Málfregnir - 01.04.1989, Síða 4

Málfregnir - 01.04.1989, Síða 4
vandamál, en sum þeirra eru einmitt af sama toga og í nafninu Berglind. Við skulum því snúa okkur aftur að því. Óvissan í beygingu þess er öll bundin við þolfall og þágufall. Ef litið er til sterkrar beygingar íslenskra kvenkynsorða yfir- leitt ætti þrennt að koma til álita: 1) engin ending (Berglind) 2) endingin -i (Berglindi) 3) endingin -it (Berglindu) Fjórði kosturinn er reyndar sá að þolfall hafi enga endingu, en þágufall endi á -u (sbr. jörð, jörðu; nótt, nóttu o.fl.), en þetta beygingarlag er (orðið) of óreglu- legt til að unnt sé að taka mið af því. Ekki skal fullyrt hvernig algengast er að beygja nafnið Berglind; mér er ekki kunnugt um að það hafi verið rannsak- að. Allir þrír kostirnir, sem nefndir voru. eru til í reynd, en eftir viðbrögðunt fólks að dæma er líklega algengast að hafa endinguna -/. Og nú spyrja menn hvernig réttast sé að beygja þetta nafn. Sérbeyging samsettra nafna Beyging mannanafna fellur ekki alls kostar að beygingarflokkun annarra orða málsins. Þar hefir gætt lítils háttar misræmis allt frá upphafi íslandsbyggð- ar. Það breytir þó engu um það sem sagt var hér á undan um hugsanlegar ending- ar. Margir hugsa sem svo að nafnið Berg- lind sé samsett úr orðunum berg og lind og ætti þá að beygjast eins og orðið lind. Oftast er það líka svo að samsett orð í íslensku beygist eins og síöari liður þess. Til dæmis má taka orðin uppsprettulind og svalalind. Þau beygjast eins og orðið lind, og enginn vafi leikur á um beygingu þess í þolfalli og þágufalli eintölu. Það er endingarlaust í báðum föllum. Ef kven- mannsnafniö lyti sömu lögum ætti það að beygjast: Berglind, Berglind, Berglind, Berglindar. Þannig vilja sumir hafa það. En málið er ekki svona einfalt. Þrátt fyrir þessi Ijósu rök leitar einhver ending á í beygingu þessa nafns í þolfalli og þágufalli. Ástæðan er greinilega sú að samsett kvenmannsnöfn í íslensku fara sínar eigin leiðir í beygingu. Frá fornu fari hafa þau endingu í þolfalli og þágu- falli, hvort sem síðari liðurinn er end- ingarlaus eða ekki. þegar hann er sjálf- stætt orð. Samkvæmt því ætti nafnið Berglind að hafa endingu í þessum föllum, en spurningin er hvort hún á að vera -i eða -u. Það ntál skýrist hér á eftir. Beygingarflokkar kvenmannsnafna Ef litið er yfir allan nafnaforðann er mest um það að kvenmannsnöfn endi á -u í þolfalli og þágufalli. Um nöfn með veika beygingu þarf ekki að spyrja. Þau enda alltaf á -u, hvort sem þau eru samsett eða ekki. Mörg kvenmannsnöfn beygjast veikt. Meðal þeirra er eitthvað af samsetn- ingum (Bergþóra, Hallbera), en meira er um afleiðslur ýmiss konar (Halldóra, Guðfinna; Jónína) og svo auðvitað ein- föld nöfn (Póra, Helga). Ef kvenmannsnafn hefir sterka beyg- ingu, eins og Berglind, endar það í báðum föllum annaðhvort á -u (Por- björgu) eða -i (Asgerði). Annað kemur ekki til greina. Þarna er um tvo stóra nafnaflokka að ræða. Við getum kallað þá Þorbjargarflokk og Ásgerðarflokk. En á þeim er mikilsverður munur. Hann er sá að síðari liður nafna í Þorbjargar- flokki (t,d. björg og rún) hefir enga end- ingu í þolfalli og þágufalli nema í sam- settum kvenmannsnöfnum (Porbjörgu, Guðrúnu). En síðari liður hinna nafn- anna hefir alltaf endingu eins og sam- setta orðið (Gerði eins og Ásgerði) nema nafnið endi á -dís. Úr því að nafnið Berglind hefir sterka beygingu skulum við kynna okkur betur þessa tvo flokka sem kenndir voru við Þorbjörgu og Ásgerði. Innan sterku beygingarinnar eru mis- ntunandi beygingarflokkar, sem hér koma 4

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.