Fréttablaðið - 12.04.2016, Page 13
Meðal viðbragða Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, við
ásökunum um vanskráningu eignar-
haldsfélags í hagsmunaskrá þing-
manna vorið 2009 er sú afdráttar-
lausa fullyrðing hans að reglur um
hagsmunaskráningu þingmanna
nái ekki til eignarhaldsfélaga. Bjarni
leggur þann skilning í orðalagið að
skrá skuli „[h]eiti félags, sparisjóðs
eða sjálfseignarstofnunar í atvinnu-
rekstri, sem alþingismaður á hlut í
og fer yfir [tiltekin viðmið]“ að þess
sé ekki krafist að þingmenn skrái
félög sem ekki eru í atvinnurekstri.
Þessi málsvörn Bjarna gefur tilefni
til nokkurra athugasemda.
1. Ef litið er yfir sambærilegar
reglur um hagsmunaskráningu
þingmanna í öðrum ríkjum – s.s.
í Danmörku, Noregi, Bandaríkj-
unum, Bretlandi og Ástralíu –
fæst ekki betur séð en að þær nái
allar skýrt til eignarhaldsfélaga.
2. Þótt greina megi á um nákvæmt
vægi slíks samanburðar er þó
ljóst að hann skiptir sérstöku
máli í tilviki dönsku reglnanna,
en í upplýsingum á vef Alþingis
kemur fram að íslensku regl-
urnar séu samdar með hliðsjón
af þeim dönsku (en einnig var
horft til þeirra norsku).
3. Jafnvel þótt samanburður
við reglur annarra ríkja væri
settur til hliðar, að dönsku og
norsku reglunum meðtöldum,
þá stendur eftir að orðalagið
sem málsvörn Bjarna byggir
á er í besta falli tvírætt – en ef
raunverulegur vafi leikur á því
hvort orðalagið nái til eignar-
haldsfélaga virðist það eðlileg
krafa til þingmanna að þeir hafi
varann á og skrái slík félög. Þótt
túlkun reglnanna sé í einhverj-
um skilningi „á ábyrgð þing-
manna sjálfra“, þá bera þeir þá
ábyrgð gagnvart almenningi en
ekki sjálfum sér. Auk þess kemur
það skýrt fram í reglunum að
skrifstofa Alþingis geti veitt
upplýsingar og leiðbeiningar um
framkvæmd skráningar.
4. Þá er eðlilegt að gefa gaum að til-
tekinni skýringarreglu sem fram
kemur í athugasemdum frum-
varps að stjórnsýslulögum, þótt
slík lög snúi að framkvæmdar-
valdi af ákveðnum toga en ekki
löggjafarvaldi. Reglan er þess
efnis að í vafatilvikum um það
hvað teljist stjórnvaldsákvörðun
beri að álykta „að lögin gildi
fremur en að þau gildi ekki“ á
þeim grundvelli að þegar um
er að ræða samskipti stjórn-
valda og borgaranna sé rétt að
skýra vafatilvik „til hagsbóta
fyrir borgarann“ (sjá t.d. grein
Róberts Spanó um stjórnsýslu-
rétt í greinasafninu Um lög og
rétt, bls. 123). Það er við hæfi að
svipuð sjónarmið ráði för við
túlkun tvíræðs orðalags í reglum
um hagsmunaskráningu þing-
manna – reglurnar eru settar til
þess að gæta hagsmuna borgar-
anna gagnvart þeim sem fara
með löggjafarvald. Auk þess eru
slíkar reglur – rétt eins og stjórn-
sýslulögin – lágmarksreglur um
hátterni valdhafa í samskiptum
þeirra við borgarana.
Það virðist því skýrt að það er á
ábyrgð Bjarna – vilji hann halda
þessari málsvörn til streitu – að sýna
fram á það að einhverra hluta vegna
séu afgerandi líkur á því að ætlunin
með orðalagi íslensku reglnanna
hafi verið að miðla þeim upp-
lýsingum til þingmanna að eignar-
haldsfélög séu undanskilin regl-
unum, ólíkt reglum annarra ríkja
sem tekið hafa upp sambærilegar
reglur. Ég hef ekki séð rök þess efnis
í umræðunni og á afskaplega erfitt
með að ímynda mér hvers konar
gögn myndu gefa það til kynna
yfirhöfuð og hvað þá á nægilega
afgerandi hátt til þess að „trompa”
sjónarmiðin hér að ofan.
Í ljósi þessara athugasemda þykir
mér einnig tilefni til þess að leggja
það mat á framsetningu Bjarna á
þessari tilteknu málsvörn í Kastljósi
RÚV 5. apríl 2016, að hann hafi, sem
Um málsvörn Bjarna varðandi túlkun reglna
um hagsmunaskráningu þingmanna
Jafnvel þótt samanburður
við reglur annarra ríkja væri
settur til hliðar, að dönsku
og norsku reglunum með-
töldum, þá stendur eftir að
orðalagið sem málsvörn
Bjarna byggir á er í besta falli
tvírætt.
Hrafn Ásgeirsson
doktor í
réttarheimspeki
þingmaður og ráðherra, talað niður
til fréttamanns RÚV, og með því til
almennings, þegar hann rökstuddi
mál sitt með eftirfarandi orðum:
„Reglur um hagsmunaskráningu
tala um félög sem eru í atvinnu-
rekstri. Það er þannig, þú skalt bara
lesa þér betur til um reglurnar.“ Mér
hefur margsinnis þótt Bjarni sýna
vandaða getu til þess að eiga í sam-
tali við fréttamenn og við almenn-
ing, en þessi orð bera ekki vott um
þá virðingu fyrir reglum Alþingis,
fréttamönnum og almenningi sem
þjóðin á rétt á að kjörnir fulltrúar
sýni, og eru ekki til þess fallin að
skapa það margumrædda traust
sem þingmönnum á Íslandi – utan
stjórnar og innan – virðist bera
saman um að sé meðal brýnustu
verkefna íslenskra stjórnmála.
Volkswagen Cross Polo er með meiri veghæð, stærri felgur og íslenskt leiðsögukerfi sem staðalbúnað.
Þegar þú vilt fara aðeins lengra og sækja í ævintýrin er Volkswagen Cross Polo bíllinn fyrir þig.
www.volkswagen.is
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Cross Polo frá:
3.590.000 kr.
Cross Polo fyrir lengra komna. Og ævintýraþyrsta.
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 1 2 . A p R í L 2 0 1 6
1
2
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
0
7
-5
2
8
8
1
9
0
7
-5
1
4
C
1
9
0
7
-5
0
1
0
1
9
0
7
-4
E
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
3
2
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K