Málfregnir - 01.04.1989, Side 7
Ef litið er til nafnanna Elísabet og
Margrét eru til styttingarnöfn af þeim,
Beta og Gréta. Þau hafa veika beygingu
og enda því á -u í þolfalli og þágufalli.
Vera má að það fæli frá; mönnum þyki
sem Margrétu hljómi eins og aukafall af
' Margréta, sem er ekki til. Eins má vera
að nafnið Lína standi gegn beygingunni
Elínu, styttingarnafnið Rúna hafi orðið
til að bægja frá beygingunni Guðrúnu
o.s.frv. Hins vegar virðast nöfn sem enda
á -laug og -veig fá að vera í friði, þrátt
fyrir gælunöfnin Lauga og Veiga.
Nafnið Svanhvít hefir lýsingarorð að
síðari lið, og er því ekki alls kostar sam-
bærilegt við nöfn úr Þorbjargar- eða Ás-
gerðarflokki. En ég hygg að það hafi áður
fyrr ýmist verið óbeygt eða beygt eins og
Porbjörg, en nú sé oftar sagt Svanhvíti
og eitthvað svipað megi segja um nafnið
Mjallhvít í ævintýrinu. Um þetta skal þó
ekkert fullyrt, því að ég hefi ekki kannað
þetta mál. En ekki er ósennilegt að í
þessum nöfnum hafi það valdið nokkru
að beygingarmyndirnar Svanhvítu og
Mjallhvítu hafi þótt minna óþægilega á
nafnorðið hvíta (t.d. í eggjahvíta).
Á sama hátt gæti verið að kvenmanns-
nafnið Linda ætti einhvern þátt í að
bægja frá beygingarmyndinni Berglindu.
Gísli Jónsson segir mér að hann hafi haft
uppi á fyrstu íslensku konunni sem fékk
nafnið Linda. Hún er fædd 1921. Það
nafn er því aðeins eldra en Berglind.
Lokaorö
Hér á undan hefir verið reynt að finna
rök fyrir því hvernig réttast væri að
beygja nafnið Berglind miðað við ríkj-
andi reglur í málinu.
Þeir sem aðhyllast endingarleysi í þol-
falli og þágufalli bera fyrir sig skýr og
skiljanleg rök, sem verða tæpast snið-
gengin algerlega.
Erfiðara er að átta sig á hvað ræður
beygingunni Berglindi. Endingin -/ á sér
auðvitað einhverja skýringu. Ef til vill er
eitthvað til í því sem drepið var á hér
áðan, en fleira getur komið til. Ekkert er
í augsýn sem beinlínis mælir með þessari
beygingu.
Sú beyging sem auðveldast er að rök-
styðja og réttlæta og liggur raunar beint
við þegar farið er að athuga málið er:
Berglind, Berglindu, Berglindu, Berg-
lindar.
7