Fréttablaðið - 12.04.2016, Side 32
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Bakþankar
Það liggur alveg ljóst fyrir, að ríkisstjórnarinnar bíða gríðarlega mikilvæg verkefni.
Það liggur líka alveg ljóst fyrir
að þessi ríkisstjórn hefur staðið
sig afskaplega vel í því að auka
ójöfnuð í samfélaginu. Til þess
hefur þurft gustukaverk eins og
að lækka veiðigjöld á útgerðar-
félög svo þjóðin færi nú ekki að
fá réttmætan arð af auðlind sinni,
slá af auðlegðarskatta, fella niður
raforkuskatt af álverum en á sama
tíma að hækka matarskatt og
auka kostnað fyrir þá sem þurfa
á heilbrigðiskerfinu að halda.
Allt hefur þetta aukið á léttlyndi
fjáraflamanna sem geta nú aftur
slett úr klaufum, fengið hlutabréf
í Símanum á sérkjörum, fundið
greiðslukortafyrirtæki í Cocoa
Puffs pakkanum og trygginga-
félög með himinhá iðgjöld geta
fyllt vel í fjárhirslur hluthafa.
Á sama tíma verður erfiðara
fyrir allan almúga að koma yfir sig
þaki og lifa mannsæmandi lífi.
Það liggur líka alveg ljóst fyrir
að ríkisstjórnin er hvergi nærri
hætt á þessari vegferð arðráns og
einkavæðingar.
Það liggur hins vegar ljóst fyrir
að ójöfnuður er ein af megin
meinsemdum heimsins. Meira að
segja The Economist hefur lýst
þessu ástandi sem sjúklegu og
við því verði að bregðast. Sextíu
og tveir ríkustu menn heims eiga
jafn mikið og fátækari helmingur
mannkyns.
Það liggur líka alveg ljóst fyrir
að skattaskjól er svindl sem gerir
þennan ójöfnuð mögulegan. Þar
eigum við okkar fulltrúa.
En aðalatriðið er þetta: allir
þessir rassar eiga að vera víðs
fjarri ráðherrastólunum þegar
ríkisstjórn Íslands tekst á við þau
mikilvægu mál sem fram undan
eru.
Liggur ljóst fyrir
SÓFAR
SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM
ÞÖRFUM
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík
sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
1
2
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
0
7
-2
F
F
8
1
9
0
7
-2
E
B
C
1
9
0
7
-2
D
8
0
1
9
0
7
-2
C
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K