lokað klukkan átta í gærkvöldi vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra. Tveimur síðustu ferðum í innan-
landsfluginu var flýtt. Á föstudagskvöld þurfti að lenda þremur flugvélum á Keflavíkurflugvelli og ferja farþega til Reykjavíkur.
önnur en lítilsháttar seinkun á
nokkrum vélum.
Áhrifin hafa þó verið nokkur á
Reykjavíkurflugvelli þar sem einn
flugumferðarstjóri er á vakt eftir að
dagvinnu lýkur. Frá klukkan átta á
föstudagskvöld var flugvöllurinn
lokaður öðru flugi en neyðar-
og sjúkraflugi og vélum í almennu
flugi sem lenda áttu eftir þann tíma
var beint til Keflavíkur.
Hið sama átti við í gærkvöldi, en
Árni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags Íslands, segir brott-
för á síðustu ferðum dagsins hafa
verið flýtt um klukkustund eða svo
á tveimur flugleiðum, frá Akureyri
og frá Egilsstöðum.
„Þær ná þá til Reykjavíkur áður
en við lokum klukkan átta,“ segir
hann og telur ekki ólíklegt að ein-
hver röskun verði á flugi í kvöld líka.
Árni segir nokkurn kostnað hafa
fylgt því að þurfa að lenda vélum í
Keflavík á föstudaginn, en ferja hafi
þurft bæði fólk og vélar til Reykja-
víkur. Flugi sé hins vegar líka flýtt
núna til að draga úr óþægindum
fyrir farþega. „Fólk er á leiðinni til
Reykjavíkur og þetta lengir þá ferða-
lagið.“ olikr@frettabladid.is
Með fimmta lakasta kaupmáttinn
Kjaraviðræður flugumferðarstjóra hófust í október á síðasta ári og stefnt var
að því að skrifa undir áður en samningar rynnu út í febrúar, að sögn Sigurjóns
Jónasson, formanns Félags íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF). Þegar þá hafði
ekki náðst saman og ekki sást til lands í deilunni hafi henni verið vísað til
ríkissáttasemjara. Þar hafi verið fundað fjórum sinnum. „Og
þegar hvorki gekk né rak með viðræðurnar þá boðuðum
við yfirvinnubann, en það samþykktu tæplega 95 pró-
sent félagsmanna sem kusu,“ segir hann, en um sé að
ræða vægasta vopnið sem hægt sé að grípa til.
Sigurjón segir flugumferðarstjóra standa frammi fyrir
miklum landflótta í stéttinni og bæta þurfi kjör þannig að
fleiri fáist til að sinna starfanum á Íslandi. Hér hafi flugum-
ferð aukist um 80 prósent á meðan lítil fjölgun hafi orðið í hópi flugum-
ferðarstjóra. „Við erum fastir í klóm yfirvinnu og sjáum varla fjölskylduna
yfir sumarið.“ Félagið hafi látið gera samanburð í 24 löndum sem sýni að
íslenskir flugumferðarstjórar séu með fimmta lakasta kaupmáttinn.
Sigurjón segir flugumferðarstjóra binda vonir við að ekki þurfi að grípa
til frekari aðgerða, en eftir eigi að ræða næstu skref gangi samningaviðræð-
urnar treglega sem framundan eru. Töluvert beri þó enn í milli í deilunni.
✿ Flugumferð og fjöldi flugumferðarstjóra 2009–2015
90%
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
-10% 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015
n Flugumferð í Keflavík
n Flugumferð á íslenska flugumferðarsvæðinu
n Fjöldi flugumferðarstjóra
Heimild: FÍF
Árni Gunnarsson,
framkvæmdastjóri
Flugfélags Íslands
1 2 . a p r í l 2 0 1 6 Þ r I Ð j U D a G U r8 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a Ð I Ð
1
2
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
0
7
-2
F
F
8
1
9
0
7
-2
E
B
C
1
9
0
7
-2
D
8
0
1
9
0
7
-2
C
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K