Málfregnir - 01.04.1989, Qupperneq 3

Málfregnir - 01.04.1989, Qupperneq 3
BALDUR JÓNSSON Kvenmannsnafnið Berglind og beyging þess Aldur og upptök Gísli Jónsson, fyrrverandi menntaskóla- kennari á Akureyri, sagði mér nýlega sögu af því hvernig nafnið Berglind hefði orðið til. Kona nokkur hreifst svo af flugkappanum Charles Lindbergh og afrekum hans að hún ákvað að láta son sinn heita Lindberg í höfuðið á honum. En þegar barnið fæddist reyndist það vera stúlka en ekki drengur. Konan víxl- aði þá liðum í nafninu svo að úr varð kvenmannsnafnið Berglind. Enginn skal gerður ábyrgur fyrir þess- ari sögu, en hún er ekki verri en það að hún gæti vel verið sönn eða átt a.m.k. við einhver rök að styðjast. Lindbergh varð heimsfrægur 1927 fyrir að fljúga fyrstur manna í einum áfanga og einn síns liðs yfir Atlantshaf, frá New York til Parísar. Þvílíkur ljómi stóð af nafni hans lengi eftir það að margt er ólíklegra en það hafi haft áhrif á nafngiftir íslend- inga. Guðrún Kvaran orðabókarritstjóri segist ekki sjá nein merki um nafnið Berg- lind fyrir 1930. Eftir skýrslum að dæma kemur það fyrst til sögunnar á árunum 1931-1940, skömmu eftir flugið fræga. Pá eru þrjár stúlkur skírðar þessu nafni. Síðan hefir það sótt á jafnt og þétt og þykir nú eitt ágætasta kvenmannsnafn á íslandi. Sjá bók Þorsteins Þorsteinssonar, Islenzk mannanöfn. Nafngjafir þriggja áratuga 1921-1950. Reykjavík 1961. Bls. 51. Hvað sem líður upphaflegum tengslum við Charles Lindbergh er vel til fundið að mynda kvenmannsnafn úr íslensku orðunum berg og lind og skeyta þau saman, eins og gert hefir verið. Ekki verður annað sagt en Berglind sé hið feg- ursta nafn og góð viðbót við íslenskan mannanafnaforða; honum veitir ekki af svolítilli hressingu. En þessu góða nafni fylgir sá annmarki að mikil óvissa ríkir um beygingu þess. Því er það gert að umræðuefni hér. Beygingaróvissa Beyging íslenskra mannanafna er oft hið mesta vandamál, og ber margt tii þess sem ekki verður reynt að rekja til hlítar í þetta sinn. Ekki er þó svo að skilja að öll íslensk mannanöfn séu vandbeygð, heldur hitt að beyging margra þeirra er á reiki, bæði karlmannsnafna og kven- mannsnafna, og oft er torveit að finna hvað miða skal við þegar reynt er að leiðbeina fólki sem eftir því leitar. Sem dæmi um þetta má nefna ýmis karlmannsnöfn af erlendum uppruna, endingarlaus í nefnifalli. Sum nöfn af þessum toga fylgja fastri reglu, t.d. þau sem enda á sérhljóði + s: Jónas. Niku- lás, Jóhannes, Andrés, Elís, Fiiippus, Magnús o.s.frv. í þágufalli hafa þau endinguna -/, en -ar í eignarfalli. En þau sem enda ekki á sérhljóði + s eru miklu fleiri og fara sínar leiðir. Yfirleitt er allt ljóst um beygingu þeirra nema í þágu- falli. Til dæmis er eignarfallsendingin langoftast -s, en í þágufalli er þrennt til: Sum nöfn hafa alltaf endinguna -/ (Jón, Stefán). Önnur eru jafnan endingarlaus (Benedikt, Benjamín), og enn önnur, og býsna mörg, hafa ýmist endingu eða ekki (Jakob, Konráð). Þessi nöfn setja margan mann í vanda, bæði lærða og leika, því að ekki er auðséð eftir hvaða reglu þessi óregla fer. Meðal kvenmannsnafna eru einnig ýmis 3

x

Málfregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.